Framsóknarspunalyktin finnst langar leiðir af þessari frétt.

Þetta er framsóknarspuni.  Alveg klárt.

Framsóknarmannaflokkurinn er með allt gjörsamlega á óheppilegum stað varðandi millifærslumál sitt og barasta núna í kvöld komu svo sérkennilegar fréttir því viðvíkjandi að fólkið í landinu er furðu lostið yfir þróuninni.  Furðu lostið.  

Og kemur sú furða ofan í mikla reiði fólksins í landinu almennt gagnvart framferði þeirra framsjalla.  Þá kemur einhver sjallagæji í fréttir í kvöld á RUV til að tjá sig um millifærsluna og segir:  ,,Ég bara veit það ekki"!  Hahaha.  ..Ég bara veit það ekki"!  Sagði gæjinn.

Augljóslega er vegna ofanlýst og óheppilegrar staðsetningar millifærslumálsins,  settur af stað einhver spuni varðandi kröfuhafa til að reyna að beina augum manna og umræðunni annað.

Algjörlega augljóst ef menn hafa kynnt sér spunaeðli framsóknarmanna.  Þeir lifa bara í einhverri spunavitleysu og munu gera það þangað til þeim verður kastað úr stjórnarhúsinu - og gæti farið að styttast í það. 


mbl.is Sögð vilja ræða við kröfuhafa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil reiði og óánægja er hjá fólkinu í landinu með framferði framsóknarmannaflokksinns.

Greina má mikla undiröldu og hreinlega reiði.  Litið er á málatilbúnaðinn sem stór svik og jafnframt finnst fólkinu að framsóknarmenn tali til þess eins og það sé fífl.

Sjallamenn - þeir eru svo eins og þeir eru.

Heppilegast væri ef framsjöllum yrði nú refsað duglega í komandi kosningum. 

 


mbl.is Fólk var að bíða eftir þessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðmundur Steingríms. stóð sig best í umræðum í Kastljósi RUV. Frosti langverst og Ragnheiður næstverst.

Og er Guðmundur sennilega vaxandi stjórnmálamaður.

Að öðru leiti með þessa  millifærslu framsóknarmanna, að þá er komið í ljós,  að í raun er þetta bara opið hvað næmlega á að millifæra og það kemur ekki í ljós fyrr en í haust (í fyrsta lagi.)

Það er eitthvað rotið við þetta.  Something is rotten in framland.

Svo sagði ragnheiður greyið að fólk gæti ,,mátað sig við þetta" á síðunni sem framsóknarmenn hentu upp í einhverju pati.

Mátað hvað?  Það er bara hægt að ,,sækja um".  Fólk sér ekkert hvaða niðurfellingu það fær.

Ljóst er að eitthvað er þarna bogið og framsóknarmenn og sjallar eru að fela eitthvað.  Enn einu sinni eru þeir að ljúga og blekkja. 


Grein sem kemur ranghugmyndum inn hjá innbyggjum.

Í fyrsta lagi var reyndar líka takmarkað hér á því hve mikið mátti taka út í cash í krónum fyrst eftir Hrunið.    Var eitthvað sáralítið sem mátti taka út.  

Í annan stað var munurinn á úttektarhömlum á Kýpur og Íslandi ekki sá að annað var Evra og hitt ,,sjálfstæður gjaldmiðill" eins og sagt er.  (Búið að aflétta slíkum hömlum á Kýpur reyndar.)

Raunveruleg skýring er mun einfaldari og þarf ekkert krókaleiðir í kringum þá ástæðu.

Ástæðan var að svokölluð ,,íslensk króna" er hvergi marktæk nema hér uppá skeri í fásinni.  Það hafði enga þýðingu að taka út einhverja krónu hér.   Var ekki hægt að fara með hana úr landi.

Á Kýpur gilti allt annað lögmál.  Þar eru þeir með alvöru gjaldmiðil,  sjálfstæð verðmæti, sem gilda allstaðar í heiminum.

Hömlur á úttekt í cash var þ.a.l. barasta skynsamleg öryggisráðstöfun tímabundið sem engum skaða olli.

Munurinn var að Kýpur hafði alvörugjaldmiðil en Ísland gjaldmiðil sem allstaðar er hlegið að og enginn tekur fyrir gilt nokkursstaðar í heiminum.  

Ótrúlegt að blaðamenn fatti þetta ekki. 


mbl.is Samstarf við ESB óháð umsókninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú ég hélt að framsóknarmenn hefðu kannski verið að koma með ,,reiknivélina" hahaha.

Með ,,reiknivélina".  Hahaha.  Þvílíkt og annað eins hneyksli hefur ekki komið upp í stjórnmálum á Íslandi á Lýðveldistímanum.  Þarna laug þessi flokkur sig að kjötkötlunum með því að segjast ætla að fella niður skuldir ókeypis og einhverjir ,,hrægammar" uppí loftinu áttu að borga og fólk átti bara hringja og fá peninga líkt og að fá senda pítsu og geta reiknað út gróðann.

Hvað gerist?  Jú, um leið og framsóknarmenn komast að kjötkötlunum renna þeir beint í sameiginlega sjóði almennings og standa nú á haus ofaní Landskassanum svo aðeins sést í afturendann á þeim.

 


mbl.is Sigmundur heimsótti ríkisskattstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðmundur Steingríms: Bankarnir afskrifuðu 2010, valkvætt, höfuðstól verðtryggðra lána um 20%.

Guðmundur Steingríms. sagði í ræðu á þingi að árið 2010 hefðu bankarnir afskrifað, valkvætt, höfuðstól verðtryggðra lána um 20%. (29.25)

http://www.althingi.is/altext/upptokur/raeda/?raeda=rad20140513T221348

Það hefði hinsvegar enga umræðu fengið og hefði gleymst í umræðunni.


Færðu bankarnir íbúðarlán niður um allt að 20% eftir framsjallahrunið 2008?

Það vakti athygli að Gumundur Steingríms. sagði eitthvað á þá leið í ræðu í gær eða fyrradag á þingi.  Að bankarnir hefðu fært verðtryggð íbúðarlán niður um sirka 20% og sagði að m.a. hefði hans lán verið færð niður.

Nú hef ég að vísu nokkrar heimildir um álíka, þ.e. um umtalsverða niðurfærslu íbúðarlána hjá bönkum og þá hefðbundin verðtryggð lán.

Þannig að þetta er sennilega rétt hjá honum.  Og jafnframt rétt hjá honum að þetta hefur bara ,,gleymst" óvart í umræðunni.

Þessi skuldarniðurfelling sem bankarnir framkvæmdi í samningum við lántaka dregst ekki frá skuldaniðurfellingu framsóknarmanna sem gagnast aðallega betur stæðum og hinir verr stæðu í samfélagi borga. 


Hvernig ætlar ríkisstjórnin að endurfjármagna stór lán sem eru á gjalddaga 2016?

Það eru stór lán þá sem falla í gjalddaga og þarf að rúlla áfram.   Hvað ætlar svokölluð ríkisstjórn að gera?  Fella skuldirnar niður eða?  

Að öðru leiti er engu líkara en búið sé að reka ríkisstjórnina eða þá að búið sé að leggja hana með einhverjum hætti hreinlega niður.  Ríkisstjórnin er ekkert að tala við þjóðina.  Í einstaka tilfelli er einhver sendur fram af hálfu ríkisstjórnar og talar þá niður til þjóðarinnar og sérstaklega þeirra verr stæðu í samfélagi.  Annars sjást þeir ekki.

Meir að segja þorði forsætisráðherra framsóknarmanna ekki að tala við þjóð sína í Eldhús-Umræðum og bar við spéhræðslu.  Þetta náttúrulega gengur ekki.   


Vextir munu almennt hækka á næstu misserum ef ójafnaðaraðgerðir hörmungarstjórnarinnar ná fram að ganga.

Það er eitt af því sem fylgir skuldaniðurfellingum framsóknarmannaflokksinns sem almenningur á að borga og aðallega þeir verst stæðu.

Það eru mörg neikvæð atriði efnahagslega sem hafa enga umræðu fengið og fólk margt veit ekkert af sem mun fylgja óábyrgri meðferð almannafjármuna af hálfu framsjalla.  M.a. að vextir munu almennt hækka.

Erfitt er að segja til um hve mikið og hve stórar neikvæðar afleiðingar verða en alveg er ljóst að samlegðaráhrifin geta orðið mikil.

Þjóðin á heimtingu að fá að greiða atkvæði um aðgerðir framsóknarmannaflokksinns.  


mbl.is Spá óbreyttum stýrivöxtum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumvarp framsóknarmannaflokksinns um að ráða sjalla í verktöku til að ausa fjármum almennings til sumra, aðallega vel stæðra, verður að fara í þjóðaratkvæði.

Annað kemur ekki til greina.  Ef meirihluti þingmanna ætlar virkilega að samþykkja þessar hörmungaraðferðir elítuflokkanna - þá á þjóðin rétt á að segja sitt álit um efnið.  Já eða nei spurning.

Við erum að tala um tæpa 100 milljarða króna þarna sem framsóknarmenn og sjallar ætla að ausa úr Landskassanum.  Landskassa sem er sárlega fjárþurfi til að styrkja ýmsa innviði samfélagsins ss. heilbrigðis- og menntakerfið og ýmis velferðamál.

Það að ætla að ausa 100 milljörðum svona úr Landskassanum er í besta falli óábyrg meðferð almannafjármuna en í versta falli eitthvað sem má ekki nefna.

Þetta þarf að fara í dóm þjóðarinnar. 

http://www.althingi.is/altext/upptokur/raeda/?raeda=rad20140513T232216


mbl.is Þingfundur stendur enn yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband