Nú ég hélt að framsóknarmenn hefðu kannski verið að koma með ,,reiknivélina" hahaha.

Með ,,reiknivélina".  Hahaha.  Þvílíkt og annað eins hneyksli hefur ekki komið upp í stjórnmálum á Íslandi á Lýðveldistímanum.  Þarna laug þessi flokkur sig að kjötkötlunum með því að segjast ætla að fella niður skuldir ókeypis og einhverjir ,,hrægammar" uppí loftinu áttu að borga og fólk átti bara hringja og fá peninga líkt og að fá senda pítsu og geta reiknað út gróðann.

Hvað gerist?  Jú, um leið og framsóknarmenn komast að kjötkötlunum renna þeir beint í sameiginlega sjóði almennings og standa nú á haus ofaní Landskassanum svo aðeins sést í afturendann á þeim.

 


mbl.is Sigmundur heimsótti ríkisskattstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband