Hvað sagði Robben eiginlega í viðtali við NOS eftir mexíkóleikinn?

Fjölmiðlar margir hafa farið hamförum yfir meintum ummælum Robben eftir leik Mexíkó og Hollands í gær og vilja meina að hann hafi viðurkennt dýfur þar hægri vinstri til að fiska víti.  

Staðreyndin er að fæstir fjölmiðlar hafa rétt eftir Robben.

það rétta er að Robben var að tala um brot undir lok fyrri hálfleiks þar sem greinilega var farið í lappirnar á Robben á þá tvivar frekar en einu sinni.

Robben sagði að það hefði verið klár vítapyrna - en bætti svo við eftirfarandi:

,,I do have to say, honestly, and I would also like to apologize directly. In the first half before this I did make a ‘schwalbe’(dive). It was a stupid stupid situation. But OK, sometimes you suspect kick and they retract at the last minutes."

Það er alveg ljóst að hann var segja, í samhenginu, allt annað en fjölmiðlar hafa verið með.  Jafnvel þeir fjölmiðlar sem hafa farið vægast í sakirnar.

Hann er ekkert að biðjast afsökunnar á að hafa tekið dýfu til að reyna að fiska víti.

Samhengið er, að hann segir svo frá að í eitt skipti í fyrri hálfleik fannst honum að varnarmenn mexíkóa ætluðu í lappirnar á honum - og hann lét sig detta.  En snerting mexíkóa var í því tilfelli ekki eins mikil og hann bjóst við svo úr varð ,,stupid situation".

Heildarmerkingin hjá Robben í viðtalinu var, að ef hann hefði haldið áfram í því tilfelli - þá hefði hann hugsanlega komist í færi.   Hann er að biðja hollendinga eða aðdáendur hollendinga afsökunnar á að hafa dottið of fljótt eða hafa ekki tekið áhættuna og þar með hugsanlega komist  í markfæri.

Fjölmiðlar hafa gert sig að fífli með fréttamennsku sinni af atvikinu. 


mbl.is Robben biðst afsökunar á dýfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kólombía hefur leikið skemtilegast boltann á HM hingað til.

Fyrir utan þá staðreynd að ameríkuliðin hafa komið sterk útúr byrjun HM svo sem Kosta Ríka, að þá er það eftirminnilegasta hingað til skemmtilegur stíll Kólombíu.  

Að vísu má alveg segja að Kólombía hafi ekki leikið gegn alsterkustu aðilunum hingað til og þeir hafi verið að sumu leiti heppnir með andstæðinga - að þá breitir það ekki því að leikur þeirra hefur verið nánast óaðfinnanlegur.  

Má eiginlega segja kannski að leikur þeirra hafi verið of góður og þeir geti varla haldið áfram slíkum dambi endalust - enda eru næstu andstæðingar þeirra sjálfir Brasilíumenn.

Eftirminnilegasta einstaka atvikið er stórglæsilegt mark James gegn Úrúgvæ.   Náttúrulega, að meðan lið eru fær um að gera slík mörk - þá segir það ákveðna sögu.

Það er ekki aðeins markið eða úrvinnslan hjá James sem er málið heldur allur aðdragandinn. Seinna markið hefur svo ekki síður flottan aðdraganda.

Með fyrra markinu gerði James nánast útum leikinn.  Úrúgvæ hafði greinilega þá strategíu að halda sem lengst jöfnu og þreyta Kólombíumenn.   Varnarleikur Úrúgvæ hafði verið skipulagður og traustvekjandi og ekki að sjá að þeir gæfu auðveldlega færi á sér.

Þá kom þetta hjá James og hann gerði þar með áætlanir Úrúgvæ að engu:

 

 


mbl.is Kostaríka í átta liða úrslit eftir vítakeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjar ásakanir um bit. Suarez sagður hafa bitið 8 leikmenn.

,,EXCLUSIVE: Luis Suarez 'has bitten EIGHT people on the pitch' LUIS Suarez has bitten eight players in his career, it was sensationally claimed last night.

Football’s governing body FIFA probed another five alleged attacks by the shamed football star.

Investigators were told Suarez, 27, sunk his teeth into opponents as a youth in Uruguay.

But insiders claimed the bites were hushed up and records from his first club, Nacional, have mysteriously disappeared.

FIFA has heard claims of a cover-up relating to the career of Suarez – who last night denied biting Italian player Giorgio Chiellini, 29.

A source told the Daily Star Sunday: “FIFA have not only taken into consideration this bite and two previous incidents when they handed Suarez a four-month ban from football.  

,,They are also aware of other alleged biting incidents from his early professional playing days. There are people who have come forward to FIFA with details. There are allegations of five attacks but whistleblowers have told FIFA they were covered up because football officials in Uruguay did not want it known that their star asset was involved."

...

http://www.dailystar.co.uk/news/latest-news/386282/FIFA-investigators-probe-claim-Luis-Suarez-has-bitten-eight-players


mbl.is HM saga Suárez í myndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um styrkleika landsliðs Bandaríkjanna í fótbolta.

Það er nú ekki alveg rétt hjá Klinsmann að enginn hafi búist við þessu.  Vegna þess einfaldlega að Bandaríkjamenn hafa marg sannað sig í Heimsmeistarkeppninni.

Þ.e.a.s. að ef aðeins er horft á einstaklingana sem liðið samanstendur af og að aðrar íþróttir eru vinsælli í BNA en fótbolti,  ekki sterk deildakeppni  o.s.frv - að útfrá aðeins því er ekki við miklu að búast.

En Bandaríkin hafa marg sannað sig á Heimsmeistaramótum.  Það er aldrei fyrirfram hægt að afskrifa Bandaríkin í riðlakeppninni.  Það eru margir búnir að átta sig á því, að mínu mati.

Styrkleiki Bandaríska landsliðsins liggur fyrst og fremst í liðsheildinni.  Þeir eru skipulagðir og kunna alveg strategíu og tæknilegar útfærslur á leikstíl og aðlaga sig að hverjum andstæðingi.

Ennfremur er mikið sjálfstraust og öryggi.  Þeir hafa einhvernvegin trú á verkefninu og það skín alltaf í gegn.  Það er ekki auðvelt að ætla að brjóta Bandaríska liðið niður með því að keyra á það.  Þeir eru þolinmóðir varnarlega séð og gefast aldrei upp.  Leikurinn hjá þeim er alltaf 90 mínútur plús uppbótartími.

Margir einstaklinganna innan Bandaríska liðsins virka soldið sem fyrst og fremst íþróttamenn.  Þ.e.a.s. að þeir virka í þokkalegri æfingu og hafa úthald,  virðast vanir kappleikjum eða keppnum.  Einhvernvegin attitjúdið gagnvart keppni er afslappað en samt er nálgunin af öryggi.  Sumir vilja meina að það eigi rætur í  mikilli og margskonar  íþrótaiðkun í BNA skólakerfinu.  

Afleiðingin af öllu ofantöldu er, að meginstyrkur Bandaríska fótboltaliðsins er að þeir kunna að leika team-fótbolta.  Þeir eru svo mikið team.  Það er stundum alveg athyglisvert að fylgjast með þeim td. sóknarlega hvernig þeir geta sett á þunga pressu að marki andstæðinganna með einföldum, rökréttum samleik sem miðar að því að þrýsta sóknarlínunni sífellt nær marki þannig að hljóti að enda með góðu markfæri.

Önnur lið gætu lært ýmislegt af Bandaríkjunum í fótbolta.  Það er ekkert endilega málið í fótbolta að hafa afburða boltamenn.  Það að kunna að leika sem team skiptir líka máli og getur skilað góðum árangri.


mbl.is „Enginn bjóst við þessu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarmannaflokkur að hverfa. Jafnaðarmenn með tæp 40% fylgi.

,,Framsóknarflokkurinn mælist nú með 9,5 prósenta fylgi"

http://www.ruv.is/frett/bjort-framtid-maelist-med-218-prosent

Þetta er að vonum.  Bullið í framsóknarmannaflokki hefur verið svo yfirgengilegt að gengur fram af flestum.  

Það athyglisverða er að almennir framsóknarmenn forherðast og eru nú orðnir býsna viðskotaillir.  Enda samanstendur fylgi flokksinns orðið mikið til af ofstopamönnum á alla kannta eftir að þeir spiluðu út ákveðnu spili sem má ekki nefna til að særa ekki fínar taugar þeirra framsóknarmanna. 


Þetta eru nú öll ósköpin.

Hér er moskan og video af opnun á link. 

Stormosk__i_K_benha_855674y
 
http://www.b.dk/nationalt/saa-blev-koebenhavns-nye-stormoske-aabnet

mbl.is Tákn friðar eða ofstækis múslíma?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrsagnir úr framsóknarmannalokknum vegna þjóðernispopúlisma.

,,Ómar Stefánsson, sem hefur verið oddviti Framsóknarmanna í Kópavogi um árabil, hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum. Áður hafði Ómar tilkynnt að hann ætlaði í fjögurra ára frí frá stjórnmálaþátttöku. Á félagsfundi Framsóknarmanna í Kópavogi nýlega tilkynnti Ómar að hann hefði sagt sig úr Framsóknarflokknum. „Ástæðan er sá þjóðernispopúlismi sem þrífst innan Framsóknarflokksins sem ég á enga samleið með,“ segir Ómar sem segist hafa beðið með að tilkynna þetta þangað til að skyldum hans lauk sem bæjarfulltrúi í Kópavogi fyrir Framsóknarflokkinn þann 15. júní síðastliðinn."

http://kfrettir.is/omar-stefansson-segir-sig-ur-framsoknarflokknum/#.U6cLVxV_FIo.twitter

Böndin herðast hægt og rólega að framsóknarmannaflokki vegna hans framferðis.

Fáir vilja hafa saman við þetta að sælda.  

Sem vonlegt er. 


Framsjallar gefa lítið fyrir frábærleika innbyggja við að leysa gjaldeyrishöft með snilldartrikkum.

Hafa núna sett málið í útboð í Englandi. Haha.  Í útboð í Englandi.  Meira djókið þessir elítudrengir.

,,Stjórnvöld ætla að ráða til sín erlenda ráðgjafa sem ráðgert er að hafi beina aðkomu að því að afnema gjaldeyrishöftin. Íslenskir embættismenn hafa rætt við ýmis ráðgjafarfyrirtæki í Lundúnum í gær og í dag.

... 

Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa íslenskum stjórnvöldum þegar borist tilboð frá erlendum ráðgjafarfyrirtækjum og ráðgert er að semja um aðkomu þeirra á allra næstu vikum."

  http://www.ruv.is/frett/rada-erlenda-radgjafa-i-afnam-hafta


Og Uganda er að mestu kristið.

,,According to the census of 2002, Christians made up about 84% of Uganda's population. The Roman Catholic Church has the largest number of adherents (41.9%), followed by the Anglican Church of Uganda (35.9%). Evangelical and Pentecostal churches claim the rest of the Christian population. There's a growing number of Presbyterian denominations like the Presbyterian Church in Uganda, the Reformed Presbyterian Church in Uganda and the Evangelical Free Church in Uganda with hundreds of affiliating congregations. The next most reported religion of Uganda is Islam, with Muslims representing 12% of the population"

Að öðru leiti er nú þarna tilefni fyrir þá Sjalla að láta bandaríkjamenn heyra það.


mbl.is Grípur til aðgerða gegn Úgandastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni og Sjallar í hart við þá Bandaríkjamenn.

Formaður þeirra Sjalla hefur nú hótað Bandaríkjamönnum boykotti.  Deilan er til komin vegna einhverra tveggja Sjalla sem vilja endilega drepa hvali og þá afþvíbara.  Drepa munum vér hvali vissulega, segja þeir Sjallar og bæta við nánast að  Bandaríkjamenn geti bara fokkað sér.   

Hvað sem um þessa milliríkjadeilu Sjalla og Bandaríkjamanna má segja - þá er efasamt að vit fylgi ákafa hjá þeim Sjöllum.  Efasamt. 

Skaðsamt mun þetta verða fyrir landið og lýðinn.  

Dýrir verða þeir Framsjallar er upp verður staðið. 


mbl.is Bjarni gagnrýnir bandarísk yfirvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband