Hringlandinn í stjórnarflokkunum áberandi.

Það er alveg orðið skrautlegt að fylgjast með þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna að maður tali nú ekki um svokallaða ráðherra þeirra.   Hægt að sjá þetta allt á Alþingisrásinni.  Allur þeirra framgangur virkar óskaplega hringlandalegur og taktíkin virðist vera að setja hitt og þetta til einhverra ráðgjafafyrirtækja útí bæ sem skila svo af sér einhverjum óskapnaði sem ekkert verður síðan gert með.

Virkar fálmkennt og fullt af reynsluleysi ásamt vanmætti gagnvart því verkefni að halda samfélaginu saman.

Það í raun eina sem ríkisstjórnin hefur gert er að færa fjármuni frá hinum verr stæðu til hinna betur stæðu.  Annað hefur nú ekki verið gert.

Skrautlega uppákomu mátti sjá á þingi í dag þegar einhver framsóknarmaðurinn átti að stjórna þingfundi - hann virtist ekkert kunna til verka.  Starfsmaður útí sal þurfti hvað eftir annað að grípa fram fyrir hendurnar á honum og gera í raun allt fyrir hann.  Hann virtist ekkert hafa reynt einu sinni að setja sig inní djobbið.  Það hefði verið alveg jafngott að hafa bara starfsmanninn sem forseta þingsins og spara þannig almenningi pening.


mbl.is Sigmundur furðar sig á glerhöll
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Leiðtogi Boko Haram: Annaðhvort stendur fólk með okkur eða með Obama, Hollande, Bush og Clinton - að ógleymdum Abraham Lincoln. Ban Ki-moon og vantrúaðir: Kill, kill, kill!

Ljóst er að öllum er brugðið við myndband er birtist af leiðtoga Boko Haram,  Abubakar Shekau, þar sem hann virðist ekki alls ekki vera með réttu ráði.   Lítið er svo sem vitað um þennan einstakling og virðist ekki einu sinni ljóst hve gamall hann er eða hvar hann fæddist.   Fyrir nokkru síðan munaði litlu að hann yrði ráðinn af dögum og eftir það er eins og hann hafi færst allur í aukanna og sent frá sér fleiri vidio og sérkennilegri.   Engu líkara er en einstaklingurinn hafi annaðhvort misst vitið eða sé undir áhrifum afar sterkra lyfja.

 


mbl.is Stúlkuránið glæpur gegn mannkyninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. maí 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband