Pítsuþjónusta framsóknarmanna í ruglinu. Hvernig ætla svo þessir menn að stjórna einu landi? Geta ekki einu sinni rekið pítsuþjónustu.

,,Ríkisskattstjóri segir að endurskoða þurfi tímasetningu á gildistöku laga um verðtryggingu verðtryggðra húsnæðislána. Þetta kemur fram í umsögn hans til efnahags- og viðskiptanefndar við frumvarp til laga um leiðréttingu lánanna.

Gert var ráð fyrir því að landsmenn, sem frumvarpið nær til, myndu geta sótt um niðurfellingu þann 15. maí. Ríkisskattstjóri segir þá dagsetningu ekki raunhæfa. Ætla verði að umfjöllun Alþingis um málið taki nokkurn tíma."

http://www.visir.is/segir-landsmenn-ekki-geta-sott-um-nidurfellingu-thann-15.-mai/article/2014140509323


Á sama tíma ætla sjallar að ausa um hundrað milljörðum úr Landskassanum rétt si sona til að borga kosningaloforð Framsóknarflokksinns.

Auk margra margra milljarða tekjutaps sem verður af kosningaloforðum Sjallaflokksinns.

Ástæða þess að stjórnarflokkarnir láta heilbrigðiskerfið reka á reiðanum er sem sagt sú að þeir ætla að ausa svo mikið úr Landskassanum til að borga fyrir aðgang sinn að kjötkötlunum. 

Önnur eins hörmungarstjórn hefur ekki komið yfir þetta land frá Lýðveldisstofnun.

Það eina sem gert hefur verið á einu ári er að færa fjármuni frá hinum verr settu yfir til elítunnar.

Grunnþjónustan fær svo að kenna á því.  

Þvílík hörmung.   Og ábyrgð þeirra er stór sem kusu þessi ósköp yfir landið. 


mbl.is Vandinn snýr ekki að fjármögnuninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. maí 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband