Rússagullið at it again. Putin styrkir hægri öfgaflokka í Evrópu.

Þetta eru stórmerk tíðindi.  En að sjálfsögðu stritast fjölmiðlar hér við að þegja um þetta.  Það eina sem heyrist er frá einhverjum heimsýnarmanni,  eins og útúr kú, hve hrifinn hann væri af Putin.  

Þýskir blaðamenn hafa séð leyniskjal þar sem farið er yfir þessa strategíu Putins og rússa.  Þetta hefur virkað vel á National Front í Frakklandi og aðrir helstu öfgaflokkar í Evrópu eru meira eða minna undir í þessu plani.  Td. AfD í þýskalandi.  Virkaði vel þar líka.

,,A Moscow strategy paper seen by German media shows how Russian President Vladimir Putin has been advised to influence Europe through right-wing populist parties including Alternativ für Deutschland (AfD)."

http://www.thelocal.de/20141124/putin-euro-influence-strategy-targets-afd


Þetta er í raun rétt hjá Vilhjálmi.

Í rauninni.  Grunnatriðið er rétt hjá honum.  Það eru þó fleiri hliðar á þessu.  Vissulega.  Það meikar aðeins sens ef íslenskir dómsstólar meta þetta sem ,,óréttmætan skilmála" í lánasamningi - að viðkomandi lántaki hafi alls ekki gert sérgrein fyrir að lánið væri verðtryggt.  Þ.e. að hann hafi haldið að þetta væri allt og sumt.  Höfuðstóll plús lágir vextir.  

Í dómsmáli þyrfti því eiginlega að sanna það að lántaki hafi ekki vitað af verðtryggingunni sem verið hefur á Íslandi og í framhaldi þyrfti helst að sanna að viðkomandi lántaki hafi ekki haft hugmynd um verðrýrnunareffekt íslensku krónunnar og að hún er ekki alvöru gjaldmiðill líkt og tíðkast í nágrannalöndum.

Nágrannalöndin hafa alvöru gjaldmiðil, td. Evru, þar sem verðgildið er innbyggt í gjaldmiðlinum.  Þ.e.a.s. alvöruverðmæti - alvörugjaldmiðill.  En ekki bara viðmið eins og svokölluð íslenska króna.


mbl.is Fásinna að miða við annað en 0%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott dæmi um málefnalega umræðuhefð Sjalla er úr Mogga 1929 þar sem Jónas frá Hriflu var sagður ljótur, sjúklegur og á eiturlyfjum í einni og sömu fréttinni.

Þetta sagði Moggi um Pólitískan andstæðing eins og að drekka vatn 1929.

,,Er hann (Jónas) kom upp í ræðustólinn heyrðust undrunarraddir um mannþröngina á þessa leið: Nei, er hann svona Ijótur! Það skal tekið fram af kunnugum, að hann var með allra skársta móti þann dag. (...) En allt látbragð hans var svo óvenjulegt, svo sjúklegt, að Skagfirðingar lærðu þann dag að skoða hann í alveg nýju Ijósi. Hann drekkur ekki vín, að sögn. En hvernig er maðurinn? Hví lætur hann svona? Þannig spurðu menn og stungu saman nef'jum. Og tilgátur manna á meðal voru þá þær, að hann notaði eiturmeðul. - Að hann væri með sjálfum sjer, datt engum í hug, sem sá hann og heyrði."

http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=101786&pageId=... (bls.4)


Carlsen vinnur Anand frekar auðveldlega.

Soldið merkilegt hve sterkur Carlsen er.  Anand stóðst honum ekki snúnig í þessu einvígi, að mínu mati.  Þetta virkaði barasta frekar auðvelt hjá Carlsen.  Það sem maður hefði kannski búist við, var að Anand myndi sýna aðeins meira.   Í lokaskákinni er alveg athyglisvert hvernig Carlsen velur alltaf réttu leiðina.  Skákin er mjög opin eða eftir upphafið eru oft margir möguleikar í stöðunni. Carlsen velur alltaf réttu leiðina og forðast villuljósin.  Og með þeim afleiðingum að hann nær yfirburðarstöðu í endataflinu og þetta virkar allt frekar auðvelt og fyrirhafnarlaust hjá honum:


mbl.is Magnús Carlsen heimsmeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsjallar sigla sjávarútveginum í strand.

Það var viðbúið.  Þeir sigldu nú öllu Ríkinu beint uppí fjöru hér um árið.  Þá þurfa menn eigi að vera hissa á að þeir sigli undirþáttunum í strand.  Þetta er allt meira og minna í strandi hjá framsjöllum.   Síðan moka þeir svoleiðis fjármunum almennings undir eigin elíturass og níðast á allan hátt á hinum verst stöddu í samfélagi.  Það er bara staðreynd að Hörmungarstjórn framsjalla er vanhæf ásamt óhæf og sjallar hafa sundurholað samfélagið en framsóknarmenn nagað lýðveldistréð að rótum.


mbl.is Erum að dragast aftur úr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eitthvað að frétta af hugmyndum framsóknarmanna um hvernig þeir ætla að stórauka landbúnaðarframleiðslu?

Aaa alveg rétt.  Þeir voru að ljúga.  Alveg rétt já.   Bull andskotans ljúga.  Að þetta lið skuli ekki skammast sín er mikið eindæmi.  Bullandi eins og hálfvitar reglulega um að stórauka landbúnaðarframleiðslu hér.  Menn sem vita augljóslega ekkert í sinn framsóknarhaus um landbúnað frekar en nokkurn annan hlut.  Samt skal bullað og logið feitt.  Meira skelfilega hneykslið sem þessi framsóknarflokkur er.  Þvílík skömm fyrir landið.


Fækka tók þá óðum fjandaflokki. Þrír framsjallar í svartholið í dag.

Ef vel ætti að vera og allt væri með felldu væri þessi framsjallaflokkur að mestu leiti í grjótinu.  Þetta er almennt talinn bófaflokkur af óháðum fjölmiðlamönnum innanlands og erlendis er það vel þekkt og ekkert feimnismál eins og hér uppi í framsjallafásinni.  En dropinn holar steininn.   Gengur þó hægt fari.  Æskilegast væri að sópa framsjöllum svona hægt og bítandi bak við lás og slá - og henda svo lyklinum. 


Ríkisstjórn á rassgatinu.

Það gengur allt eftir fullkomlega er eg sagði fólki þegar Hörmungarstjórnin hrifsaði til sín völdin með ofsalygaofstopa.  Framsjallar rústa landi og lýð og gera ekkert annað en seilast í vasa hinna verr stæðu og færa hinum betur stæðu.  Það eina e.t.v. sem eg sá ekki alveg fyrir er hve lygasjúkt þetta er.  Þetta virðist ekki geta sagt nokkuð orð nema að ljúga.  Bókstaflega ALLT lygi sem frá þessu kemur.  Þvílík ömurð.  Þvílík niðurlæging fyrir land og lýð.


Vont er sjalla ranglæti - verra þeirra réttlæti.

Þeir hefna þess í héraði sem hallaðist á Alþingi.  Framsóknarflokkurinn hefur sí-lúgandi tíu höfuð.   Ein lygi sjalla bíður annari heim í hlað.  Land míns föður, landið mitt, laugað bláum sjallaóþverastraumi.  Framsjallar virðast bókstaflega hata land og þjóð og níðast hvar og hvenær sem er á hinum verr stæðu.   Landið var fagurt og frítt - nú er það allt sundurholað af sjöllum og rótnagað af framsóknarmönnum.  Það er engu líkara en þessi stjórnarmeirihluti, heil yfir, sé bókstaflega helt gal í hoveded.  Þetta eru bara hálfvitar. 


Ísland-Tékkland landsleikurinn í fórbolta.

Talsvert hefur verið rætt um tap Íslands fyrir tékkum í Tékklandi 1:2 sem var fyrsta tap Íslands í riðlinum og reyndar fyrstu mörkin sem Ísland fær á sig í riðlakeppninni.

Þetta tap þarf þó ekki að koma á óvart.  Það hefði verið með ólíkindum ef Ísland hefði líka náð að vinna tékka eftir að hafa unnið bæði tyrki og hollendinga.

Það sem gerðist í leiknum var einfaldlega það að tékkar voru að gera betur það sem íslenska liðið hefur gert býsna vel í leikjunum til þessa.

Tékkar spiluðu sem ein heild og voru vinnusamir og ákafir.  Lið tékka er mjög jafnt, þeir eru fljótir, ákafir,  talsvert liprir með boltann og eiga auðvelt með samspil.

Þeir voru einfaldlega að gera ofantalið talsvert betur en Ísland í leiknum.  Það kom hik á íslenska liðið og á tímabilum mikil panik í vörninni.  

Íslenska liðið virkaði soldið eins og það vissi ekki alveg hvernig það átti að bregðast við.  Sennilegast var ekkert auðvelt að bregðast við þessu vegna þess einfaldlega að tékkar voru sem heild talsvert sterkari.

Vissulega tók maður alveg eftir að tékkar settu pressu á ákveðin svæði o.s.frv. - en efasamt er að leikmannaskiptingar hefðu breytt heildarútkomunni.

Hitt er svo annað mál að nú hafa önnur lið í riðlinum fyrirmynd að því hvernig er best að nálgast leiki gegn Íslandi.  

Það verður að segjast að tékkar gerðu þetta harla vel.  Þeir voru beinsteyttir framávið, dreyfðu spilinu kannta á milli, komust nálægt endamörkum og sendu þá boltann út í teiginn.  

Mikilvægt var hve hraðir og snöggir þeir voru í sínum aðgerðum og sendingamöguleikar voru yfirleitt fleiri en einn.  

Þeir voru ekkert alltaf að hugsa sig lengi um heldur létu bara vaða.  þ.e keyrðu á íslensku vörnina á breiðum grunni, komu boltanum inní teig og gjarnan erfiðar, fastar sendingar.  Þeir gáfu ekki íslendingum færi á að leika agað eins og gegn hollendingum.

Það var alveg augljóst að tékkar höfðu lagt vinnu í að lesa strategíu og skipulag Íslands hingað til.

Þeir náðu að brjóta upp vörn Íslands margoft í leiknum.  Það er eins og það henti afar illa fyrir svæðisvörn,  eins og Ísland leikur,  að fá andstæðing upp að endamörkum og fá síðan sendingar útávið.  Margoft var bara happa og glappa hvar boltinn lenti og tékkar hefðu vel getað sett inn 4-5 mörk með aðeins smá heppni.

Hitt er svo líka rétt, að Ísland stóð þessi áhlaup reyndar af sér.  Tékkar skoruðu aðeins 2 mörk.  Og Ísland hefði alveg getað stolið stigi í restina.

En það breytir því ekki að tékkar voru talsvert betri í heildina allan leikinn.  Og það sem skiptir miklu máli er að þeir náðu að leysa íslensku vörnina sem hefur virkað svo sterk hingað til.  Önnur lið í riðlinum gætu vel lært af þessu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband