7.11.2014 | 09:24
Staðreyndir renna upp fyrir íslendingum.
Nú virðast íslendingar vera að átta sig á því smá saman að umræða undanfarinna missera og ára sem keyrð var áfram af óheiðarlegu og óábyrgu ofsa-própaganda framsjalla - var bara það. þ.e. ofsa-própaganda og brútalt óheiðarleiki.
Fólk er að átta sig á þessu smá saman.
Það er vissulega rétt sem sumir fræðimenn hafa bent á, að ofanneft bitnar fyrst á framsóknarmannaflokki. Það er náttúrulega bara vegna þess hve framsókn hefur verið fádæma óábyrg í sínum málflutningi. Bitnar fyrst á framsókn en síður á sjallabjálfaflokki þó samanlagt ríkisstjórnin svokölluð verði fyrir miklum skakkaföllum og telst tæplega starfhæf lengur.
Það er eigi skemmtilegt að horfa uppá þessi ósköp. Langt í frá skemmtilegt.
Nú er komið í ljós að það eru engin töfratrikk og snillingabrellur útúr rústalagningu sjalla á landinu. Fólki mörgu er brugðið. Margir trúðu bulli framsóknarmanna og sjalla. Ábyrgð framsjalla er stór og mikil. Það er ábyrgðarhlutverk að vera í stjórnmálum.
Það er komið í ljós núna að skynsamlegasta leiðin útúr ógöngum framsjalla var aðild að Sambandinu. Engin barbabrelluleið vissulega og leið sem hefði tekið ákveðin tíma og þolinmæði - en langskynsamlegasta og besta leiðin ásamt því að vera sú eðlilegasta og raunsæjasta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)