Fækka tók þá óðum fjandaflokki. Þrír framsjallar í svartholið í dag.

Ef vel ætti að vera og allt væri með felldu væri þessi framsjallaflokkur að mestu leiti í grjótinu.  Þetta er almennt talinn bófaflokkur af óháðum fjölmiðlamönnum innanlands og erlendis er það vel þekkt og ekkert feimnismál eins og hér uppi í framsjallafásinni.  En dropinn holar steininn.   Gengur þó hægt fari.  Æskilegast væri að sópa framsjöllum svona hægt og bítandi bak við lás og slá - og henda svo lyklinum. 


Ríkisstjórn á rassgatinu.

Það gengur allt eftir fullkomlega er eg sagði fólki þegar Hörmungarstjórnin hrifsaði til sín völdin með ofsalygaofstopa.  Framsjallar rústa landi og lýð og gera ekkert annað en seilast í vasa hinna verr stæðu og færa hinum betur stæðu.  Það eina e.t.v. sem eg sá ekki alveg fyrir er hve lygasjúkt þetta er.  Þetta virðist ekki geta sagt nokkuð orð nema að ljúga.  Bókstaflega ALLT lygi sem frá þessu kemur.  Þvílík ömurð.  Þvílík niðurlæging fyrir land og lýð.


Bloggfærslur 19. nóvember 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband