Ríkisstjórnin virðist vera á fleygiferð með Ísland inní Evrópusambandið.

Eg get ekki séð annað en Ísland sé á fullu stími í átt að Brussel með núverandi ríkisstjórn við stýrið.  Þeir kynda vel í vélarúminu og kúrsinn viðist þráðbeinn.  Beint til Brussel.  Eg get ekki séð annað.  Orð og athafnir eru sitthvor hluturinn.  Það er ekki málið hvað menn segja heldur hvað menn gera.


Er ríkisstjórnin að reyna að koma Íslandi inní Evrópusambandið?

Um fátt er nú meira rætt manna á meðal en undarlegt háttalag ráðamanna hérna svokallaðra.  Hver stórundarlega uppákoman af annari eins og menn þekkja og þarf ekki að fara yfir þau ósköp.  

Skýringin á undarlega háttalaginu er kannski að ríkisstjórnin er að reyna að koma Íslandi inní Evrópusambandið. Þannig mundi háttalag ráðherranna meika einhvern sens.

Þ.e.a.s. að haga sér sem afkáranlegast í alla staði og spillingast svoleiðis að erfitt er að lýsa.

Eg sé ekki betur en ríkisstjórnin sé að reyna að snúa öllum innbyggjum til fylgis við Evrópusambandið með þessum undirfurðulega ráðslagi eða öllu heldur ráðleysis.


Það á ekki af almenningi að ganga hérna. Nú hefur indefens bæst við sem baggi á þjóðinni.

Það var ekki nóg að raða sjallaelítu og framsóknarfrængarði öllum á jötuna.  Nei!  Það þurfti að bæta indefens við líka!  Halló. 

Þvílíkt og annað eins maður minn lifandi.

Það á ekkert af Íslandi að ganga.

Maður fórnar bara höndum.

Margir flýja til Norðurlanda undan ógnarstjórn framsjalla og þjóðbelginga.


Bjölluat í Brussel.

Fátt hefur vakið jafnmikinn hlátur innbyggja síðari ár en bréfasendingar framsóknar- og sjallamanna til Brussel.

Þeir poppuðu upp með það, að nú ætti að afturkalla Aðildarumsókn.

Í stuttu máli, þá hefur enginn enn fundist sem skilur bréfið.  Svo furðulegt er efnisinnihald þess.  Ríkisstjórnin virðist ekki heldur skilja það.

Það væri framsóknarmönnum nær að sitja bara kyrrir heima hjá sér!   Gerandi sig svona að fífli með bjölluati í Brussel eins og hverjir aðrir pörupiltar eða jólajeppar, - þetta er svo skaðlegt fyrir landið drengir!  Landið og lýðinn.  

Þetta lítur út fyrir erlendum sem að nánast fávitar séu við stjórnvölin á landinu hérna.  Nánast fávitar.  


mbl.is Skiptir sér ekki af umræðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttir af ingjaldsfíflsbréfi framsóknarmanna: Það er sokkið!

,,Ég dreg því þá ályktun að viðræður séu í gangi en á þeim hafi verið gert hlé. Ný ríkisstjórn geti því tekið upp þráðinn að nýju ef henni sýnist svo. Þetta er meginatriði málsins," segir Össur að lokum."

http://www.dv.is/frettir/2015/3/17/esb-vidraedur-standa-enn/


Ríkisstjórnin verður þegar í stað að afturkalla bréfið sem utanríkisráðherra laumaðist með úr landi í trássi við þjóðina.

Það er eina skynsamlega leiðin úr þessu endemis klúðri sem sjallar og framsóknaróbermin hafa komið landinu í.  Þeir verða að draga bréfið tilbaka og lágmarka skaðann af vitleysisheimsu framsjalla og heimssýnar.  Það er ekkert hægt að senda bara eitthvert bréf frá sér og enginn skilur hvað stendur í því.  Gengur barasta ekki upp.  


Freki kallinn og kommon sens. Umhugsunarverður pistill Þórðar á Kjarnanum.

,,Það átti ágætlega við að Jón Gnarr tilkynnti að hann nennti ekki í forsetaframboð um helgina vegna þess að hann vildi ekki leggja það á fjölskylduna sína að standa andspænis „freka kallinum“ sem tröllríður íslenskum stjórnvöldum. Freki kallinn hefur sjaldan verið jafn sýnilegur og undanfarna daga. Hann holdgervist nú í utanríkisráðherra Íslands sem segir það bara vera „common sense“ að sniðganga þing, nefndir og þjóð við mótun utanríkisstefnu þjóðarinnar."

...

http://kjarninn.is/2015/03/common-sense-freka-kallsins/?utm_campaign=coschedule&utm_source=facebook_page&utm_medium=Kjarninn&utm_content=%E2%80%9ECommon%20sense%E2%80%9C%20freka%20kallsins


Hvenær ætla þeir Simmi&Baddi að afnema gjaldeyrishöft og koma með 800 milljarðana?

Aaa þeir ætla að svíkja það svikararnir stóru.

Utanríkisráðherra elítunnar svokallaður upplýsti í gær að þeir Simmi&Baddi hefðu samið um það um leið og gúffuðu í sig rjómapönnukökur á kostnað almúgans að svíkja kosningaloforð.

Aðrir eiga svo bara að hlýða.

Framsjallasvipan komin á loft og heimssýnartrúsöfnuðurinn virðist fús til að gerast böðlar á eigin eigin þjóð. 

Ógnarstjórn framsjalla er nú komin á fúll sving.  

 


Andstæðingar ESB hafa gert sig að fífli en jafnframt afhjúpað einræðistendensa sína og ofstækið forljótt.

Það er hryllingur að horfa uppá þá framsjalla og almenna þjóðbelginga og ruglustrumpa.  Þetta er hryllingur fyrir landið og lýðinn.  

Óhug slær á meginþorra þjóðar vegna einræðistilburðanna og ofstækisins.  

Þjóðinni er brugðið.  Sem vonlegt er. 


Það gengur eftir er eg sá fyrir, að framsjallarnir þora ekki að draga Aðildarumsókn að Sambandinu til baka.

Þeim framsjallaóbermunum hefði verið nær að gaspra aðeins minna á undanförnum árum, jafnvel þegja bara. 

Þetta er alveg með eindæmum hve lítilmennska framsjalla er á háu stigi.

Síðan, eins og Valgerður fv. forystumaður í framsókn bendir á, að núverandi forysta framsóknar hefur verið svo gríðarlega ómálefnaleg, hefur lýðskrumast svo mikið, - og það hefur haft áhrif á almenna flokksmenn.

Almennir framsóknarmenn eru vanir því að elta forystusauðinn og þess vegna er gríðarlegt ábyrgðarhlutverk af núverandi forystu framsóknar að ljúga og lýðskrumast.  

Framsókn er bara búin að vera.  Er rústir einar eftir fíflagang Gunnlaugssonar og indefens.  Marklausir bullukollar með allt niðurum sig pólitískt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband