Grikkir hafa komið sér í vond mál. Allir orðnir þreyttir á þeim.

Eftirfarandi mynd segir mikið.  Handtak Varoufakis fjármálaráðherra grikkja og Dijsselbloom fjármálaráðherra Hollands og formanns Euro hópsins.

Eitt af því undarlega við upplegg grikkja,  er að þeir halda að þeir getið hótað með úrgöngu úr Evruhópinum.

Málið er að það er engin hótun núna.  Það var það kannski 2011 en ekki núna.

varr2


Kom forseti sumra íslendinga að Al-Thani fléttunni?

Trúa menn því að Al-Thani, Thani sem var bróðir Emírsins þáverandi, hafi farið að taka þátt í slíku bara fyrir orð framsóknarmanna?  Eg trúi því ekki.

Það er einn sem hefur alltaf verið að sporterast til Katar.  Það er forseti sumra.  Blaðrandi þar eins og eg veit ekki hvað.

Gæinn er alltaf í Katar.


Evrópureisa Syriza-bræðra misheppnuð.

Það virðist flestra manna mál, að yfirreið þeirra Tsiprasar, Varoufakis og fleiri topp-aðila úr Syriza-bandalaginu um Evrópu hafi verið misheppnuð og afleitri strategíu hafi verið beitt.  

Sumir velta sérlega vöngum yfir framgöngu Varoufakis sem er leikjafræðingur og hefur skrifað mikið um ,,Game theory".

Einn umsagnaraðilinn sagði að það væri ekki að sjá að Varoufakis væri menntaður í þessu eða að þá hefði menntunin ekki skilað sér í strategíu hans.

Strategía Varoufakis í reisunni um Evrópu hafi verið líkt og maður sem væri sífellt með byssu á lofti en allt tal hans og orka til þeirra sem hann hitti miðaði að því, að sannfæra þá um að hann myndi ekki skjóta.

Er soldið til í þessu.  

Það er allavega ljóst að Syrzia-bræður hafa fengið fáa nýja fylgendur eða stuðning almennings með framgöngu sinni.  


Síðasta aftaka á Íslandi og lag Bubba þar um.

Að síðasta aftakan er þarna um 1830.  Að verða 200 ár.  Merkilegt hve Bubba tekst að draga fram aðalatriðin og hve í raun textinn er góður.  Segir margt.    Sýslumaðurinn Blöndal sá um framkvæmd, Breiðarbólspresturinn blessaði verkið og Natansbróðir var böðullinn.  Öxin sem var notuð er ennþá til, minnir mig, og gott ef ekki hluti höggstokks líka.   Taka ber eftir hvernig Bubbi opnar textann.  Alveg hroðalega sterkt.   Í einfaldleika sínum setur þessi texti atburðinn svo skýrt fram og þetta er svo rammað inn með sársauka og samúð, að telja verður afar vel gert. Taka ber eftir hvernig raunsæi er fléttað samanvið.  Í heildina dregur þetta svo vel fram hörku, kulda og tilgangsleysi. Hann er býsna gott skáld hann Bubbi.:

Kalt blés norðanvindur, janúarmorgun

er Agnes og Friðrik lögðu af stað.

Kaldur stóð bændaskarinn þeim var vorkunn.

Skelfdir horfðu á axarinnar blað".

...

http://www.bubbi.is/index.php?option=com_content&task=view&id=4


Áföllin ríða yfir Andsinna. Samið um frið í Ukrainu og Grikkir virðast vera að bakka frá öllum sínum stóryrðum.

Það er eins og Andsinnar og þjóðbelgingar hafi undanfarið vonast eftir full scale stríði þar austur frá og hoppuðu alveg hæð sína af kæti ítrekað  í hvert skipti sem ófriðarfréttir bárust.

Nú virðist sátt hafa náðst.  Nú verða Andsinnar daprir.

Eigi bætir ástand Andsinna, að svo virðist sem Grikkir séu að bakka frá öllum sínum helstu digurmælum.  Aðallega sé deilt um 3-4 orð í komandi samkomulagi ESB og Grikklands.

Í gær birtist fréttaskýring á CNN þar sem farið var yfir afhverju nánast væri óhugsandi að Rússar, Kína eða US færu að beila Grikkland út.

Eg veðja á að enginn íslenskur fjölmiðill muni fjalla um það efni.


Embættismönnum brugðið vegna yfirgangs sjalla.

,,Skattrannsóknarstjóra brá við orð Bjarna.

Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri, segir að sér hafi brugðið við orð Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra, í fréttum RÚV á laugardaginn. Þar gagnrýndi Bjarni embættið harðlega vegna mögulegra kaupa á gögnum um meint skattaundanskot Íslendinga erlendis."

...

http://www.ruv.is/frett/skattrannsoknarstjora-bra-vid-ord-bjarna


Bullið í lýðskrumurunum í Grikklandi toppar sig.

Nú vilja þeir stórar skaðabætur frá þjóðverjum.  Álíka vitlaust upplegg og ef Framsókn færi fram með það hér að danir skulduðu Íslandi hundruði milljarða á hundruði ofan og myndu þar styðjast við útreikninga Jón Sigurðssonar á 19.öld.

,,Athens (AFP) - Greek Prime Minister Alexis Tsipras said Sunday the country had a "moral obligation" to claim reparations from Germany for the damages wrought by the Nazis during World War II.

Greece had "a moral obligation to our people, to history, to all European peoples who fought and gave their blood against Nazism," he said in a key address to parliament.

Berlin has already sounded a firm "no" to requests for reparations nearly 70 years after the end of the war, but Tsipras and his radical left party have vowed to tackle the issue.

"Our historical obligation is to claim the occupation loan and reparations," the new PM said, referring to Germany's four-year occupation of Greece and a war-time loan which the Third Reich forced the Greek central bank to give it which ruined the country financially.

Tsipras's anti-austerity Syriza party claims Germany owes it around 162 billion euros ($183 billion) -- or around half the country's public debt, which stands at over 315 billion euros."

http://news.yahoo.com/greece-moral-obligation-claim-german-wwii-reparations-pm-192051560.html


Sjallaskandall.

Fá einstök mál hafa flett jafnrækilega af sjallaflokki og skattsvikamálið.  

Kemur ekki fjármálaráðherra í sjónvarp, og skammast og rífst í þjóðinni og megininntak er að nú eigi allir að þegja bara.

Bjarni fjármálaráðherra er einfaldlega búinn að vera sem pólitíkus.

Það getur ekkert traust orðið á þessum manni eftir að hann opinberaði sig svona.

Í venjulegur ríkjum væri þegar búið að fara niður á þing og henda sjöllum út og síðan væri framsóknarmönnum sópa burt í restina sem hverju öðru rusli.


Sjallar vilja ekki gögn sem gætu sannað stórfelld skattaundanskot.

Vilja það ekki.  Formaðurinn kom allt í einu fram í svjónvarpi í gær, fokvondur, og skammaðist í þjóðinni.  Færði sig því næst yfir á embættismenn og húðskammaði þá.  Maður vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið.  Slík var reiði Bjarna.

Afhverju var Bjarni svona reiður?

Afhverju vill Bjarni ekki fá þessi gögn uppá borð?


Andri Geir: Vaxtagjöld Íslands hærri en Grikklands!

,,Grískir stjórnmálamenn segja að Grikkland sé að kikna undan lánum. En er svo, er vaxtabyrði gríska ríkisins t.d. hærri en íslenska ríkisins?

Við fyrstu sýn virðist svo. Miðað við landsframleiðslu eru skuldir Grikklands 175% en 97% á Íslandi. En höfuðstóllinn segir ekki allt. Hver er vaxtakostnaðurinn af þessum lánum?

Vaxtagjöld íslenska ríkisins eru áætluð um 84 ma kr fyrir árið 2015 eða um 4.5% af landsframleiðslu. Samkvæmt nýlegum útreikningi sem birtist í Financial Times voru vaxtagjöld gríska ríkisins 2.6% af landsframleiðslu árið 2014. M.ö.o. vaxtagjöld í Grikklandi eru um 40% lægri þó höfuðstólinn sé um 80% hærri!

Hver er útskýringin? Jú Grikkir njóta þess að vera í ESB og hafa aðgang að ódýru fjármagni frá ESB rikjunum og Seðlabanka Evrópu. Íslenska ríkið er hins vegar fast í krónunni eða þarf að fara á rándýra erlenda markaði þar sem spekúlantar og hrægammar ráða kjörum.

Ef Ísland hefði aðganga að lánsfé á sömu kjörum og Grikkland væru vaxtagjöld ríkisins fyrir 2015 ekki áætluð 84 ma kr heldur 28 ma kr eða um 56 ma kr. lægri. Fyrir þessa peninga væri hægt að tvöfalda fjármagn til Landsspítalans og eiga um 20 ma kr í afgang til að borga niður skuldir.

Það eru nógir peningar til í landinu til að bæta innviðina og fjárfesta í framtíðinni.

Ísland hefur val."

http://blog.pressan.is/andrigeir/2015/01/28/vaxtagjold-islands-haerri-en-grikklands/#.VNZ911fU1jE.facebook


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband