Hvað er LÍÚ búið að veiða mikinn makríl?

Sérkennilegt að ekki skuli vera upplýsingar um hve mikið af makrílkvótanum sem LÍÚ setti sér er búið að veiða.  Hafa komið fréttir um að þessi eða hin fyrirtækin væru langt komin o.s.frv. - en hve mikið af heildarkvótanum er búið að veiða?

Athygli vakti að Grænland er búið að veiða 77.000 tonn og komu fregnir um það fyrir nokkru þó ekki hafa það birst hér uppi nema hjá mér.  Næstum búnir að veiða allan kvótann sem þeir settu sér sem var um 100.000 tonn,  minnir mig. 

En hvað er LÍÚ búið að veiða mikið í íslenskum sjó af heildarmakrílkvótanum sem þeir settu sér?

Það ætti að vera mjög einfalt að svara þessu. 


Framsóknarmenn sjá um sína. Nú vilja þeir vernda fjárglæframenn og ofur-ríka ásamt fv. útrásarvíkingum.

,,Sextán starfsmönnum Sérstaks saksóknara var sagt upp í morgun. Uppsagnirnar eru tilkomnar vegna lækkandi fjárframlaga til embættisins samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sagði í samtali við fréttastofu að uppsagnirnar væru afleiðing skertra fjárframlaga til embættisins í fjárlagafrumvarpi næsta árs."

http://www.ruv.is/frett/sextan-sagt-upp-hja-serstokum-saksoknara

Þetta kemur ekki á óvart og alveg í takt við eðli framsóknarmanna.  

Núna eiga bara allir að biðja fyrir framsóknarmönnum og þá fá þeir kannski gám að búa í sem þeir kaupa af framsóknarræflunum, verðtryggt og á okurvöxtum.

Þvílíkt andskotans hyski sem þessi Ójafnaðarstjórn er. 


Þjóðhagfræðilegar viðvörunarbjöllur klingja vegna framferðis framsjalla.

Ójafnaðarstjórn elítunnar og framsjalla eru að byggja upp kreppu í landi.  Allar þjóðhagfræðilegar tölur sýna það.  Ójafnaðarstjórnin er með allt á hælunum og öll þeirra gígantísku kosningaloforð reyndust hjómið eitt og beisiklí brútalt lygi.  

Getum tekið dæmi.  Ójafnaðarmenn ætluðu að gera svo mikið fyrir ,,heimilin í landinu hérna!".  Þeir fullyrtu það og lofuðu í mörg ár.  Hverjar eru efndirnar fyrir utan allar nefndirnar?  Jú, fólk fær kannski að búa í gámi ef það kaupir hann af framsóknargæðingi!

Þetta nær auðvitað engri átt.

Svo yfirgengilega mikil hörmung þessi elítustjórn auðmanna, ójafnaðarmanna og þjóðbelgings-nöttkeisa,  - að orð fá tæplega lýst. 


mbl.is Hallinn nálgast 12 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Sjallar búnir að endurgreiða ,,styrkina" eins og þeir sögðust ætla að gera? Sennilega ekki. Þeir fara undan í flæmingi og líklega voru þeir bara að ljúga því að endurgreiðsla væri planlögð.

,,Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki svara fyrirspurn Fréttablaðsins um framgang endurgreiðslu styrkja FL Group og Landsbankans frá árinu 2006.

Styrkirnir sem um ræðir eru 25 milljónir króna frá FL Group og 30 milljónir króna frá Landsbankanum."

... 

http://www.visir.is/neita-ad-upplysa-um-endurgreidslu-styrkja/article/2014709299991


Við þetta ríki vilja framsjallar, sérhagsmunaklíkur, ofur-ríkir, forseti og almennir þjóðbelgingar eiga sérstakt vina- og viðskiptasamband.

Hugsa sér að svona geti gerst.  Og allir láti bara eins og ekkert sé. 

Maðurinn og eiginkona hans hverfa bara!  Og yfirvöld neita að gefa nokkrar upplýsingar nema að þau segja að hann muni eigi koma aftur.  Upplýsingum um hann er barasta eytt.  það er eins og hann hafi aldrei verið til.

Er auðvitað sýnishorn af þvílíku einræðis- og mannréttindabrotaríki sem hugsast getur.

Jafnvel er búið að taka þau af lífi.  Hver veit.  Það veit enginn.

Hvernig í andskotanum hedur fólk hér uppi á skeri, að hægt sé að vera í sérstöku sambandi við svona ríki?  Það er barasta ekki í lagi með suma íslendinga.  Þeir eru svo ruglaðir.  Og forseti og framsóknarmenn eru þar í fararbroddi og þjóðbelgingar hanga í hala þeirra eins og helvítis fífl. 


mbl.is Nýr sendiherra Kína mætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raunstefna framsóknarflokksinns í málefnum ,,heimilanna í landinu hérna!": Allir eiga að búa í gámum.

Það linnir ekki skandaliseringum þeirra framsóknarmanna eftir að þeir komust með klækjabrögðum, sumir segja óheiðarlegum og ósiðlegum, að kjötkötlunum.

Það nýjasta í framsóknarbransanum er það að þeir hafa opinberað hver nákvæmlega stefna þeirra í málefnum almennings er.

Allir eiga að búa í gámum!

Það er ekkert betra en búa í gámi og vera best í heimi á öllum sviðum glóbalt og auk þess frábærlegust og þá sennilega af genatískum ástæðum grúndígt ásamt menningarlegum í bland. 

Ofansagt hafa þeir framsóknarmenn tilkynnt innbyggjum.

Sumir segja að skýringin á þessu afkáranlega háttalagi þeirra framsóknarmanna sé, að þeir hafi allir verið hálffullir og vitlausir þegar þeir sömdu þetta.

Jú jú, það er kannski einhver afsökun í því.  Vissulega. 


Sífellt fleiri innbyggjar fá upp í kok af framferði framsjallaelítunnar.

Það er alveg ljóst að sífellt fleiri sjá ofsa- og öfgaframferði framsjalla gegn almenningi og jafnframt tekur fólk auðvitað eftir því að þeir framsjallar og elítusnáðar eru pungsveittir alla daga við að moka fjármunum almennings undir elíturassana.

Sjallar eru að verða búnir að rústa heilbrigðiskerfinu á aðeins einu ári.  Læknar flýja nú undan þeim sjöllum hver sem betur getur.  Annað eftir því.

Framsóknarmenn náttúrulega bara eins og fífl líkt og vant er síðari áratugi með það flokkræksni.

Framsjallar eru barasta að rústa þessu samfélagi.  Eyðileggja það.  

Það virðist vera sem strategía framsjalla varðandi rústalagningu sé tvíþætt núna.  Þ.e.a.s. að bæði ætla þeir að rústa efnahagslega - og jafnframt ætla þeir að rústa samfélaginu.

Er gjörsamlega óskaplegt hvernig elítusnáðarnir haga sér og það virðist aðeins vera til eitt ráð til að stoppa þá af.

Etitt ráð.  Nefnilega að einhver labbi sér þarna niður á Austurvöll og hendi þessu barasta útum gluggann.  

Eg er ekki að sjá að þeir muni hætta rústalagningaáformum sínum fyrr en að þeir lenda á elíturassinum í drullupolli fyrir utan gluggann einhversstaðar þarna niðurfrá. 


Sýrðir sjallar.

Ef þetta er ekki dæmigert fyrir sjalla - þá veit eg eigi hvað.

Það er alveg sama hverju þessir menn koma nálægt, að allt skal miðast við að berja á almúganum og níðast á þjóðinni. 

Óvita- og afglapahátturinn algjör líkt og krúsíalt lygavælan sem frá þessu kemur ásamt própagandahroða.  Yfirgengilegt svo af ber.

Eigi bætir það sjalla á nokkurn hátt að hafa framsóknarvitleysingana sem vikapilta.  

Framsóknarmönnum tekst alltaf að gera vont verra. 


mbl.is Undanþágan verði afnumin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rífandi gangur í efnahagslegum óvitaskap framsjalla.

Það stefnir allt í öfuga átt í efnahagsstærðum og ef þjóðhagfræði er beitt á efnið - kvikna rauðu ljósin.  Viðvörunarmerkin.

Það er allt þveröfugt við það sem sjallar sögðu.  Þveröfugt.  Látum nú vera þó ekkert standi sem framsóknargemsarnir segja enda reiða þeir nú ekki vitið í breiðum þverpokum sem kunnugt er.

Einkaneysla eykst, útflutningur minnkar, innflutningur eykst mikið og fjárfestin er ekki neitt neitt og miklu miklu minni en spáð var.

https://www.arionbanki.is/library/Skrar/Greiningar/onnur-efnahagsmal/190914_Landsframlei%C3%B0sla_Q2.pdf

Það þarf víst ekki að segja mönnum hvað þetta þýðir, býst eg við. 


Skilaboð framsóknarmanna til unglingahjarðar þessa lands: Dettið í´ða!

Það hefur vakið nokkra furðu meðal landsmanna predikanir framsóknarmanna á fundikvöldi hjá háskólanemum.  Þar komu framsóknarmenn, óboðnir að eigin sögn, og fluttu fram erindisstúfa um sín hugarefni, pólitísk sem önnur.

Athygli vakti að meginboðskapurinn til unglinganna virtist vera,  að allir ætti núna bara að fara á fyllerí.  Verða blind, rúllandi fullir.  Vera á framsóknarrassgatinu, eins og sagt er um fulla menn.

Velta menn talsvert vöngum yfir þessu.

Segja sumir að nú sé af sem áður var þegar framsóknarmenn fóru til kosninga með það að uppleggi að ísland yrði vímuefnalaust árið 2000.  Núna eiga bara allir að detta í´ða 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband