Sjallasnillingur: Hugsanlegt að skuldaniðurfellingar verði í fokki.

,,Hugsanlegt að afturkalla hluta aðgerðanna.

Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnisstjóri um framkvæmd höfuðstólslækkunar íbúðalána, segir hugsanlegt að hluti aðgerðanna verði tekinn til baka, fari svo að ekki fáist fjármögnun fyrir þeim. Aðgerðin sé háð fjármögnun.

Þetta kom fram í viðtali við Tryggva Þór í Morgunútgáfunni.

Fram kom í fréttum RÚV í gær að þrotabú Glitnis hyggist láta reyna á lögmæti bankaskatts fyrir dómi, en honum er ætlað að fjármagna lækkun húsnæðislána. „Ég held að varaplanið sé alltaf það að afturkalla hluta aðgerðanna, þetta er háð fjármögnun á hverju ári,“ segir Tryggvi Þór.

Tryggvi Þór bendir á að aðgerðin sé í raun fjármögnuð úr ríkissjóði. „Þrátt fyrir að stjórnmálamenn hafi beintengt þetta því að skatturinn sé lagður á út af þessu, þá er það í raun og veru ekki hægt, vegna þess að aðgerðin hún er bara fjármögnuð úr ríkissjóði, og einn af þeim sköttum sem voru hækkaðir til þess að standa undir heildarútgjöldum ríkissjóðs, voru bankaskattarnir. Þannig að það er ekki alveg hægt að beintengja það, þrátt fyrir að stjórnmálamenn geri það í umræðunni."

http://www.ruv.is/frett/hugsanlegt-ad-afturkalla-hluta-adgerdanna


Bloggfærslur 3. september 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband