24.9.2014 | 19:19
Sýrðir sjallar.
Ef þetta er ekki dæmigert fyrir sjalla - þá veit eg eigi hvað.
Það er alveg sama hverju þessir menn koma nálægt, að allt skal miðast við að berja á almúganum og níðast á þjóðinni.
Óvita- og afglapahátturinn algjör líkt og krúsíalt lygavælan sem frá þessu kemur ásamt própagandahroða. Yfirgengilegt svo af ber.
Eigi bætir það sjalla á nokkurn hátt að hafa framsóknarvitleysingana sem vikapilta.
Framsóknarmönnum tekst alltaf að gera vont verra.
Undanþágan verði afnumin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 25.9.2014 kl. 00:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2014 | 11:26
Rífandi gangur í efnahagslegum óvitaskap framsjalla.
Það stefnir allt í öfuga átt í efnahagsstærðum og ef þjóðhagfræði er beitt á efnið - kvikna rauðu ljósin. Viðvörunarmerkin.
Það er allt þveröfugt við það sem sjallar sögðu. Þveröfugt. Látum nú vera þó ekkert standi sem framsóknargemsarnir segja enda reiða þeir nú ekki vitið í breiðum þverpokum sem kunnugt er.
Einkaneysla eykst, útflutningur minnkar, innflutningur eykst mikið og fjárfestin er ekki neitt neitt og miklu miklu minni en spáð var.
https://www.arionbanki.is/library/Skrar/Greiningar/onnur-efnahagsmal/190914_Landsframlei%C3%B0sla_Q2.pdf
Það þarf víst ekki að segja mönnum hvað þetta þýðir, býst eg við.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)