Skilaboð framsóknarmanna til unglingahjarðar þessa lands: Dettið í´ða!

Það hefur vakið nokkra furðu meðal landsmanna predikanir framsóknarmanna á fundikvöldi hjá háskólanemum.  Þar komu framsóknarmenn, óboðnir að eigin sögn, og fluttu fram erindisstúfa um sín hugarefni, pólitísk sem önnur.

Athygli vakti að meginboðskapurinn til unglinganna virtist vera,  að allir ætti núna bara að fara á fyllerí.  Verða blind, rúllandi fullir.  Vera á framsóknarrassgatinu, eins og sagt er um fulla menn.

Velta menn talsvert vöngum yfir þessu.

Segja sumir að nú sé af sem áður var þegar framsóknarmenn fóru til kosninga með það að uppleggi að ísland yrði vímuefnalaust árið 2000.  Núna eiga bara allir að detta í´ða 


Svokölluð ísl. króna veikist og veikist.

Það er augljóst að eitthvað er í gangi og ef ekki koma afmarkaðar skýringar á þessu - þá er um að ræða undirliggjandi þrýsting sem líklegasta orsakast af afglapa- og óvitahætti Ójafnaðarstjórnarinnar.

http://www.m5.is/?gluggi=gjaldmidill&gjaldmidill=22

Merkilegt samt að enginn fjölmiðill hafi tekið eftir þessari veikingu.

Sem dæmi, þá flutti LÍÚ-Moggi og framsjallafjölmiðlar allir ásamt sérlaunuðum vikapiltum sínum, linnulítið mörgum sinnum á dag á marga, marga mánuði og ár, löng og stutt erind  þegar alvörugjaldmiðilinn Evra var að veikjast gagnvart dollar eitthvað brota, brota, brota brota brot úr prósenti.

Soldið átsetending. 


Bloggfærslur 23. september 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband