Ras-Pútín vill færeyskan makríl.

Keyparar í Russlandi sýna stóran áhuga fyri teimum, sum selja makrel úr Føroyum, nú Ísland hósdagin kom á svartalistan hjá Russlandi.  Bogi Simonsen, sølumaður hjá North Pelagic, sum selur fyri klaksvíksskipini Norðborg og Christian í Grótinum, væntar, at russisk skip fara at selja meira av sínum makreli í Russlandi í staðin fyri í øðrum londum, sum tey gera nú fyri at fáa fremmant gjaldoyra. Samstundis sum Ísland nú misti russiska marknaðin, er Nigeria framvegis at kalla afturlatið, tí innflytarar fáa ikki dollarar ella annað fremmant gjaldoyra at keypa fyri. http://kvf.fo/greinar/2015/08/15/russar-vilja-hava-foroyskan-makrel#.Vc87b_ntmko

 


Eru Aðildarviðræður framsóknarflokksinns við Sambandið þegar byrjaðar?

,,Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ræddi í dag við Federicu Mogherini utanríkismálastjóra Evrópusambandsins um þá stöðu sem upp er komin vegna innflutningsbanns Rússa á íslensk matvæli. Gunnar Bragi staðfesti þetta í samtali við fréttastofu. Hann segir að í því samtali hafi verið ákveðið að embættismenn á vegum íslenskra stjórnvalda og Evrópusambandsins fundi í næstu viku..." http://www.ruv.is/frett/gunnar-bragi-raeddi-vid-esb-um-tollamal

 


Ísland verður þegar í stað að ganga í ESB.

Það er ljóst orðið hve heimskulegt það var af forseta, framsóknarmönnum og almennum þjóðrembingum að hengja hagsmuni lands á herðar rússa.  Manni dettur ekki í hug að fólkið sem stóð fyrir þessum ósköpum sé með öllum mjalla. Hengja sinn hatt á Putin og svoleiðis kóna.    Samt kaus meirihluti innbyggja þetta til einvalda slag í slag, trekk í trekk.  Nú verður að bregðast hart við og ganga til Brussel.


Ísland sett á bannlista Putins.

,,Rússar hafa sett innflutningsbann á matvæli frá Íslandi og fjórum öðrum ríkjum, samkvæmt yfirlýsingu frá Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands í dag. Íslandi hefur þannig verið bætt á lista Rússlands yfir þau lönd sem óhemilt er að flytja inn matvæli frá. Löndin sem bætast við á listann, þar sem Evrópusambandsríkin eru fyrir, eru Albanía, Svartfjallaland, Ísland, Liectenstein og Úkraína, samkvæmt rússneska fréttamiðlinum Sputnik News."

http://kjarninn.is/2015/08/island-a-innflutningsbannlista-russa/


Forsætisráðherra er í Færeyjum á fundi Vestnorræna ráðsins

sem er samkomuhaldshópur 2 eða 3 landa, að eg tel.  Margir kappar eru án efa í fylgdarliði forsætisráðherra.  ,,Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, heldur í dag til Færeyja í tilefni af því að 30 ár eru liðin frá stofnun Vestnorræna ráðsins. Ráðherrann mun taka þátt í hátíðardagskrá í tilefni af afmæli ráðsins og halda þar erindi um gildi vestnorrænnar samvinnu á norðurslóðum." http://www.forsaetisraduneyti.is/frettir/30-ar-lidin-fra-stofnun-vestnorraena-radsins


Gunnar Bragi styður upplegg Jafnaðarmanna og ESB. Batnandi manni best að lifa.

Ummæli Utanríkisráðherra eru aveg í línu við ESB þingið sem hefur greitt atkvæði þar sem mikill stuðningur var við Sænska módelið.

,,In February 2014, the members of the European Parliament voted in a non-binding resolution, (adopted by 343 votes to 139; with 105 abstentions), in favor of the ,,Swedish Model" of criminalizing the buying, but not the selling of sex."


mbl.is Vændi ekki atvinnugrein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munurinn á Sgt.Peppers og Their Satanic Maj­esties Requ­est

er auðvitað að sú fyrrnefnda heppnaðist fullkomlega en hin síðarnefnda ekki.

Það er vissulega rétt hjá Richards, að með Sgt. Peppers fara Bítlarnir í nýja átt eða þróast á óvæntan hátt en það er ekki rétt hjá honum að músíkkin á plötunni hafi ekki rætur.  Ræturnar liggja einfaldlega víða.  Í vestrænni klassík, karnival, blásturshljóðfæraböndum, þjóðlagahefð, tlraunamennsku og indverskum hljóðheimi, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Trikkið við plötuna er hvernig ólíkum bútum er raðað saman á þann hátt að platan myndar eina heild og kemur fram sem sjálfstætt listaverk sem stendur tímans tönn.  

Það voru margir sem reyndu þetta en fáum tókst vel upp   Með snjallri og víðtækri útfærslu á þessari hugmynd tókst Bítlunum að setja sitt mót á alla tónlistarlega framvindu og marka spor sem verða ekki afmáð.

Og þetta var ekki í eina skiptið.  Flestar síðari plötur þeirra bera í raun sömu einkun.  Þeim tókst einhvernvegin alltaf að fanga samtíman, fanga stemminguna á hverju ári fyrir sig í lok 7. áratugar og færa þá stemmingu í tónlistarverk.


mbl.is Keith Richards skýtur á Bítlana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það gekk allt eftir sem ég sagði fyrir um í Grikklandsmálinu.

Ég sagði strax þegar aðalupplegg lýðskrumshóps Syrisaflokks komst uppá yfirborðið: Þetta er óraunsætt vegna þess einfaldlega að það er ekki hægt.

Það gekk og eftir.  Var ekki hægt.

Ég sá líka strax í gegnum Varoufakis.  Ég sagði:  Þetta er bullukollur.

Það gekk eftir fullkomlega.  Hann var á endanum rekinn bara og nú reynir hann að verjast í dómssölum,

Það merkilega er, að allir féllust ekki á mínar ábendingar í byrjun.  Samt var þetta frekar augljóst.

Ég benti líka á að alltaf væri óljóst hvar nákvæmlega Tsipras stæði.  

Það kom líka í ljós.  Það er í raunn ennþá ekki alveg ljóst hvar hann stendur og hvernig hann muni höndla framhaldið.

Svo skrítilega sem það kann að hljóma, þá hefur Tsipras núna viss færi í stöðunni.  

Og þá aðallega vegna þess að ruglið undanfarin misseri hefur veikt flest önnur pólitísk öfl eða einstaklinga og Tsipras hefur náð ákveðnum status og fáir virðast ógna pólitískri stöðu hans.  

Nema þá það yrði innanflokks en svo virðist samt sem hann hafi að mestu stjórn innan flokksinns.  Mótstöðumenn hans innan Syrisa virðast mun veikari en margir reiknuðu með.

Þetta sá ég allt fyrir fyrir margt löngu og upplýsti fólk um það.


Bændur hafa það miklu miklu betra í ESB en undir óskaparstjórn heimssýnar, framsjalla og almennra þjóðrembinga hér.

,,Í úttekt sem birt var fyrir helgi á vef Landsamtaka sauðfjárbænda sauðfé.is, kemur fram að afurðaverð til Íslenskra sauðfjárbænda er með því allra lægsta sem þekkist í Evrópu. Í úttektinni kemur fram að Íslenskir sauðfjárbændur fá 604 kr að meðaltali fyrir hvert kíló en td. Franskir sauðfjárbændur fá um 950 krónur að meðaltali fyrir hvert kíló sem er um 60% hærra verð."

http://www.641.is/saudfjarbaendur-vilja-sanngjorn-vidskipti/

Það kominn tími til að andstæðingar ESB biðjist afsökunnar á lygaþvaðri sínu og böðulshætti gagnvart íslenskum bændum.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband