Stone-throwers gegn ísraelska hernum á Vesturbakka.

Það er í sjálfu sér alveg umhugsunarvert hve miklum usla steinakastarar geta valdið.  Ísraelski herinn er í vandræðum gegn þeim.  Oft nota steinakastar líka teygjubyssur með eða slöngvuvaða.  Nú er ísraelsstjórn búin að samþykkja ný lög sem heimila harðar aðgerðir hersins gegn steinakösturum.  Löng fangelsisvist auk þess sem leyft er núna að skjóta þá barasta á færi, að ég held.   Þetta er auðvitað dæmt til að enda með ósköpum hjá ísraelum.  Aðallega unglingar sem eru steinakastarar og jafnvel börn. En steinakastararnir hafa stundum valdið talsverðum usla td. þegar þeir komast að vegum eða hraðbrautum að landránsbyggðum og ná þá að koma að óvörum og kasta á bíla og farartæki.  Það er auðvitað alveg fáránlegt að sjá þetta á myndbandi.  Þ.e. steinakastara gegn fullkomnum her. Alveg súrrealískt. (Og þetta er bara smá sýnishorn)

 


mbl.is Átök við Al-Aqsa moskuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yitzhak Rabin fimmti forsætisráðherra Ísraels 1976: Landnemahugmyndafræðin er krabbamein sem leiðir til aðskilnaðarstefnu.

,,In 1976 interview, Rabin likens settler ideologues to ,,cancer", warns of ,,apartheid" Never before heard comments show a prime minister frustrated with ,,one of the most acute dangers" facing Israel".  http://www.timesofisrael.com/in-1976-interview-rabin-likens-settlements-to-cancer-warns-of-apartheid/


Þýskaland gegn Brazil 2014, tímamótaleikurinn mikli.

Þetta var í undanúrslitum HM og flestir bjuggust við jöfnum og spennandi leik.  Brazil á heimavelli og hafði svo sem ekki sýnt neinar rósir í keppninni aldrei þessu vant en höfðu gert það sem þurfti að gera.  Varnarleikur þeirra hafði verið með ágætum.  Höfðu leikið þennan nútíma S-Ameríska varnarleik, agaðann og einbeittann.

Þegar leikurinn síðan byrjar fékk maður strax á tilfinninguna að eitthvað merkilegt gæti gerst.  Brazil breytti útaf frá fyrri leikjum í keppninni, voru með vörnina framarlega og virtust ætla að setja þjóðverja undir pressu.  Strategían sennilega að reyna að setja þá úr jafnvægi, koma á óvart o.s.frv., vel studdir á heimavelli.

Þessi strategía Brazil var dáldið brött.  Og minnti á strategíu Argentínu gegn þjóðverjum á HM 2010 þegar Maradonna var þjálfari.  Þjóðverjar rúlluðu þá yfir Argentínu 4 eða 5 núll og mörkin hefðu getað orðið fleiri.  Maradonna fékk þá mikla gagnrýni á sig eftir leikinn og sumir sögðu hann hafa látið liðið leika barnalega taktík.

Vegna þess að mörg undanfarin ár hefur sýnt sig að það sem 21. aldar liði þjóðverja líkar best er að fá mótherjann uppá völlinn þannig að myndist stór svæði á bakvið.  Sjálfir eru þeir með þéttan varnarpakka en sækja svo snöggt fram á mörgum mönnum og inní auðu svæðin.  Það hafði oft sýnt sig að þetta mátti alls ekki bjóða þjóðverjum.

Nú nú.  Leikurinn byrjar og Brazil bara virtist ætla stefna á blússandi sóknarleik.  Viðvörunarbjöllur hringdu og þýskarar greinilega í toppformi,  ekkert stressaðir, gríðar hraðir og mikil hreifing og færslur á liðinu,  allur völlurinn notaður.

Það var eins og Brazilmenn yrðu hálf hissa og gerðu mistök á mistök ofan.  Í raun færðu þeir þjóðverjum hluta markanna hálfpartinn að gjöf.  Gerðu flest rangt, fóru alltof oft út úr stöðum sem mátti alls ekki gera ofaní leikaðferð þeirra.

Fyrst Brazil ætlaði að spila vörnina svo framarlega þá var krúsíalt að menn væru agaðir og héldu sínum stöðum og svæðum.  Útkoman gat varla orðið önnur en að þýskarar sundurspiluðu lið Brazil aftur og aftur og það stóð ekki steinn yfir steini.

Það er alveg umhugsunarvert að svo reynt lið sem Brazil er og fær þjálfari, að þeir skildu hreinlega leggja í leikinn eins og þeir gerðu.  Þeir hefðu þurft að mæta í leikinn af mikilli hógværð sem litla liðið, má segja.  

Brazil hefði þurft að leika aftarlega, sérstaklega í byrjun, vera þéttir og alls ekki gefa þjóðverjum færi á að koma svo hratt á þá og fá svo stór svæði.  Þannig hefðu þeir hugsanlega getað unnið sig inní leikinn hægt og bítandi með stuðningi áhorfenda eins og veikari lið gera oft gegn sterkari liðum.  


Það er ekki hægt að gera neitt því þá tryllast sjallar.

Um fátt hefur verið rætt meira á Íslandi undanfarin dægur en þegar sjallar gjörsamlega trylltust þegar fordæma átti landránsstefnu Ísraels og ólöglega starfsemi þeirra á hernumdum svæðum.  Nei nei,  Það mátti ekki sögðu þeir og eftir fylgdi þvílíka tryllingsskapurinn, að flestum íslendingum er brugðið.  Subbustjórnmál sjalla hafa gengið fram af flestum og ljóst er að fáir munu fást til að kjósa þá á næstunni ódrukknir.


mbl.is „Borgarstjórn má ekki sópa þessu undir teppið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bubbi tekur af skarið. Setur ÚS í bann.

,,Bubbi Morthens hefur fetað í fótspor Ljótu hálfvitanna og tilkynnt að hann banni Útvarpi Sögu að spila lög sín, bæði þau sem hann hefur þegar hljóðritað og eins þau sem hann kunni að semja í framtíðinni. Þetta bann segir hann að gildi svo lengi sem stöðin ali á fordómum og mannhatri."  (RUV)

Frábært.  Bubba á Bessastaði.


Afhverju var kosningaloforð framsóknar um niðurfellingu skulda hroðalegt?

Vegna þess einfaldlega, að það lá altaf fyrir að í framkvæmdinni yrðu það hinir verst stæðu sem borga hluta skulda hinna betur stæðu.

Það er eins og sumir skilji þetta ekki.  Sumir virðast halda að vondu bankarnir láti þetta hverfa bara einhvernvegin.

Það er ekki svo.  það eru aðallega hinir verst stæðu í þjóðfélaginu sem eru að borga lán efri  millistéttar og elítu.

Það er alveg ótrúlegt að í umræðunni skuli þetta aðalatriði fara framhjá flestum.

Þetta ljóta framsóknarhneyksli sem sjalla vitleysingarnir eru meðsekir í er einhvert besta dæmið um árangur öfga própaganda.  

Stanslaus andskotans áróður frá nánast brúnstökkum framsóknar.

Hinir verst stæðu í samfélagi sitja svo eftir með sárt ennið.


Holland á HM í fótbolta 1974 gegn Brazil. Kennslubókardæmi.

Það er merkilegt hve Holland var langt á undan tímanum þarna að sumu leiti.  Mér sýnist þeir vera að leika svæðisvörn með strangri rangstöðutaktík og hápressu.  Hver fann upp svæðisvörnina í fótbolta?  Var það ekki Ítalía fyrst en svo þróaðist dæmið náttúrulega og þróaðist og í dag er búið að skilgreina alla reiti vallarinns í hengla.  Það er margt umhugsunarvert þarna.  Td. sést vel hve völlurinn er miklu þyngri en í dag.  Ennfremur hve hollendingar beita ,,total football" teoríunni strax þarna 1974.   Taka ber eftir hve þeir eru mikið að hoppa uppúr tæklingum.  Dómgæslan var soldið öðruvísi þarna og tæklingar oft glæfralegar.  Holland tók hina miklu knattspyrnuþjóð Brasilíu í bakaríið í þessum leik og komu þeim algjörlega í opna skjöldu.  Á þessum tíma var ekkert spilað annað hér á landi en enski boltinn uppá gamla lagið, langar sendingar fram á framherjana sem áttu svo að gera einhverjar rósir uppá eigin spýtur:


Mikill er áhrifamáttur gyðinga. Nú eru þeir farnir að stjórna vatnssölu í New York og setja vatnsbrúsa í og úr hillum að vild.

Þetta er talsvert merkilegt.  ,,New York borg er næst­um al­gjör­lega stjórnað af gyðing­um þegar kem­ur af þeim versl­un­um sem selja vatnið frá okk­ur,"  seg­ir Jón." (mbl.is)


mbl.is Dugar ekki að breyta tillögunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsjallar og þjóðrembingar semja um Icesaveskuld landsins. Rífandi gangur.

,,Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta hefur náð samkomulagi við hollenska seðlabankann (DNB) og breska innstæðutryggingasjóðinn (FSCS) um lokauppgjör krafna vegna Icesave. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta."

 http://kjarninn.is/2015/09/samningum-nad-um-lok-icesave-deilunnar-20-milljardar-greiddir-til-hollands-og-bretlands/


Rífandi gangur í Aðildarviðræðum Íslands við Sambandið. Landbúnaðarkaflinn nánast fullfrágenginn.

Og í dag þykir það bera besta mál.  Að Ísland sé á leið í Sambandið.  Samið um landbúnaðinn að miklu leiti, - og allt gert leynilega.  Einn daginn vakna íslendingar upp, - og þá er búið að semja við ESB.  Þjóðrembingar teknir í bólinu enda einbeita þeir sér aðallega að því núna að Ísland megi aldrei hjálpa neinum.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband