19.3.2014 | 15:28
Garmurinn snappar. Það má ekki gagnrýna Putin. Ræðst með offorsi að Norðmönnum og verður íslendingum til stórskammar.
,,Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands skammaði aðstoðarevrópumálaráðherra Noregs fyrir að fordæma framgöngu Rússa á Krímskaga á Norðurslóðaráðstefnu í Bodö í Noregi í dag. Vildi Ólafur Ragnar meina að þetta væri ekki rétti vettvangurinn til þess að því er segir á vef norska staðarfréttablaðsins Avisa Nordland í dag"
http://www.dv.is/frettir/2014/3/19/forsetinn-skammadi-norskan-erindreka/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2014 | 12:10
Framsjallaspillingin alræmda.
,,Ferð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra til Edmonton í Kanada á dögunum var alfarið í boði Icelandair. Um var að ræða auglýsingaferð til að kynna jómfrúarflug flugfélagsins til borgarinnar. Ferðin var kynnt sem vinnuferð en Sigmundur Davíð ferðaðist á fyrsta farrými í boði Icelandair. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, staðfestir í samtali við DV að fyrirtækið hafi greitt flug Sigmundar Davíðs til Edmonton. Hann segir að fyrirtækið hafi einnig borgað gistingu forsætisráðherra meðan hann dvaldi í borginni. Eiginkona Sigmundar sem og aðstoðarmenn hans, Jóhannes Þór Skúlason og Jörundur Valtýsson, voru með honum í för.
Á eftirhrunsárunum voru boðsferðir embættismanna íslenska ríkisins mikið á milli tanna almennings og talið óeðlilegt af flestum að embættismenn þægju slík boð frá fyrirtækjum í einkaeigu. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar, viðurkennir fúslega að ferðin hafi verið boðsferð í samtali við DV en segir ferðina ekki brjóta gegn siðareglum ráðherra þar sem hann hafi hitt kanadíska embættismenn í ferðinni."
http://www.dv.is/frettir/2014/3/19/sigmundur-flaug-fritt-fyrsta-farrymi-F1U0LH/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2014 | 00:18
Vond ríkisstjórn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)