Framsjallaóstjórnin ætlar að þvinga þriggja milljarða gælu- og furðuverkefni framsóknarmanna á herðar innbyggja.

,,Fjárlaganefnd leggur til í nefndaráliti sínu við fjárlagafrumvarp næsta árs að 75 milljónum verði varið til að hefja undirbúning og hönnun að 4.500 fermetra skrifstofubyggingu fyrir Alþingi í stað leiguhúsnæðis og 750 fermetra bílakjallara. Kostnaðaráætlun við bygginguna nemur 2,3 milljörðum króna og gert er ráð fyrir að hún rísi á árunum 2017 - 2019."

http://www.ruv.is/node/969797


Drap franski herinn 1/10 af alsírbúum í byrjun 7. áratugarins? Athyglisverð grein.

,,Franski herinn drap einn tíundahluta Alsírbúa í sjálfstæðisstríði þeirra í byrjun sjöunda áratugs síðustu aldar, sem enn situr í frönskum Alsírbúum sem og Alsírbúum almennt. Eins hafa Frakkar að mestu fylgt utanríkisstefnu Bandaríkjanna upp á síðkastið, einkum þó í stríðinu gegn hryðjuverkum. Stríði sem getur aldrei unnist og beinst að hverjum þeim sem Vesturlönd telja til óvina sinna í það skiptið, óstýrilátum leiðtogum sem skortir samstarfsvilja og/eða þeir sem hefta aðgang þeirra að auðlindum sem Vesturlönd telja sig eiga tilkall til." http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Gudrun_Margret/atok-villimennsku-og-sigur-ofgaafla-evropa-fekk-loksins-sinn-11.-september


Gengur fólk í framsjallaflokk til að fá sinn skerf af spillingu?

Það er varla að sjá neina aðra ástæðu.  Og meirihluti innbyggja styður framsjallaspillinguna.  Þetta land er meira og minna ónýtt eftir framsjalla.  Heilbrigðis- og menntakerfi laskað og brotið.  Framsjallar búnir að eyðileggja það.  Hver spillingarfrétt af annari af framsjöllum ríður yfir landið eins og atlandshafslægðirnar.  Meirihluti innbyggja virðist vilja spillinguna og láta framsjalla flengja sig og rýja inn að skinni.  


Bæði faðir og afi formanns fjárlaganefndar voru oddvitar og hreppsstjórar í Hraungerðishreppi, Flóa.

Sennilega samtímis. Bæði oddvitar og hreppsstjórar. Þ.e.a.s. alræðisvald á hreppaleveli: ,,Gott samband er á milli þeirra Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins og formann fjárlaganefndar Alþingis, og Guðna Ágústssonar, fyrrverandi formann og ráðherra flokksins. Þau rífast samt stundum. Guðni er mágur Vigdísar. (...) Afi var oddviti og hreppstjóri og pabbi líka. Ég gekk í Framsóknarflokkinn þegar ég var að verða 18 ára." http://www.vb.is/frettir/rifst-vid-gudna-agustsson/95317/


Framsjallar og almennir þjóðrembingar hamast við að eyðileggja landið.

Það er rífandi gangur í rústalagningunni hjá framsjallabjálfunum.  Heilbrigðis- og menntakerfið fá aldeilis að kenna á því hjá framsóknarmönnum.  Hatur þeirra á þjóðinni virðist ótæmandi og þeir níðast á henni á allan hátt á sama tíma og þeir moka svoleiðis fjármunum til framsjallaelítunnar.  Nú, millastéttin í slagtogi við sjallaelítu réðist núna fyrir stuttu á ríkiskassann og tók þar með ofbeldi um 100 milljarða og stungu í vasann.  Á meðan dynur framsóknarsvipan á almenningi og þeim er veikast standa í samfélagi.   Sjallar virðast njóta þess alveg sérstaklega að geta meitt og skemmt sem mest.   Það er engu líkara en háttalag framsjalla einkennist fyrst og fremst af tvennu.  1. Græðgi elítunnar og millastéttar.  2.  Hrein illgirni gagnvart þjóðinni. Framsjallar virðast hata þjóðina.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband