Elítustjórnarflokkarnir ráðast að þjóð sinni og taka til óspilltra handanna við að færa fjármuni til elítunnar frá smælingjunum.

Öllum jöfnuði skal útrýmt og barið duglega á almenningi.   Gagnrýnendir og þeir sem benda á ofsagjörðir þessara manna mega búast við ofsóknum af hendi elítuflokkanna.  Framsóknarþingmenn hafa nú flett af sér grímunni og þá kemur í ljós að mestanpart eru þetta elítumenn sem ætla að hygla sjálfum sér og frændgarði - eins og vanalega þegar um framsóknardindla er að ræða. 

Það er alveg merkilegt og verðlaunarvert hve þjóðin lætur framsóknarflokkinn endalaust lokka sig í gapastokkinn.

Sjallamannaflokkur kemur eigi á óvart og fylgir sínum auðmanna og elítuprinsippum.

þetta er óhugnalegt og umtalsverð hætta á að elítan rústi landinu hérna bæði vegna óvitaháttar og heimsku pólitísku armanna og í annan stað vegna þess hve græðgislega þeir framsjallar graðka í sig feitu bitunum úr þjóðarkjötkatli. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband