13.11.2013 | 12:18
Forsætisráðherra framsóknarmann verður sér til athlægis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.11.2013 | 21:56
Er Sigmundur Davíð á leið útúr stjórnmálum? Og velur sér eftirmann?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.11.2013 | 17:40
Hvað er ríkisstjórnin búin að gera fyrir ,,heimilin í landinu hérna!"
Það er liðið 1/2 ár frá því að þetta óskaparlið komst að kjötkötlunum undir því yfirskini að það ætlaði að gera svo mikið fyrir ,,heimilin í landinu". Nú, aðgerðirnar sem elítustjórnin hefur ráðist í fyrir ,,heimilin í landinu" eru - hverjar?
Eg hef ekki séð eina aðgerð fyrir ,,heimilin í landinu". Hinsvegar hefur þessi ójafnaðarstjórn mokað milljörðum til auðugasta hluta landsmanna á kostnað sjúklinga og hinna alverst stöddu í samfélaginu.
Ef þetta lið kynni nú yfir höfuð að skammast sín - það væri nú hátíð. En þetta kann ekki að skammast sín eins og vel er þekkt. Þetta er alveg siðlaust og illa innrætt skítahyski sem virðist bókstaflega njóta þess að níðast á hinum verst settu í samfélaginu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.11.2013 | 08:51
Ögmundur með frumvarp á þingi. Frestun á innheimtuaðgerðum og nauðungarsölum
Þetta er athyglisvert mál. Alveg sér í lagi er athyglisvert að framsjallar skuli ekki hafa látið verða sitt fyrsta verk að setja svona lög í gegn á sumarþingi eða þá í haust. Og þá með í huga að þeir framsjallar ætla að fara að fella niður hérna skuldir ,,á heimsmælikvarða", að eigin sögn.
,,Tillaga til þingsályktunar um frestun á innheimtuaðgerðum og nauðungarsölum. Flm.: Ögmundur Jónasson, Árni Þór Sigurðsson, Bjarkey Gunnarsdóttir.
Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra að senda tilmæli til Íbúðalánasjóðs og áskorun til lífeyrissjóða og fjármálastofnana um að fresta öllum innheimtuaðgerðum og nauðungarsölum uns niðurstaða liggur fyrir í aðgerðum ríkisstjórnarinnar í skuldamálum heimilanna.
http://www.althingi.is/altext/143/s/0194.html
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.11.2013 | 22:57
Sjallar og framsóknarmenn búnir að eyðileggja landið. Eina ráðið fyrir almenning væri að spurja þá dani hvort þeir fengjust til að taka við landinu aftur.
Það er allt meira og minna í rúst eftir þá framsjalla hérna og það sem ekki er í rúst hóta sjallar og framsóknarmenn nú að rústaleggja einnig. Framsjallar hugsa aðeins um að aflétt sé að ef elítunni sanngjörnum skerfi til samfélagsins. Það er forgangsmál nr. 1,2,3,4 og 5 hjá þeim. Þeim er alveg sama þó sjúklingum og hinum verst settu í samfélaginu blæði aðeins ef elítan geti hringlað með fleiri milljarða í stórgróðrarpungum sínum. Núna ætla framsjallar að ráðast á menntun, heilbrigðiskerfi, menningu etc. til að geta fært elítunni meiri pening.
Eg er ekki að sjá neina aðra lausn en prófa að tala við þá dani. Og allur almenningur hlýtur að vera sammála því. Eða hversvegna skildi almenningur afsala sér lágmarksréttinfum til þess eins að elítan getir hringlað með fleiri milljarða í pyngju sinni? Allur almenningur yrði miklu mun betur staddur ef danir færu hér með umsjá. Kaup fyrir að mennta sig, öll heilbrigðisþjónusa frí o.s.frv. o.s.frv. Í Danmörku er nefnilega öllum tryggða akveðin réttindi. Ekki eins og hér þar sem framsjallar láta elítuna fá ofurréttindi á kostnað almúgans.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.11.2013 | 17:12
,,Íslenskt skyr" er ekkert líkt skyri yfirleitt.
Nema þá hugsanlega óhrært hvítt venjulegt skyr. Það minnir soldið á íslenskt skyr. En allar aðrar tegundir með allskyns efnum svo sem ,,bláberjaskyr", ,,vanilluskyr" o.s.frv. - þetta er ekkert líkt skyri eins og eg þekki það. Eg ólst upp við heimatilbúið alvöru íslenskt skyr. Skyrið í verslunum núna er ekkert líkt því. (Nema etv. óhrært hvítt skyr) Aðrar tegundir líkjast bara venjulegu jógúrti. Og svo með þetta ,,bláberjaskyr" - að eg borðaði oft íslenskt skyr með bláberjum og þetta ,,bláberjaskyr" í verslunum hér uppi líkist því ekki neitt. Líkist hvorki skyri eða bláberjum. Þetta er bara einhver sykurleðja og sennilegast eru engin bláber í því. Einhver bragðefni bara sem búin eru til á efnarannsóknarstöðinni á Keldum eða efnaverksmiðjunni Sjöfn. Jú jú, hugsanlega eru 1-2 bláber í þessu til málamynda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2013 | 22:56
Sigruðu Hægri Grænir kosningarnar á Íslandi 2013?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.11.2013 | 15:01
Höfundur efnahagskrísunnar í BNA gefur ráð.
Mikill vinur hægri-afla og í raun bjó hann til efnahagsvandræðin í BNA með fíflagangi sínum. Þetta er alræmdur hægri-öfgamaður og nýfrjálshyggjugutti sem m.a. var í skuggalegum költsamtökum með rugludallinum Ayn Rand sem er í dýrðlingatölu hjá al-tómasta hægra liðinu hér uppi í fásinni.
,,Greenspan's super-low interest rates and consistent opposition to regulation of the multitrillion-dollar derivatives market are now widely blamed for causing the credit crisis"
http://www.theguardian.com/business/2012/aug/06/financial-crisis-25-people-heart-meltdown
![]() |
Evran lifir ekki af án eins ríkis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2013 | 21:42
Rosalega er ,,málflutningur" framsóknarmanna orðinn ljótur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (49)
8.11.2013 | 17:23
Ísland er með trúð sem forsætisráðherra.
Eðli máls samkvæmt er allstaðar hlegið að þessari uppákomu á Íslandi þegar SDG eða ,,trúðurinn", sem kallaður er, varð forsætisráðherra. Það vakti mikla furðu að Sjallar skildu fást til að að bakka nefndann aðila uppí starfinu. Talið er að það skipti talsverðu máli að þeir fengu frítt spil við feitubitamokstur úr þjóðarkjökatli gegn því að bakka upp trúðinn.
Þetta aftur á móti hefur valdið landi og lýð óheyrilegum skaða því fólki erlendis blöskrar þetta. Það er allstaðar hlegið þar sem svokallaður forsætisráðherra kemur fram í nafni landsins. Þarna fer trúðurinn, segir fólkið.
![]() |
Líkir Sigmundi Davíð við trúð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)