MP banki sleppur að mestu við bankaskatt. Sérhönnuð lög fyrir biskupssoninn?

Það er nú ekki oft sem ofsa-sjallavefurinn andriki.is kemur með relevant punkt í umræðum og þessvegna fréttnæmt ef það gerist.  Það er alveg réttmæting ábending hjá þeim hérna að mínu mati.  Þetta er soldið stingandi ef satt reynist:

,,Á síðustu starfsdögum Alþingis fyrir jól ákvað efnahags- og viðskiptanefnd þingsins skyndilega að setja 50 milljarða skattleysismörk á sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki. Um leið var skattprósentan hækkuð meira en til stóð í upphafi.

... 

Skattstofn viðskiptabankanna fjögurra er á bilinu 57 til 870 milljarðar króna. Það er því ljóst að bankinn með 57 milljarða skattstofninn sleppur nánast undan skattinum.

Þessi tiltekni banki greiðir 26 milljóna skatt á þessu ári í stað þeirra 83 milljóna sem hann hefði greitt ef upphaflega frumvarpið hefði verið samþykkt án 50 milljarða skattleysismarkanna.

Eins og fram hefur komið á skatturinn á fjármálafyrirtækin að fjármagna tillögur starfshóps Sigurðar Hannessonar, ráðgjafa forsætisráðherra, um þjóðnýtingu einkaskulda, svokallaða „skuldaleiðréttingu“.

Sigurður er framkvæmdastjóri í viðskiptabankanum með 57 milljarða skattstofninn.

http://andriki.is/post/72825640646


Einfalt ráð við þessu. Senda strax sendinefnd til þeirra dana og prófa að spurja þá hvort þeir fáist til að taka við Íslandi aftur.

Og koma skikki á allt það er framsjallar hafa rústað og eyðilagt hérna með misþyrmingum og ofbeldi á landi, lýð og tungumáli.  Í Danmörku fær fólk bara kaup fyrir mennta sig.   Það er bara á kaupi frá samfélaginu.  En hérna uppi í framsjallafásinni er allt á sömu elítubókina lært.  Helst aðeins mega elítubörnin mennta sig.  Leika sér í fínum skólum um allan heim og verða síðan ráðamenn án þess að hafa nokkurntíman gert handtak á ævinni.

,,If needed, the student may supplement the grant with a student loan of 2,897 DKK (about USD 491) that has to be repaid when the student has completed his or her education. Thus a student will normally receive about 67,944 DKK (about USD 11,514) a year in grants with an optional 34,764 DKK (about USD 5,891) in loans, making a total of 102,708 DKK (about USD 17,405). The government granted SU loans have to be repaid once a student has graduated. However, any part of the loan that has not been repaid after 15 years is cancelled."

http://en.wikipedia.org/wiki/Student_loans_in_Denmark


mbl.is Erfiðara að standa í skilum við LÍN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlægilegt mál framsjalla og þjóðrembinga.

Vandræðagangurinn með þetta blessaða írska smjör kristallar fábjánatendensinn við stjórn lands sem framsjallar beita.  Þessir menn vita ekki neitt hvað þeir eru að gera og alveg sama hvar borið er niður þá eru vinnubrögð öll eins og hjá hálfvitum.    Erlendis er allstaðar skellihlegið að þessum vitleysingum sem framsjallar heita og menn furða sig mikið á að fólk skuli kjósa svona fyrirkomulag yfir sig.
mbl.is Hluti af írska smjörinu endursendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfga-hægri framsjöllum og þjóðrembingum berst bréf.

,,floksskrivari og valevni hjá Norska fasistaflokkinum og norðurlendsku ligaini."

,,Hann lýsir seg sum víðgongdan høgraekstremist og skrivar, at hann ikki longur brúkar harðskap til at gera vart við sína støðu. Í staðin ætlar hann at gera vart við seg sum politikari"

http://aktuelt.fo/breivik+eg+yvirlivi+ikki+fongsulstidina.html#.UtBDwvRdWIh


Virðisaukaskattur á matvæli hækkaður.

,,Fjármálaráðherra stefnir að því í haust að leggja fram lagafrumvarp um hækkun á virðisaukaskatti á matvæli."

http://www.ruv.is/frett/virdisaukaskattur-a-matvaeli-haekkadur

Að þessi elítustjórn skuli ekki hafa vit á því að þegja barasta og láta lítið fara fyrir sér núna þegar styttist í að þessu verði fleygt útúr þinghúsinu sem hverju öðru rusli.


mbl.is Rjúfa verður vítahring verðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í umfjöllun fjölmiðla um seinkun klukkunnar vantar yfirleitt ákveðið pönslæn sem er í raun aðalatriðið.

Það er ekki það að birtan per se eða sólskin á ákveðnum tímum sem er aðalmálið.  Aðalmálið er að mannskepnunni virðist eiginlegt eða náttúrulegt að fylgja sólarklukkunni.   Það er ekkert atriði beinlínis hvort fólk geti grillað í sólskini (sem er nú sjaldan að vísu hérna uppi) eða ekki.  Pönslænið er að lifa eftir náttúrulegum sólargangsrythma.  Svo virðist sem að meginþorri manna fúnkeri betur í takt við náttúrulegan rythma.  
mbl.is Íslendingar rangt stilltir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær hrynur Evran og ESB?

Maður er nú alveg hættur að botna í þessu.  Hér hafa hægri-öfga bullukollar og stampar skrifað hvern pistilinn á fætur öðrum undanfarin misseri og ár um að Evran og ESB væru alltaf að hrynja.  Fullyrt þetta alveg hreint.  

Eg hef hvergi séð minnst á ofannefnt í erlendum fjölmiðlum.  Voru þjóðrembingar þá bara að ljúga?  Getur þetta aldrei sagt satt orð?

Eg verð að segja að það er orðið umtalsvert þreytandi að bíða eftir þessu hruni.  Ekki þurfti að bíða svona lengi eftir að þeir framsóknarmenn og sjallarnir rústuðu landinu hérna og hryntu landinu um koll og liggja nú á því eins og mara. 


Fátækasti forseti í heimi, Jose Mujica forseti Úrugvæ gefur 90% af launum sínum, ekur um á fólksvagni bjöllu og býr á bóndabæ konu sinnar.

Merkilegur maður sem hefur reynt ýmislegt í lífinu. Hann er 78 ára. Tók þátt í vopnuðum átökum í Urugvæ í anda Castro uppreisnar uppúr  1960.   Eftir það var hann settur í fangelsi og var þar í um 15 ár.  Hann hefur ekki eins harðlínu vinstrisjónarmið og áður en leggur áherslu á að hugsa út fyrir boxið, eins og sagt er.  Hann hefur verið kallaður ,,fátækasti forseti í heimi" vegna fábrotinna lifnaðarhátta og ekki síður vegna þess að hann gefur 90% af kaupi sínu til fátækra og smáfyrirtækja.

http://www.bbc.co.uk/news/magazine-20243493

Clipboard013

 


Meiri hækkun en spáð var.

Flestar greiningar spáðu aðeins minni hækkun og ríkisstjórnin - hún er eins og hún er.

Ljóst er verðtryggðar skuldir heimilanna hækka vegna þessarar hækkunnar ríkisstjórnarinnar.  Við erum að tala um marga milljarða sem lán heimilanna í landinu hækka hérna - og hvað ætlar ríkisstjórnin að gera?  Þetta er algjör forsendubrestur og líklega verða framsjallar skaðabótaskyldir.  Og lánin hækka bara og hækka. 


mbl.is Vísitalan hækkar um 0,53%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármögnun forsendubrestarbóta stórlega vanáætluð. Vantar 20 milljarða a.m.k.

 Það er sama hvar er borið niður hjá þessari hörmungarstjórn elítunnar.  Alltaf fer allt lóðbeint niður á hælana.  Svo er stritast við að segja ósatt linnulítið.  Væri huganlega best að vera ekkert að geyma það fram yfir áramót að henda þessu útúr þinginu.  Réttast að gera það bara fyrir jól jafnvel.

,,Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, segir að þeir 20 milljarðar sem koma eiga inn með nýjum bankaskatti dugi aðeins fyrir beinni skuldaniðurfellingu stjórnvalda. Það vanti um 20 milljarða í viðbót til að fjármagna þessar aðgerðir.

Meirihluti fjárlaganefndar hyggst leggja til að bankaskattur hækki, þannig að tekjur ríkisins aukist um 20 milljarðar. Það komi til viðbótar þeim rúmu 14 milljörðum sem hann átti að skila miðað við forsendur fjárlaga. Þessir fjármunir verða notaðir í skuldaleiðréttingaraðgerðir stjórnvalda.

Friðrik Már segir þessa upphæð duga til að fjármagna beina niðurfellingu skulda, en ýmis annar kostnaður falli til: „Það er bæði tapaðar skatttekjur ríkissjóðs, vaxtakostnaður vegna þess að það er ætlunin að yfirtaka 60 milljarða, eða yfirtaka kostnaðinn af 60 milljörðum til viðbótar strax á næsta ári ef ég skildi tillögurnar rétt. Síðan óhjákvæmilegur kostnaður Íbúðalánasjóðs út af uppgreiðslu skulda".

Aðeins verði komist hjá þeim kostnaði ef vextir hækka töluvert. Kostnaðurinn utan beinu niðurfellingarinnar sé því töluverður og það vanti fjármagn í hann. „Varlega áætlað hugsa ég að þessi kostnaður sé um 20 milljarðar króna og jafnvel eitthvað töluvert meira en það", segir Friðrik Már."

http://www.ruv.is/frett/bankaskatturinn-dugir-ekki


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband