Forsetagarmurinn sækist í einræðis- og mannréttindabrotaríki.

Og virðast þeir framsjallar og svokallaður forseti vilja taka slík ríki sem fyrirmynd fyrir ísland og efla ástúðleg tengsl við hörmugarríki af þessari sort.  Sennilega vilja þeir koma slíku stjórnarfari á hér.  Það er líklega draumurinn.

Þvílíkt sem maður skammast sín orðið fyrir meirihluta innbyggja  hérna að ganga sjálfviljugir í gapastokk elítunnar og vera síðan húðstrýktir þar með þjóðrembingsvendi - og líkar vel, að því er virðist.  Líkar vel. 


mbl.is Pútin vill koma til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsjallar rústa pólitískum umræðuþáttum í Ríkissjonvarpi. Sjallaflissari settur á jötuna til að spúa Sjallahálfvitaprópaganda.

Það er ekki hægt annað að segja að almenningur fái að finna fyrir því þessa daganna.  Lúbarinn svoleiðis í gapastokki elítunnar og greitt hvert ofsa- og öfgahöggið á fætur öðru.

Það má alveg eins leggja niður þetta ríkissjónvarp.  Þetta er bara búið.  Sjallar geta fengið þetta og hvert þeir síðan troða þessu er alfarið þeirra mál. 

 


mbl.is Gísli Marteinn hættir í borgarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haglabyssu-Frosti og Kylfu-Simminn í startholunum?

Það má alveg fastlega reikna með því að þeir Framsóknarmannaflokkurinn undirbúi nú launsátur vopnaðir haglabyssum og kylfum.

Hahaha ,,komiði með peningana"!  Komiði með peningana. 


mbl.is Afskriftir ekki í þágu þrotabúanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhug slær að öllu hugsandi fólki eftir 5 mánaða setu Ójafnaðarstjórnarinnar.

Lamandi hægri-öfga hönd leggst yfir landið og lýðinn þannig að nístir innað beini.  Stórlegir fjármagnsflutningar frá almenningi yfir til elítunnar eru þegar frá gengnir.  Síðan er vegið að allri samfélagshjálp og jöfnuði.  Og í restina er ráðist að landinu af mikilum hægri-öfga ofstopa og skrílslátum svo viðurstyggilegt er á að líta.

En þetta vildi meirihluti innbyggja náttúrulega.  Meirihluti innbyggja kaus það að ganga í gapastokk elítunnar og verða þar flengdur með þjórembingsvendi. 

Það er ekkert tilviljun að óháðir blaðamenn á Íslandi hafa sagt að svo virðist sem umtalsverður hluti íslenskra kjósenda sé bókstaflega fábjánar.  Það er ekkert afþvíbara að það er sagt.  Staðreyndir tala sínu máli. 


mbl.is Lög um náttúruvernd afturkölluð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau eru mörg fögur litlu þorpin í Færeyjum.

Mjög fögur.  Alveg ferlega fögur.  Svo sem  Tjørnuvík.  Taka ber eftir hvernig það eru smátún barasta lengst uppí fjalli.

10Aug03_tjornuvik_8

Framsjallastjórnin veldur samdrætti.

Nú eru afleiðingarnar af því að kjósa Sjalla og Framsóknarmannaflokk til einvalda óðum að koma í ljós. Þegar liggur fyrir að stjórnin hefur komið í gegn stórkostlegum fjármagnsflutningum frá hinum verr settu til hinna betur stæðu.  Jafnframt að Yfirutanríkisráðherra hæstvirtur Ólafur Ragnar Grímsson ætlar að neyða landið í samstarf við Rússa og Kína.  Næst á dagskrá er samdráttur fyrir landið og lýðinn með tilheyrandi skaða.   Þetta vildi fólk.  Þetta kaus meirihluti innbyggja yfir sig.  Og verði þeim bara að góðu.
mbl.is Samdráttur líklega framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gátan um óútskýrða hljóðið í Færeyjum leyst af íslensku myndugleikunum?

Sem kunnugt er heyrðist óútskýrt hljóð í Klaksvik og víðar í Færeyjum eins og Portal.fo skýrði frá á dögunum:   http://heimskringla.blog.is/blog/heimskringla/entry/1314787/

Haft var samband við eftirlitsaðila á Íslandi og í fyrstu vissu þeir ekki um neina flugvél á þessum tíma.  En við nánari eftirgrennslan gátu íslendsku myndugleikarnir "spola bandið" aftur, og þá kom í ljós að það hafði reyndar flogið vél á þessum tíma yfir Færeyjar.  Herkúlus vél sem flaug í 27.000 feta hæð.

Eigi eru þó allir færeyingar sáttir við þessa skýringu.  Finnst vélin hafa flogið alltof hátt til að geta verið orsök hljóðsins.  Aðrir benda á að það heyrist einmitt oft hátt og einkennilega í Herkúles vélum og 27.000 fet sé ekkert mikið.  Enn aðrir velta vöngum yfir hvert fréttamennska í Færeyjum sé eiginlega að fara, því flugvélar hafi flogið yfir Færeyja í  um 100 ár og ekki talið sérstaklega fréttnæmt hingað til:

 http://aktuelt.fo/grein/okenda_ljdi_eitt_flogfar_hogt_uppi


Allur almenningur áræðanlega samhuga í andstöðu við staðsetningu flugvallar við Skerjafjörð.

,,Bretar hófu flugvallarbyggingu suður við Skerjafjörð. Einskls leyfi höfðu þeir fengið til þess, enda engan spurt leyfis. Bæjarstjórnm mótmælti, hún leit réttilega svo á að bænum stafaði hin mesta hætta af þessu tiltæki, þar sem augljóst væri að flugvöllurinn yrði skotmark Þjóðverja, ef þeir eínhverntima kæmu hingað til árása á brezka innrásarherinn, og mætti þá vel svo fara að bærinn gildi mikið afhroð við slíka árás.

Á bak við þessi mótmæli bæjarstjórnarinnar, stóð áreíðanlega samhuga álit alls almennings.

En þá kom rikisstiórnin til sögunnar. Hún vildi sjáanlega ekki láta Bretann vera að þessu í leyfisleysi og banni og brá við og gaf út bráðaþirgðarlög, um að taka land það eignarnám sem flugvallargerðin var hafin á,  svo Bretar mættu halda áfram þessu starfi sínu í fullu samræmi við íslenzk lög og rétt."  (Þjóðviljinn 1940) 

http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=211231&pageId=2737978&lang=is&q=flugv%F6llur


Hvernig væri þá að segja frá hugmyndum Sjalla um hvernig eigi að vinda ofan af stöðunni varðandi eignarhald á bönkum Bjarni?

Umræðan er ,,lítil og óþroskuð", segir formaður Sjalla.  Og hvernig er þá staðan og hvað er mögulegt í þeirri stöðu samkvæmt Sjöllum.

Er ekki staðan þannig að þarna er böns af money sem aðallega útlendingar eiga og það þarf bara að vinda sér í að stela þeim?  Og dreifa síðan fjármununum yfir ríkra manna hverfi í Reykjavík úr þyrlum elítunnar?

Eg hefði nú haldið að þetta væri bara einfalt. 

 


mbl.is Bjarni: Kostnaðarhlutföll þurfa að vera lægri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innbyggjar heimta að fá að borga skuldir ríkra reykvíkinga.

Ef þetta lýsir ekki vandamálinu á íslandi að talsverðu leiti - þá veit eg eigi hvað.

Hérna voru kosningar í vor til Alþingis og umræðan snerist um eitt mál:  Innbyggjar vildu borga skuldir ríkra reykvíkinga.

Því þessar upplýsingar lágu allar fyrir í kosningunum og höfðu legið fyrir í nokkur misseri.

Þetta kaus bara meirihluti innbyggjara og nú munu þeir borga og borga og borga skuldir betur stæðra íslendinga og auðmanna - eftir að fyrst hafi verið aflétta af þeim íþyngjandi álögum.

Umtalsverður hluti innbyggja er náttúrulega bara bókstaflega fábjánar. 


mbl.is Tekjuháir myndu fá mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband