Staðreyndir renna upp fyrir íslendingum.

Nú virðast íslendingar vera að átta sig á því smá saman að umræða undanfarinna missera og ára sem keyrð var áfram af óheiðarlegu og óábyrgu ofsa-própaganda framsjalla - var bara það.  þ.e. ofsa-própaganda og brútalt óheiðarleiki.

Fólk er að átta sig á þessu smá saman.  

Það er vissulega rétt sem sumir fræðimenn hafa bent á, að ofanneft bitnar fyrst á framsóknarmannaflokki.  Það er náttúrulega bara vegna þess hve framsókn hefur verið fádæma óábyrg í sínum málflutningi.  Bitnar fyrst á framsókn en síður á sjallabjálfaflokki þó samanlagt ríkisstjórnin svokölluð verði fyrir miklum skakkaföllum og telst tæplega starfhæf lengur.

Það er eigi skemmtilegt að horfa uppá þessi ósköp.  Langt í frá skemmtilegt.

Nú er komið í ljós að það eru engin töfratrikk og snillingabrellur útúr rústalagningu sjalla á landinu.  Fólki mörgu er brugðið.  Margir trúðu bulli framsóknarmanna og sjalla.  Ábyrgð framsjalla er stór og mikil.  Það er ábyrgðarhlutverk að vera í stjórnmálum.

Það er komið í ljós núna að skynsamlegasta leiðin útúr ógöngum framsjalla var aðild að Sambandinu.  Engin barbabrelluleið vissulega og leið sem hefði tekið ákveðin tíma og þolinmæði - en langskynsamlegasta og besta leiðin ásamt því að vera sú eðlilegasta og raunsæjasta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sumir meina það sem þeir segja, og aðrir meina allt annað en það sem þeir segja.

Dómskerfið ver og styður svik, og brýtur markvisst niður allt sem telst mannúð og ábyrgð. Valdið er hjá dómsstólum spillingaraflannna.

Árangur dómsmorða er alþjóðabankanum einokandi, spillta, siðblinda og valdapíramídakúgandi í vil. "Sambandið", sem svo margir treysta á, er einungis eitt þrep í einokunarstefnu brálæðinga heimsveldisins.

New World Order er margra alda gömul blekkingaráætlun samviskulausra og nánast ómennskra hvítflibbavillimanna á jörðu. Höfuðstöðvar þessara villimanna er í Páfagarði Rómar, og valdakúgunarútibú þeirra eru staðsett vítt og breitt um heiminn. Sannar upplýsingar um staðreyndir er eina leiðin út úr vítisormagryfju valdasjúkra innan Páfafrímúrara-óreglusambanda.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.11.2014 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband