Ísland hefur fengið sitt Jyllands-Posten cartoons controversy.

Það eru sláandi líkindi þarna á milli - að breyttu breytanda að sjálfsögðu.

Vakna ýmsar spurningar.

 Nú finnst mér persónulega þessi teikning óþarflega stuðandi - þó eg átti mig alveg á hvert teiknarinn er að fara.

En finnst framsóknarmönnum þá, sem sagt, að Jyllands-pósturinn og dönsk yfirvöld hefðu átt að biðjast afsökunnar á Jylland-Posten teikningunum á sínum tíma? 

Ef pósturinn hefði gert það og dönsk stjórnvöld gripið strax inní með afgerandi hætti - þá hefði aldrei orið neitt mál úr þeim teikningum.

Eg hef hinsvegar eigi orðið var við að þeir framsóknarmenn væru á þeirri skoðun og hvort stuðningsmenn þeirra voru ekki sumir að pósta þessum teikningum á facebook bara fyrir stuttu í tilefni einhvers afmælis sem eg kann ekki skil á.


mbl.is Sakar Fréttablaðið um einelti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Teikningin er góð og tímabær. Hún er hinsvegar engin árás á kellingar greyið, hana Sveinbjörgu, sem er aumkunarverð leikbrúða í höndum kosningastjórans og Framsóknarflokksins.

Markmið er að vinna eitt sæti og til þess væru öll ráð leyfileg. "The real thing".

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 31.5.2014 kl. 17:16

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Já. Það er sorglegt að nánast enginn framsóknarmaður skuli mótmæla þessu kröftulega.

Skil ekki hvð er í gangi í framsóknarflokknum.

Framsóknarflokkur er að verða eyðandi afl í íslenskri pólitík.

Sorglegt.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 31.5.2014 kl. 18:23

3 identicon

Ekki aðeins Framsóknarflokkurinn Ómar, en einnig "öldungadeild" Íhaldsins.

Skarfarnir í henni hrópuðu hæst í stuðningi við fíflaganginn í greyinu henni Sveinbjörgu.

Einhver svona "það lafir á meðan ég lifi" hugsunarháttur.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 31.5.2014 kl. 21:24

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Jú það er rétt.

Maður er mjög hugsi yfir þessari þróun.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 31.5.2014 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband