Nú ætla framsóknarmenn að fá sér banka sennilega.

Allavega vilja þeir endilega að útlendingar fái ekki að eiga banka.  Nei nei, það skulu vera íslendingar.  Það er svo miklu betra.  Þá mun líklegast rísa upp hópur sem allt í einu vill fá banka.  Og sjá; Banka mun þeim gefast, nánast ókeypis.  Sem svo verður settur á höfuðið á u.þ.b. 5 árum og svo koll af kolli.  Þetta er allt kunnuglegt.


Afrakstur framsóknarmanna og sjalla kemur í ljós. Kostnaði velt yfir á almenning sem skal nú borga.

Þetta var algjörlega fyrirséð og er sennilega aðeins byrjun á ákveðnu framsjallaferli kunnuglegu mjög.  Almenningur borgar brúsann reyrður í höft og helsi með heilbrigðis- og menntakerfi og aðra grunnþjónustu í lamasessi.  Hinir auðugu labba svo hlægjandi alla leið í bankann sinn.  En þetta vildu framsóknarmenn, ofsahægriarmur sjalla, forseti og almennir þjóðrembingar, - og fengu!  Og verði þeim bara að góðu.


mbl.is Hækka stýrivexti bankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. júní 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband