Afrakstur framsóknarmanna og sjalla kemur í ljós. Kostnaði velt yfir á almenning sem skal nú borga.

Þetta var algjörlega fyrirséð og er sennilega aðeins byrjun á ákveðnu framsjallaferli kunnuglegu mjög.  Almenningur borgar brúsann reyrður í höft og helsi með heilbrigðis- og menntakerfi og aðra grunnþjónustu í lamasessi.  Hinir auðugu labba svo hlægjandi alla leið í bankann sinn.  En þetta vildu framsóknarmenn, ofsahægriarmur sjalla, forseti og almennir þjóðrembingar, - og fengu!  Og verði þeim bara að góðu.


mbl.is Hækka stýrivexti bankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér hefur alltaf þótt ályktunarhæfni þín frekar sérstök.

En burtséð frá því held ég að Seðlabankastjóri kunni því ekkert sérlega vel að vera kallaður framsóknar- eða sjálfstæðismaður.

ls (IP-tala skráð) 10.6.2015 kl. 11:47

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Seðlabankinn bregst bara við framsjöllum og þeirra athöfnum.  Orsök-afleiðing.  Og þetta er bara byrjunin.

Maður bíður bara eftir að þeir framsjallar fari að safna innlánum í Bretlandi.

Þvílíka ruglið á öllu hérna.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 10.6.2015 kl. 12:19

3 identicon

Það er rétt sem þú segir: "Þvílíka ruglið á öllu hérna." og greinilega byrjar ruglið hjá þér laughing 

En eins og Is segir þá er ályktunarhæfni þín ótrúleg og væri gaman að fá að vita á hvaða lyfjum þú ert, fyrir utan ESB ólyfið sem þú ert búinn að innbyrða í allt of mörg ár tongue-out 

Sumarliði (IP-tala skráð) 10.6.2015 kl. 15:02

4 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Huumm Is og Sumarliði eru þið ekkert að fylgjast með, eða eru þið á félagslegu trippi?

Jónas Ómar Snorrason, 10.6.2015 kl. 19:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband