Góð úrslit gegn frökkum.

Það gekk eftir er eg minntist á fyrr, að til þess að Ísland gæti sigrað Frakkland, þá þyrfti allt að ganga upp hjá Íslandi en á móti þyrfti Frakkland að leika arfailla.

Jafnvel þó Ísland léki afar vel og Frakkland illa - þá fékkst aðeins jafntefli útúr þessu.  Frakkarnir eru bara svo gríðarlega sterkir.  Manni fannst þeir í dag vera bara á hálfum hraða.  Eðlilegt líklega, því reynsla frakka er mikil og byggt er á strategíu þar sem vaxandi kraftur er keyrður upp eftir því sem líður á mótið.  þeir þurftu ekkert endilega að vinna þennan leik og bara bónus fyrir þá að fá eitt stig.

Ísland var að reyna miklu meira og liðið í heild var á miklu meiri keyrslu og álagi en frakkar.  Frakkar voru mikið að hugsa um að koma þokkalega heilir útúr þessu og óþreyttir.   En það mátti vel sjá, að frakkar áttu auðveldara með að opna íslensku vörnina með spili heldur en Íslandi að opna hina Frakknesku vörn.  

Manni fannst Frakkland stundum geta opnað íslensku vörnina býsna auðveldlega með skörpu samspili.  Ísland var aftur á móti mikið með mörk fyrir utan, langskot eða stunguskot, oft eftir einstaklingsframtak.  

Vantaði aðeins uppá samspilið í sókninni.  Strategían sem Ísland beitti í leiknum er brothætt og þó allt gengi þokkalega upp í dag er alls ekki víst hún gangi jafnvel á morgun.  Franska strategían var á sterkari grunni.  

Enda auðvitað talsverður munur á þessum liðum getulega séð.  Frakkar eru bæði með sterkari einstaklinga og svo er breiddin svo svakaleg hjá þeim að stigsmunur er á þeim og Íslandi.


mbl.is Hefði þegið eitt stig í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf allt að ganga upp til að Ísland vinni Frakkland.

Ísland þarf að eiga super leik en á móti þurfa frakkar að eiga afar slakan leik til að möguleiki sé á íslenskum sigri.

Frakkar eru með eitt besta handboltalið í heimi þessi árin - og þeir virðast ekkert vera að gefa eftir.

Það sem er eftirtektarvert hjá frökkum er hve margir einstaklingar í liðinu eru hágæðamenn.  Menn sem eru sterkari á flestum sviðum handboltans en mótherjarnir.  Oft eiga lið svona 1-2 menn sem eru afbragðsmenn, td. Óli Stef. hjá Íslandi í eina tíð, - en hjá frökkum erum við barasta að tala um marga menn.

Jú jú, handbolti er hópíþrótt, - en frakkar hafa yfirleitt farið létt með að tengja þessa afbragðseinstaklinga í eina liðsheild.

Það er eiginlega þannig fyrir þennan leik, - að Ísland hlýtur að teljast mun veikari aðilinn og Frakkland mun sigurstranglegra. 

Ísland hefur nánast ekkert sýnt í þessum tveim leikjum sem af eru.   Alsírliðið var náttúrulega bara eins og Menntaskólalið en spiluðu samt ágætlega lengst af og gerðu flest rétt á sínu leveli.

Sumir eru farnir að tala eins og um sérstakt afrek væri að ræða að vinna Alsír, - það er óraunsætt tal.  Flestir íslensku leikmennirnir eru að spila hversdags hjá sínum liðum á miklu hærri standard eða leveli en Alsírska liðið.


mbl.is Þurfa aðallega að þenja út brjóstkassann og þora
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. janúar 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband