Framsjallar eru að eyðileggja landið og rústa á allan hátt ásamt almennum vitleysingum.

Það er sama hvert litið er og hvar borið er niður.  Það sem hefur tekið langan tíma að byggja upp hérna eru framsjallar að eyðileggja núna í rólegheitunum.  Dunda sér við að níðast á almenningi og sérlega þeim er minnst mega sín.  Framsjallar sýna af sér svo aumingalega og illa innrætta framkomu að mann rekur í rogastans.  Jú jú, þeir eru öflugir við að raða sérstökum framsjallapótintátum á garðann og moka fjármunum almennings undir eigin elíturass - en þá er það nú upptalið.  Annað eyðileggja þeir.   Þar fyrir utan vekur orðið athygli og er mjög áberandi að verkstjórn svokallaðara ,,stjórnvalda" hérna er engin.  Hún sést ekki.  Og við hverju bjóst fólk?  Sá sem var settur sem verkstjóri hefur aldrei gert handtak alla sína hunds- og kattartíð.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband