Evrópubúar ein fjölskylda. Rannsókn staðfestir.

Nýleg rannsókn sýnir að allir Evrópubúar eiga sameiginlega forfeður fyrir ótrúlega stuttu síðan.  Rannsóknin er þungt högg fyrir kynþáttahyggju og kjánaþjóðrembinga.  Þungt högg.  En rannsóknin þarf samt ekki að koma svo mikið á óvart því hægt er að finna út möguleika á slíku með einföldum líkindareikningi og stærðfræði.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ómar, ekkert nýtt þar.  Nema þriðja kenningin sé uppi eftir þessa nýlegu rannsókn. ? 

Hinar tvær gömlu eru skv. biblíunni, sem segir að hinn sameiginlegi forfaðir sé Adam, og skv. Darwin, sem segir að sá sameiginlegi sé einhver api í Afríku.

Kolbrún Hilmars, 19.5.2013 kl. 16:38

2 identicon

Þú ert nær þeim sem þú kallar þjóðrembinga hérlendis. So what's your poi t?

Dagga (IP-tala skráð) 19.5.2013 kl. 16:52

3 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Jú, þetta er talsvert nýtt. Rannsóknin sýnir að allir núverandi Evrópubúar eru mun skyldari en áður var talið.

Þetta samt þarf ekki að koma á óvart. Því þegar líkindareikningur/tölfræði komst á það stig sem nú þekkist - þá fóru prófessorar að spekúlera í að í rauninni hlyti mannkynið að vera allt ótrúlega skylt. Þ.e.a.s. að það er ekkert flókið við hugmyndafræðina sem er sirka svona: Ég - tveir foreldrar - 4 afar/ömmur 8 langforeldrar o.s.frv. - þetta leiðir nokkra ættliði aftur til alveg óskaplegs fjölda forfeðra! Miklu fleiri en íbúa á jörðinni á þeim tíma. Ergo: Fólk hlýtur að vera allt meira og minna náskylt og eiga sömu forfeður eitthvað aftir í tímanum.

Það sem kemur á óvart í rannsókninni er:

1. Hve skyldir Evrópubúar eru.

2. Hve sameiginlegir forfeður eru stutt aftur í tímanum.

Þetta rústar alveg kynþáttahyggjunni og þjóðrembingum. Jarðar hvorutveggja.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.5.2013 kl. 16:54

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Skyldleiki sannar ekkert.  Gamla máltækið segir "bræður berjast á banaspjótum".   Þannig dugir skyldleiki ekki til, jafnvel mjög náinn, til þess að menn séu vinir.  

Svokölluð kynþáttahyggja og þjóðrembingur er sjálfsagt tilkominn vegna þess að það er ekki sjálfgefið að ókunnugum takist það sem náskyldum tekst ekki.

Kolbrún Hilmars, 19.5.2013 kl. 17:18

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Sko, hvað þessi uppgvötun almennt séð merkir - það svo sem getur hver haft sýna skoðun á því.

Þá menn og konur séu skyldar, þá geta þau samt barist sem dæmin sanna af öllum borgaratríðunum í gegnum söguna og nægir að nefna borgarastríðið á Íslandi á 13. öld. Aðilar máls voru allir náfrændur og frænkur. Norsku kóngarnir og aðalsmennirnir sem reyndu að stilla til friðar voru nánast jafn skyldir aðilum máls.

Að mínu mati sýnir þetta og sannar og er vísbending til framtíðar - að svokölluð þjóðríki eru í raun bara kjánaleg. Enda fyrirbæri sem nýbúið er að finna upp og hefur orðið til stórra vanræða, má segja. Stórra vandræða.

Framtiðin mun án efa bera með sér að landamæri á pappír falla niður og smám saman myndast miklu miklu víðtækari eða stærri svæði um ákveðna hagsmuni.

Þetta er ekkert til að vera hræddur við. Er bara þróun og í takt við aðra þróun og tækni svo sem í samskiptum og ferðalögum. Held það. Það verður Evrópa, Ameríka, Afríka, Asía o.s.frv.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.5.2013 kl. 17:54

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

En þú átt nú enn eftir að upplýsa okkur um þennan sameiginlega forföður, Ómar.

Kolbrún Hilmars, 19.5.2013 kl. 18:04

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þeir eru margir.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.5.2013 kl. 18:39

8 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Tutt tutt, það veit ég nú bara með því að fletta uppí Íslendingabók.   Þar eru ekki bara margir forfeður, heldur óteljandi margir.

Ég hélt að þú værir að vísa í einhverja tímamótakenningu!  Eitthvað langsóttara en frændsemi við Héraðsbúa...

Kolbrún Hilmars, 19.5.2013 kl. 18:55

9 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta er ekki kenning. Það sniðuga samt er að stærðfræðingar/tölfræðingar/líkindareiknispekingar voru búnir að spá fyrir um sirka þetta. Þ.e.a.s. að skyldleiki manna væri mun meiri en ætla mætti við fyrstu umhugsun.

Rannsóknin núna staðfestir eiga sameiginlega forfeður alveg ótrúlega stutt aftur í tímanum. Miklu styttra en líkindareiknifræðingar höfðu spekúlerað í.

Allir Evrópubúar eru ein fjölskylda, má segja.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.5.2013 kl. 19:51

10 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Edit: ,,Rannsóknin núna staðfestir að Evrópbúar eiga sameiginlega forfeður alveg ótrúlega stutt aftur í tímanum. Miklu styttra en líkindareiknifræðingar höfðu spekúlerað í.

Það er búið að jarða þjóðrembinginn og bullið í kringum hann.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.5.2013 kl. 19:54

11 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

,,From Ireland to the Balkans, Europeans are basically one big family, closely related to one another for the past thousand years, according to a new study of the DNA of people from across the continent.

The study, co-authored by Graham Coop, a professor of evolution and ecology at the University of California, Davis, is published May 7 in the journal PLoS Biology.

"What’s remarkable about this is how closely everyone is related to each other. On a genealogical level, everyone in Europe traces back to nearly the same set of ancestors only a thousand years ago," Coop said.

"This was predicted in theory over a decade ago, and we now have concrete evidence from DNA data," Coop said, adding that such close kinship likely exists in other parts of the world as well."

http://news.ucdavis.edu/search/news_detail.lasso?id=10557

Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.5.2013 kl. 19:59

12 identicon

Nei, væni, alls ekki, þetta er þveröfugt. Þeir einu sem pæla í því hver sé blóðlega skyldur einhverjum öðrum og hvernig eru Euro-rasistar eins og þú sjálfur!

Ég er ekki meiri Evrópumaður en Afríkumaður, Asíumaður, Semíti, Arabi og Eskimói! ALLIR menn eru mínir bræður, sama hversu fjarskyldir eða ekki!

Og tal þitt um sérstakan skyldleika Evrópumanna er NAZÍSK VIÐURSTYGGÐ í mínum óevrópusinnuðu alþjóðahyggjueyrum.

Mér BÝÐUR VIÐ KYNÞÁTTAHYGGJU YÐAR!

Landráðamaður og rasisti!

Egill (IP-tala skráð) 19.5.2013 kl. 21:43

13 identicon

"Europeans are one big family" með þessum orðum er hann að meina að aðrir séu það ekki. Sama hugsun og knýr áfram helför Evrópskra stórfyrirtækja gegn Afríku sem fræðast má um með að horfa á myndina Flow- for the love of water, um viðurstyggileg áform styrkt af Evrópubandalaginu um að koma á sérstöku vatnsgjaldi og rukka fátækustu Afríku um allt sitt vatn. Sama hugsun og Hitler sem dreymdi um stórEvrópu sína dreymdi.

Sama hugsun og ég og bræður mínir um allan heim munum DREPA!

Við munum uppræta ykkur og ímynduðu "Evrópu" ykkar með öllu og alla sérhagsmuni Evrópu og yfirráðasýki hennar.

Við erum alveg að fara að sigra ykkur rasistaviðbjóðina!

Þá verður ekkert svona viðurstyggilegt þvaður um hina "Evrópsku fjölskyldu" (hugtak sem nazistar notuðu oft!!!) og það máttu bóka!

Sigur okkar var skráður fyrir þúsundum ára.

One World Order (IP-tala skráð) 19.5.2013 kl. 21:46

14 Smámynd: Jón Valur Jensson

Er þetta ekki alþyngsta högg sem al-léttasti hópur heims hefur nokkurn tímann fengið á sig?! (ég er að tala hér um rembumennin og rasistana, sem eru mun sjaldgæfari en Ómar Bjarki virðist ímynda sér þónokkuð oft í hverri viku).

Annars eru ekki mikil vísindi fólgin í niðurstöðunni, nema menn átti sig á því að allir Evrópumenn eiga einhverja sameiginlega forfeður fyrir ca. þúsund árum, en að það þýðir samt alls ekki sömu forfeður eða sama þjóðauppruna að mestöllu leyti.

Fjöbreytnin er líka góð.

Jón Valur Jensson, 19.5.2013 kl. 21:46

15 identicon

Með því að við munum uppræta ykkur meina ég ekki að drepa ykkur líkamlega séð. Heldur mun eitur ykkar og lygar og mannhatur aldrei framar verða predikað. Fáfræðin verður upprætt og hatrið rifið upp með rótum úr hjörtum mannanna. Og við munum bera hina sönnu sögu mannkynsins á torg. Þá sem hefur verið þarna undir yfirborðinu svo lengi. Fyrir aðeins 200 árum héldu menn sögu siðmenningarinnar ná aftur til Grikklands og Rómar. Nú vita allir að Grikkir og Rómverjar tóku sitt frá Egyptum og Súmerum og öll sagan tekur mið af því á öllum sviðum fræðimennsku. En bara hálfsagan hefur verið sögð. Við vissum allan tíman hvað koma skal. Og það kemur fljótt. Þá munum við segja ykkur sannleikan um uppruna siðmenningarinnar og mannkynsins. Smá vísbending: EKKERT kom frá Evrópu og ekkert mun koma þaðan. Allt sem "ykkar" menn gerðu gerðu þeir knúnir af kröftum og hvötum sem ekki eiga uppruna sinn í Evrópu. Enginn "Evrópumaður" hefur nokkru sinni áorkað neinu, aðeins heimsborgarar. Enginn getur verið bæði í senn.

One World Order (IP-tala skráð) 19.5.2013 kl. 21:49

16 identicon

Frelsari þinn var enginn Evrópumaður, Jón Valur, og því síður kynþáttalega hreinn. Hann var af semískum uppruna og það eru öll vísindi mannkynsins, listir þess og fræði. Hann hafði 0% bláeygt, ljóshært Evrópskt "Aría"blóð. En Neanderthalsmaðurinn var hins vegar ljós á hár...Mannkynssagan vitnar um þetta sjálf. Fleiri fornmynjar frá Súmeríu og Egyptlandi og löndunum þar í kring birtast bráðum...líka leyfar frá siðmenningu sem þið þekkið ekki enn með nafni.. og þeir fara líka að grafa upp musteri Salómons og fleira. Þetta var allt planlagt og tímasett fyrir löngu. Þá verða þú og fleiri hissa. You ain´t seen nothing yet. Allt sem þér var sagt var lygi...EKKERT kom frá Grikklandi.

One World Order (IP-tala skráð) 19.5.2013 kl. 21:52

17 identicon

Stór-Þýskaland mun aldrei verða. England mun aldrei rísa á ný. Frakkland fær aldrei Afríku aftur. Rússland verður aldrei aftur stórt. Evrópu hafa verið takmörk sett, mannkyninu til heilla. Friður mun ríkja á jörðu þegar veldi hennar er á enda. Þá kemst á jafnræði og réttlæti og misskipting auðæfa jarðarinnar viðgengst ekki lengur. Þá fær hver maður tækifæri til að sanna sig og enginn fær forréttindi í krafti litarháttar eða landlægsuppruna síns. ENGINN! Réttlætið eitt mun ríkja.

One World Order (IP-tala skráð) 19.5.2013 kl. 21:54

18 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei, bara forréttindi í krafti stéttar sinnar og fjölskylduuppruna !!!

Jón Valur Jensson, 19.5.2013 kl. 22:08

19 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þetta er nú það langsóttasta og al aumasta sem að ég hef heyrt sem rök fyrir hinni sam- Evrópsku skrifræðis stofnun sem menn vilja breyta í hið stóra og fullkomna Sambandsríki - "The United States of Europe"

Hallærislegt - Ef þetta er ekki rasismi dauðans, þá veit ég ekki hvað............ !

Gunnlaugur I., 19.5.2013 kl. 23:44

20 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hverskonar rasistapredikanir eru þetta eiginlega hjá ykkur ESB-sinnum? Ég hef afar fáa rasista fyrirhitt en sé nú hvað fyrir þér vakir Ómar.

Það brá mörgum í brún þegar það varð uppvíst að gyðingamorðinginn Adolf Hitler var af gyðingaættum.

Nú er Ómar Bjarki búinn að hlaupa svolítið á sig og er mikið niðri fyrir þegar hann upplýsir að allir Evrópubúar séu skyldir og gefur því máli vægi við sameiningu Evrópu!!!!!!

Ja, hérna, kannski ættu menn að fara sér hægar í talinu um rasismann?

Fyrir mér eru allir kynþættir jafnir og ég sé ekki ástæðu til að Evrópubúar rotti sig saman og einangrist frá öðrum þjóðum og kynþáttum vegna innri skyldleika.

Þú mátt eiga þína Evrópukynþáttahyggju Ómar Bjarki.

Árni Gunnarsson, 20.5.2013 kl. 11:06

21 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Sérkennilegt hve þjóðrembingar eru uppteknir af einræðisherrum og rasisma.

Eg hef bara aldrei talað um að neinn einangri sig frá einum eða neinum og ég frábið mér slíkt tal frá öfgalingum. Þið verðið hugsa ykkar gang í eigin kjánaþjóðrembingi og öfgalingatali.

,,Framtiðin mun án efa bera með sér að landamæri á pappír falla niður og smám saman myndast miklu miklu víðtækari eða stærri svæði um ákveðna hagsmuni."

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.5.2013 kl. 11:31

22 Smámynd: Árni Gunnarsson

Erum við evvrópuþjóðir samt ekki áreiðanlega skyldar Ómar?

Hvaða boðskap á það að færa okkur?

Í hvaða trúarriti er að finna þetta guðspjall um að innri hagsmuni sameinaðra þjóðríkja skuli treysta svo aðrar þjóðir sitji áfram úti í kuldanum?

Það er áreiðanlega ekki í neinum boðskap "þjóðrembinga" svonefndra-- eða hvað? 

Finnst þér vont Ómar að vera kominn í hring með þetta þjóðrembingsbull þitt sem þú vilt endilega klína á aðra af því að þér finnst lyktin svo vond.

Veistu? Mér finnst hún líka aldeilis ægilega vond.

Árni Gunnarsson, 20.5.2013 kl. 12:18

23 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta tal ykkar þjóðrembinga hefur ekkert að gera með mitt mál eða upplegg.

Það að þið eruð ófærir um að hugsa í öðru en kjánaþjóðrembingi er auðvitað eingöngu ykkar vandamál. Ekki mitt.

En sannar ágætlega það sem eg hef oft bent á. Það eru sumir íslendingar algjörlega fastir í hlekkjum forneskjuhugarfars. Geta ekki hugsað í öðru en einræðisherrum og þjóðrembingi.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.5.2013 kl. 12:27

24 identicon

Að segja heiminn eiga eftir að skiptast í Evrópu, Afríku og Asíu er ekki bara rasismi, það er gamli, klassíski rasisminn holdi klæddur. Hitler og co voru Pan-Evrópusinnar, reyndar frábrugðnir að þeim hætti einum að vilja ekki óhóflega blöndun Slava og Germana (Germanir og Latneskir menn máttu blandast hóflega) og eins tryggja sérstöðu Norrænna manna. Flestir nýnazistar í dag eru bara Pan-Evrópusinnar, vilja ekki blöndun við Asíu og Afríkumenn, Araba og slíka, á þeim forsendum að þetta sé "annað fólk", "önnur menning", og að eðlilegt sé að heimurinn skiptist eftir hinum ímynduðu þremur kynþáttum "Evrópskum", "Afrískum" og "Asískum". Eðlilegt fólk og menntað fólk kallar þetta rasisma, sem það er. Og ekkert annað. Og þú ert rasisti og ekkert annað og allir aðrir sem hugsa sér þenna heim sem skiptist eftir heimsálfum, sem er bara dulkóðað orðalag yfir "eftir kynþáttum". Því miður hafa þínir líkar enn völd og vægi í heiminum en þetta verður bráðum alveg tekið frá ykkur og ykkur skipað eilíft og sérstakt aukahlutverk sem þið komist aldrei upp úr. Ykkar líkar eru ekki velkomnir í framtíðinni. Það var nógu að milljónir af saklausum gyðingabörnum, sígunabörnum og slíkum þyrfti að deyja í Þýskalandi fyrir að vera ekki nógu "Evrópsk", það var nóg að Afríkumenn þurfi að blæða og deyja enn í dag og að Evrópumen og menn af Evrópskum uppruna búsettir annars staðar hafi blóðmjólkað þeirra eigin lönd og níðst á þeim þar og flutt þá með sér nauðuga til lands hvíta mannsins, svift þá allri mannlegri reisn og mannvirðingu og farið með sem búfénað, þrælar voru jafnvel ekki leyft að giftast heldur áttu að fjölga sér sem skepnur og þrælabörn áttu aldrei föður menningarlega séð. Viðbjóðslegt! Þetta er afleiðing Evrócentrismans. Evrócentrisminn er viðbjóður öllu vitibornu fólki, fjarstæða öllum vellesnum mönnum og heimska öllum með snefil af skynsemi. Hann þrífst aðeins í hjörtum illmenna sem af minnimáttarkennd yfir eigin heimsku þurfa að krýna sig sérstökum forréttindum "Evrópumanns", og svipta þannig sjálfan sig mennsku sinni.

New World Order (IP-tala skráð) 20.5.2013 kl. 12:27

25 identicon

°

. (IP-tala skráð) 20.5.2013 kl. 12:41

26 identicon

Þetta er alveg satt, eðlileg gamaldags þjóðernisstefna er ósköp sakleysisleg í samanburði við evrópumiðlægan hugsunarhátt. Það er ekkert skuggalegra að Færeyingar vilji halda upp á færeyska þjóðdansa eða sérkenni menningarsinnar en að frumbyggjar Ástralíu haldi upp á tónlist sína. Og það er ekkert furðulegra að vilja tryggja sjálfstæði Færeyja en réttindi ættbálks í Amazon. En að vilja tryggja "sérstöðu" ótal þjóða með ólíka menningu siði og trú, sem eiga í raun lítið sameiginlegt annað en erfðafræðilegan uppruna, eins og í tilfelli "Evrópumanna", og það ekki meiri en svo að vera skyldari hver öðrum líkamlega og líffræðilega en Egyptum og Japönum, það getur ekki verið og verður aldrei neitt nema rasismi. Og hugmyndin um "Sameinaða Evrópu" er í grunninn bara kynþáttahyggja. Kynþáttahyggju er aldrei hægt að líða eða afsaka. Og hún veldur dauða og hörmungum og er móðgun við allt sem er heilagt og fallegt við mannssálina. Þjóðernishyggja í gamla skilningnum er saklaust lamb í samanburði. Hitler var ekki "þjóðernissinni" á sama hátt og Jónas Hallgrímsson og tilfinningar hans ekkert skyldar væmninni í Guðna Ágústssyni, hann var talsmaður sambræðslu Evrópulandana og gekk svo langt að láta þýska hermenn gera norskar konur óléttar með skipulögðum hætti í þessu skyni. Til átti að verða ein Evrópa undir þýskum yfirráðum, þar sem Slavar færu að vísu með minniháttarhlutverk, eða bara...nákvæmlega sá veruleiki sem er í dag. Afar og ömmur hins venjulega þýska manns hafa jafn mikil áhrif á þá og okkar höfðu á okkur. En þeirra afar og ömmur voru að brytja niður menn og gasa ungabörn til dauða og gerðu svo sápur úr beinum barna til að reyna að gera helförina sem þjóðhagslegast hagkvæmasta, eftir nákvæmum vísindalegum útreikningum, eftir að hafa þrælað fólkinu til dauða í þágu þýskra stórfyrirtækja. Þjóðverjar eru menn eins og við hin, en það er stutt síðan þessi þjóð var fárveik og hluti hennar er það enn og hefur þennan skelfilega arf. Slík þjóð á að fá að jafna sig líkt og veikur maður sem þarfnast vistar á geðsjúkrahúsi og verndaðs umhverfis. Henni á ekki að fela völd yfir heiminum, en ESB er bara Stór-Þýskaland í dulargerfi. Þjóðverjar drottna yfir ESB í krafti fjölda síns og koma öðrum þjóðumn á vonarvöl og rétta þeim sem "hjálparhönd" með skuldaþrældóm sem skilyrði fyrir því. Grikkir, Spánverjar og slíkir munu ekki geta borgað Þjóðverjum til baka fyrr en eftir hundruðir ára, ef einhvern tíman. Þjóðverjar munu ALDREI getað borgað það tjón sem þeir ullu þessum þjóðum og heiminum öllum í annarri heimsstyrjöldinni og ætla sér heldur ekkert að gera það. ESB er farvegur fyrir óréttlætið og lögleysuna að ná yfirhöndinni í heiminum. En það er verið að byggja stíflur og ESB mun grotna að innan og það er gott.

Mannkynið (IP-tala skráð) 20.5.2013 kl. 12:52

27 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það að heimurinn skiptist eftir stærri svæðum hefur ekkert með rasisma að gera. Bara sorrý.

Þetta segi ég að framtíðin beri með sér: ,,Framtiðin mun án efa bera með sér að landamæri á pappír falla niður og smám saman myndast miklu miklu víðtækari eða stærri svæði um ákveðna hagsmuni."

Og þetta fer aðeins eftir landfræðilegum aðstæðum og hagsmunum ásamt menningar/félagslegum aðstæðum.

Landamæri - sem eru reyndar aðeins til á pappírnum - munu sjálfkrafa falla niður. Vegna þess að fólk hættir að trúa á slíka forneskju.

Mun stærri svæði munu myndast - og þetta er barasta þróun. Það má alveg deila um hvar hvert svæði muni skerast nákvæmlega en ákveðin svæðaskipting mun óhjákvæmilega fylgja. (Hvað svo sem enn fjarlægari framtíð flytur í skauti sér.)

Þetta verður ekkert í krafti einhvers ríkis eða einræðisherra sem þið kjánaþjóðrembingar eruð svo uppteknir af og virðist ekki getað loasað ykkur útú slíkri forneskju.

Þessi forneskjuhugsunarháttur ykkar kjánaþjóðrembinga er álíka og forneskja heiðinna manna þegar kristni var lögtekin hérna fyrir stuttu. Þá heimtuðu heiðnir menn að fá undanþágu með að bera út börn. Heimtuðu það.

Það sem kjánajóðrembingar á íslandi þurfa sildið að gera er að bræða forneskjuna úr huga sér. Það er varla að þeir viðræðuhæfir. Slík er samanherpingin og rembingurinn. Einn forneskjurembihnútur.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.5.2013 kl. 13:01

28 identicon

,,Framtiðin mun án efa bera með sér að landamæri á pappír falla niður og smám saman myndast miklu miklu víðtækari eða stærri svæði um ákveðna hagsmuni."

Hér er verið að tala um meinta sérhagsmuni Evrópu. Þetta er fjarstæða og vitfirring. Ítalía er að hluta til í Afríku!!! Ítalía og Grikkland eru merkustu lönd Evrópu menningarlega séð. Og erfðarannsóknir sanna skyldleika Grikkja og ákveðinna Afrískra ættbálka. Erðarannsóknir á Ítölum að þeir eru að stóru leyti að miðaustrænum uppruna. Helsta ástæða þess er ekki að margir múslimar og gyðingar flúðu til Ítalíu á sínum tíma. Múslimarnir urðu kristnir og gyðingarnir til að byrja með crypto-gyðingar (og hundruðir þúsunda Ítala eru það enn) og hinir kaþólikkar. Nei, blöndun byrjaði í Rómaveldi. Rómversk menning var að stærstu leyti frá Grikklandi en Grikkir að eigin sögn þáðu hana frá miðaustrinu. Ef vagga Evrópu, Ítalía er í Afríku, að hluta og mannkynið allt er frá Afríku, hvað er eðlilegt við að aðgreina Evrópu frá Afríku? Ekkert bara vitfirring og viðbjóður! Evrópa verður að dufti og engu gerð. Og það er gott. Hún var aldrei til, bara blekking sem mun að engu verða gjörð þegar ljós skynseminnar rennur upp. Rasismi þinn er augljós þó þú reynir að dulbúa hann og eins mannhatrið sem knýr hann og er ástæða þess þig dreymir um "Evrópu" en ekki einn heim, þar sem verndun staðbundnir menningar er umborin en ímyndaða landsvæðisins "Evrópa" ekki. Evrópa er uppfinning manna, ekki vísindaleg staðreynd. Hún er lína dregin í sandinn sem verður strokuð út og að háði gjörð eilíflega og allir þeir sem tilbáðu þetta skurðgoð.

OWO (IP-tala skráð) 20.5.2013 kl. 13:37

29 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta er bara stóra myndin í aðalatriðum. Hugsanega mun N-Afríka vilja vera hluti af Evrópusvæðinu. Það er ekkert hægt að útiloka það. Jú jú, við getum alveg bætt því við: Evróða, N-Afríka og V-asía mynda eitt svæði - allir sáttir?

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.5.2013 kl. 13:42

30 identicon

Nei. Allur heimurinn verður eitt pólítískt svæði, engin undantekning, með sameiginlega tungu. Um leið verður sérstök rækt lögð við þjóðtungur og þjóðlega menningu, vegna varðveislugildis sem slíkt hefur fyrir sameiginlega menningu alls mannkynsins og þá lærdóma sem draga má af fortíðinni. Forréttindi Evrópumanna verða afnumið sem og hið rasíska og úrelta hugtak "Evrópa" og "Evrópumenn". Alfarið og með öllu. Séð verður til að Evrópu þjóðir taki sér aldrei framar vald yfir öðrum þjóðum, né sameinist á nokkurn hátt aðgreindar frá öðrum og myndi með sér nein sérhagsmunabandalög. Glæpsamleg fortíð Evrópu verður kennd um allan heim sem víti til varnaðar, hroki hennar og rasismi og Eurocentrismi í öllum sínum myndum. Fordæming verður arfleið þess ein. Lög munu koma í veg fyrir að þetta fái í nokkurri mynd aftur snúið. Og vald sem kemur frá fólkinu sjálfu, upplýstu, nýju mannkyni. Evrópa mun hljóma sem viðurstyggð í eyrum allra og öll sambærileg hugtök. "Asía" og "Afríka" sem heildstæð menningarsamfélög eru heldur ekki til. Indverjar og Japanir eiga minna sameiginlegt en Íslendingur og Tyrki, þó báðir, annar hálf-Asískur og hin þjóðin að meirihluta til fædd á Ameríkuskaganum, þar sem allt stór-Reykjavíkursvæðið er og gríðarlegur hluti Íslands, vilji sér til aðhláturs kalla sig "Evrópumenn". Íslendingar sem hrjáðir eru þessum bábiljum oft með tilvitnun í "Evrópska menningu", þegar Bandarísk menning sem kallast "Amerísk" er þó á allan hátt nátengdari meginlandinu og Englandi en Íslensk. Hlegið mun að þessu í framtíðinni svipað og jarðmiðjukenningunni og hinni flötu jörð. Sjálfsmynd Eurocentrískra Íslendinga og svipaðra verður aðallega skoðuð af sálfræðingum sem sérstök stúdía í hámarki órökvísinnar og þegar skynsemin hættir að ná til manna og þeir búa sér til fráleitar hugsmíðar sneyddar öllum rökum.

One World Order (IP-tala skráð) 20.5.2013 kl. 14:22

31 Smámynd: Jón Valur Jensson

Öfgayfirlýsingamaðurinn, sem brennimerkir saklaust, gott fólk eins og Árna Gunnarsson sem "þjóðrembinga", er sjálfur hlynntur innlimun Íslands í Evrópusambandið og lýsir því hér yfir, að hann vilji hafa stóran hluta múslimaþjóðanna með í því ríkjasambandi (og sambandsríki ). Það verður nú meiri paradísin!!!

Jón Valur Jensson, 20.5.2013 kl. 15:44

32 identicon

Skoðum aðeins raunveruleika málsins. Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga er fæddur í heimsálfu sem kallast Ameríka. Nágrannar okkar í Vestri kallast Kanadamenn og Bandaríkjamenn. Þegar skoðuð er menning þeirra landa, sérstaklega Bandaríkjanna, er öllum augljóst að hún er mun "Evrópskari", á meira sameiginlegt með Evrópu sem álfu, en hið fjarlæga og einangraða eyland Ísland. Mataræði, tunga og velflest menningar einkenni Bandaríkjamanna eru bresk að stærstu leyti, kryddaðir með samskonar samanbræðningi annarra þjóða meginlandsins og útkoman hefði orðið ef ESB hefði verið stofnað fyrir þann tíma er lönd eins og Albanía, Tyrkland eða Bosnía töldust hluti af ESB. Gamalgrónir Bandaríkjamenn, meirihluti þjóðarinnar, eru blanda af germönskum og keltnöskum þjóðum, nákvæmlega samskonar blanda og Íslendingar, með þeim mun að sögulega og menningarlega eru þeir mun nátengdari meginlandi Evrópu en hinir sérvitru og sér á parti eyjarskeggjar lengst á Norðurpólnum Íslendingar. Sömu Íslendingar og lögðu blátt bann við samskiptum íslenskra stúlkna og hermanna og viðhöfðu rasisma gegn Ameríkönum og þykjast nú sem þjóð þar sem ríki "evrópsk menning" tengjast Evrópuskaganum eitthvað meir en til dæmis Kanada (Evrópskara landi en Ísland, þó með öðru sniði en BNA og tengdara óskildari löndum eins og Frakklandi, þar sem afkomendur Íslendinga sem telja sig vera Íslendinga telja orðið næstum 2/3 þess fjölda sem byggir Ísland sjálft!

Hvað kallast þetta?

Veruleikafirring?

Fáfræði?

Sjálfsblekking?

Minnimáttarkennd?

Afdalamennska?

Fáfræði?

Heimska?

Eða...hvað með hroki?

rasismi?

kynþáttahatur?

Svar: Evrócentrískir Íslendingar þjást af þessu síðasta þrenna sem nefnt var. Engin heil brú eða rökhugsun nær yfir hugsunarhátt þeirra og engar góðar hvatir búa á bak við hann. Hroki og mannhatur er drifhvati þeirra.

Vestur-Íslendingur (IP-tala skráð) 20.5.2013 kl. 16:58

33 identicon

Og höfum gát á því að hrokinn dylst oft í gerfi hræsninnar. Hatrið getur hjúpað sig væmni. Þannig réttlæta þessir Eurokratar fyrir sér hatur sitt og hroka fyrir sjálfum sér. Þeim eitt er til bóta að af nokkru ræðst þetta af minnimáttarkennd smáþjóðar sem var lengi kennt að líta upp til Dana sem æðri þjóðar en þeir sjálfir. En þeim á móti er að það er einmitt minnimáttarkenndin sem veldur mestu tjóni og þjóðarmorðum í heimi hér. Ófá konan hefur verið hötuð fyrir að vera of fögur. Ófár maðurinn fyrir að vera of duglegur og auðugur. Og heill þjóðflokkur þurfti að ramba á barmi glötunnar afþví Evrópumenn öfunduðu hann fyrir greind sína og andlegt atgerfi tilkomið afþví þeirra hámenning er mörgþúsund ára, meðan barbararnir í Norður og Mið-Evrópu höfðu aðeins lært lestur og skrift fyrir örfáum öldum. Það eitt og sér útskírði að hluta fjölda afburðarmanna, nóbelsverðlaunahafa og stórkostlegra andans manna, en af risum þýskrar menningar var bæði aðalvísindamaðurinn, og stórhluti frægustu skáldanna og heimspekinganna, tónskáldanna og annarra afburðarmanna af gyðinglegu bergi brotinn, sem og stórhluti þeirra sem sköruðu fram yfir á öðrum sviðum, langt framyfir það sem tíðkast um svo lítið hlutfall meðal þjóðarinnar eða eðlilegt má halda og það þótt auðæfi hinna sömu hafi verið stórlega ofmetin eins og sagan sýnir og ritað er. En í öfund vildu þeir myrða þetta fólk, öfund sem kviknaði af minnimáttarkennd. Við Íslendingar verðum að uppræta Danasnobbs minnimáttarkenndina úr hjörtum okkar því hún er kveikja birtingarmyndar minnimáttarkenndarinnar hrokans og alls ills sem af honum leiðir, en hroki getur auðveldlega endað með morðum, sama hversu hann dulbýr sig í hræsni og slepju. Minnimáttarkennd drepur. Það er minnimáttarkennd sem fær Tyrki til að ímynda sér þeir séu Evrópuþjóð, svipaðir Þjóðverjum eða Hollendingum sem sagt, sama minnimáttarkennd og knúði Ataturk til að banna hefðbundin tyrkneskan klæðnað og menningu og skipa mönnum að bera vestræna hatta á höfði. Við vitum þeir eru bara að bulla og rugla. Og allir aðrir sjá í gegnum okkar sjálfsblekkingum og vitum að við erum að bulla, við staðsett á Ameríkuskaganum fjarlæg öðrum og menningarlega og sögulega mun fjarskyldari venjulegum Evrópumanni en Bandaríkjamennirnir sem við hötumst út í í kynþáttahatri okkar og heimóttarmennsku þeirri sem var ástæða heita eins og "Kanamella" sem stúlkur sem dirfðust að líta "óevrópskan" mann augum voru kallaðar. Rífum okkur upp úr þessari hallærislegu sveitamennsku. Verum local og þannig global eins og Bubbi segir. Annað er bara fráleitt hallærislegt og vekur bjánahroll með þjóðum heims. Við erum lítið eyland í norðri. Hluti af Norðurslóðum. Hluti af heiminum. Fæst fædd á Evrópuskaganum. Og eigum enga náfrændur lengur nema í Kanada. Sættum okkur bara við þetta. Við erum nógu góð eins og við erum. Maður sem veit hver hann er og þykist ekki vera annað drepur engann.

Vestur-Íslendingur (IP-tala skráð) 20.5.2013 kl. 17:09

34 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Því meir sem öfga-kjánarembingar tjá sig - því betur sannast mitt mál.

Hitt er svo önnur og sérstök umræða, hve ótrúlega algengt er að innbyggjarar hérna séu haldir öfga-kjánaþjóðrembingi.

Hvernig þeir undirbyggja síðan rembinginn hjá sér - er með miklum þekkingarskortsfádæmum og fáfræði-öfgum.

Það er ekkert skrítið að hér hafi orðið hrun 2008.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.5.2013 kl. 17:22

35 identicon

Þú ert með öfga-kjána-Eurocentric-bjána-rembing og gamaldags þraus og rugl frá rómantíska tímanum sem datt blessunarlega úr tísku 1945.

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 20.5.2013 kl. 20:02

36 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ekkert skilt við það. Akkúrat ekki neitt. Kjánaþjóðrembingar eru hinsvegar beint áframhald af því. Það er alveg merkilegt hve hrifnir sumir eru af einræðisherrum og horfnum tímum.

Þróun er eg lýsi er í raun löngu hafin. Þetta blasir við.

Lönd sem ætla að einangra sig inní þjóðrembingshnút eiga enga framtíð fyrir sér.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.5.2013 kl. 20:21

38 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

http://www.youtube.com/watch?v=UF5NUSu1qRg

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.5.2013 kl. 21:08

39 identicon

K (IP-tala skráð) 21.5.2013 kl. 00:06

40 identicon

Lestu textann sem fylgir með

K (IP-tala skráð) 21.5.2013 kl. 00:07

41 identicon

Og hér er leiðtoginn mikli sem er ástæða þess Evrópubúar hættu að "höggva mann og annan" óendanlega og endalaust eins og í Íslendingasögunum. Hans raunverulega andlit.

K (IP-tala skráð) 21.5.2013 kl. 00:08

42 identicon

Svona var hann um það bil. http://www.youtube.com/watch?v=n2-0jU2-m6I

K (IP-tala skráð) 21.5.2013 kl. 00:32

43 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

http://www.youtube.com/watch?v=WB0vN1qGKCU

Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.5.2013 kl. 01:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband