14.6.2013 | 16:30
Elítustjórnarflokkarnir ráðast að þjóð sinni og taka til óspilltra handanna við að færa fjármuni til elítunnar frá smælingjunum.
Öllum jöfnuði skal útrýmt og barið duglega á almenningi. Gagnrýnendir og þeir sem benda á ofsagjörðir þessara manna mega búast við ofsóknum af hendi elítuflokkanna. Framsóknarþingmenn hafa nú flett af sér grímunni og þá kemur í ljós að mestanpart eru þetta elítumenn sem ætla að hygla sjálfum sér og frændgarði - eins og vanalega þegar um framsóknardindla er að ræða.
Það er alveg merkilegt og verðlaunarvert hve þjóðin lætur framsóknarflokkinn endalaust lokka sig í gapastokkinn.
Sjallamannaflokkur kemur eigi á óvart og fylgir sínum auðmanna og elítuprinsippum.
þetta er óhugnalegt og umtalsverð hætta á að elítan rústi landinu hérna bæði vegna óvitaháttar og heimsku pólitísku armanna og í annan stað vegna þess hve græðgislega þeir framsjallar graðka í sig feitu bitunum úr þjóðarkjötkatli.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2013 | 00:07
Þjóðmenning er flatkökur, flatt þunnt brauð og pönnukökur.
Það er ekki ofsögum sagt að skrípaöfgastjórn hægrikurfaflokkanna sem lugu og sviku sig til valda á dögunum sé bæði hneykslanleg og hlægileg. Núna síðast hefur nefnd stjórn gefið út skilgreiningu á hvað þjóðmenning er. ,,Flatkökur, flatt þunnt brauð og pönnukökur".
http://www.dv.is/frettir/2013/6/13/serstok-politisk-hersla-thjodmenningu-hefur-ekki-alltaf-endad-vel/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)