Færsluflokkur: Bloggar

Raunstefna framsóknarflokksinns í málefnum ,,heimilanna í landinu hérna!": Allir eiga að búa í gámum.

Það linnir ekki skandaliseringum þeirra framsóknarmanna eftir að þeir komust með klækjabrögðum, sumir segja óheiðarlegum og ósiðlegum, að kjötkötlunum.

Það nýjasta í framsóknarbransanum er það að þeir hafa opinberað hver nákvæmlega stefna þeirra í málefnum almennings er.

Allir eiga að búa í gámum!

Það er ekkert betra en búa í gámi og vera best í heimi á öllum sviðum glóbalt og auk þess frábærlegust og þá sennilega af genatískum ástæðum grúndígt ásamt menningarlegum í bland. 

Ofansagt hafa þeir framsóknarmenn tilkynnt innbyggjum.

Sumir segja að skýringin á þessu afkáranlega háttalagi þeirra framsóknarmanna sé, að þeir hafi allir verið hálffullir og vitlausir þegar þeir sömdu þetta.

Jú jú, það er kannski einhver afsökun í því.  Vissulega. 


Sífellt fleiri innbyggjar fá upp í kok af framferði framsjallaelítunnar.

Það er alveg ljóst að sífellt fleiri sjá ofsa- og öfgaframferði framsjalla gegn almenningi og jafnframt tekur fólk auðvitað eftir því að þeir framsjallar og elítusnáðar eru pungsveittir alla daga við að moka fjármunum almennings undir elíturassana.

Sjallar eru að verða búnir að rústa heilbrigðiskerfinu á aðeins einu ári.  Læknar flýja nú undan þeim sjöllum hver sem betur getur.  Annað eftir því.

Framsóknarmenn náttúrulega bara eins og fífl líkt og vant er síðari áratugi með það flokkræksni.

Framsjallar eru barasta að rústa þessu samfélagi.  Eyðileggja það.  

Það virðist vera sem strategía framsjalla varðandi rústalagningu sé tvíþætt núna.  Þ.e.a.s. að bæði ætla þeir að rústa efnahagslega - og jafnframt ætla þeir að rústa samfélaginu.

Er gjörsamlega óskaplegt hvernig elítusnáðarnir haga sér og það virðist aðeins vera til eitt ráð til að stoppa þá af.

Etitt ráð.  Nefnilega að einhver labbi sér þarna niður á Austurvöll og hendi þessu barasta útum gluggann.  

Eg er ekki að sjá að þeir muni hætta rústalagningaáformum sínum fyrr en að þeir lenda á elíturassinum í drullupolli fyrir utan gluggann einhversstaðar þarna niðurfrá. 


Sýrðir sjallar.

Ef þetta er ekki dæmigert fyrir sjalla - þá veit eg eigi hvað.

Það er alveg sama hverju þessir menn koma nálægt, að allt skal miðast við að berja á almúganum og níðast á þjóðinni. 

Óvita- og afglapahátturinn algjör líkt og krúsíalt lygavælan sem frá þessu kemur ásamt própagandahroða.  Yfirgengilegt svo af ber.

Eigi bætir það sjalla á nokkurn hátt að hafa framsóknarvitleysingana sem vikapilta.  

Framsóknarmönnum tekst alltaf að gera vont verra. 


mbl.is Undanþágan verði afnumin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rífandi gangur í efnahagslegum óvitaskap framsjalla.

Það stefnir allt í öfuga átt í efnahagsstærðum og ef þjóðhagfræði er beitt á efnið - kvikna rauðu ljósin.  Viðvörunarmerkin.

Það er allt þveröfugt við það sem sjallar sögðu.  Þveröfugt.  Látum nú vera þó ekkert standi sem framsóknargemsarnir segja enda reiða þeir nú ekki vitið í breiðum þverpokum sem kunnugt er.

Einkaneysla eykst, útflutningur minnkar, innflutningur eykst mikið og fjárfestin er ekki neitt neitt og miklu miklu minni en spáð var.

https://www.arionbanki.is/library/Skrar/Greiningar/onnur-efnahagsmal/190914_Landsframlei%C3%B0sla_Q2.pdf

Það þarf víst ekki að segja mönnum hvað þetta þýðir, býst eg við. 


Skilaboð framsóknarmanna til unglingahjarðar þessa lands: Dettið í´ða!

Það hefur vakið nokkra furðu meðal landsmanna predikanir framsóknarmanna á fundikvöldi hjá háskólanemum.  Þar komu framsóknarmenn, óboðnir að eigin sögn, og fluttu fram erindisstúfa um sín hugarefni, pólitísk sem önnur.

Athygli vakti að meginboðskapurinn til unglinganna virtist vera,  að allir ætti núna bara að fara á fyllerí.  Verða blind, rúllandi fullir.  Vera á framsóknarrassgatinu, eins og sagt er um fulla menn.

Velta menn talsvert vöngum yfir þessu.

Segja sumir að nú sé af sem áður var þegar framsóknarmenn fóru til kosninga með það að uppleggi að ísland yrði vímuefnalaust árið 2000.  Núna eiga bara allir að detta í´ða 


Svokölluð ísl. króna veikist og veikist.

Það er augljóst að eitthvað er í gangi og ef ekki koma afmarkaðar skýringar á þessu - þá er um að ræða undirliggjandi þrýsting sem líklegasta orsakast af afglapa- og óvitahætti Ójafnaðarstjórnarinnar.

http://www.m5.is/?gluggi=gjaldmidill&gjaldmidill=22

Merkilegt samt að enginn fjölmiðill hafi tekið eftir þessari veikingu.

Sem dæmi, þá flutti LÍÚ-Moggi og framsjallafjölmiðlar allir ásamt sérlaunuðum vikapiltum sínum, linnulítið mörgum sinnum á dag á marga, marga mánuði og ár, löng og stutt erind  þegar alvörugjaldmiðilinn Evra var að veikjast gagnvart dollar eitthvað brota, brota, brota brota brot úr prósenti.

Soldið átsetending. 


800 milljarðar á leiðinni til íslendinga. Segi og skrifa. 800 milljarðar.

"... að svigrúmið geti numið um 800 milljörðum króna. Það er a.m.k. ljóst að um leið og leifar efnahagshrunsins verða gerðar upp mun gefast tækifæri til að koma til móts við heimilin og gera aðrar ráðstafanir til að rétta stöðu íslensks samfélags."

  http://sigmundurdavid.is/thetta-er-leidin/

Eða voru framsóknarmenn að ljúga? 

 


mbl.is Vogunarsjóðirnir fá bráðum greitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grænlendingar ætla að krefjast meira en 100.000 tonna makrílkvóta og beita sér af hörku. Samningviðræður verða ekki fyrir börn, segja grænlendingar.

Það er aldeilis klúðrið sem framsóknarmenn og LÍÚ eru búin að koma sér í á kostnað almennings á Íslandi.  

,,Grønland ætlar sær meira en 100.000 tons av makreli næsta ár. Samráðingarnar um makrel vera grótharðar, tær vera ikki fyri børn, sum aðalstjórin í grønlendska fiskimálaráðnum, Jørgen Isak Olsen, tekur til í samrøðu við danska blaðið Politiken.

Sagt verður tó ikki, hvønn Grønland skal samráðast við um markrel.

... 

http://kvf.fo/greinar/2014/09/22/grothardar-samradingar-um-makrel-ikki-fyri-born

Grænlendingar ætla náttúrulega að samráðast við framsóknarmenn og LÍÚ um makrílinn, býst eg við.

Jafnframt fréttist ekkert af málum Brimnes sem tekið var af gæslunni.  

Eg hefði haldið að LÍÚ-fjölmiðlar hérn í fásinni mundi flytja frekari fréttir af þeirri stórfurðulegu uppákomu. 


Mun Ólafur Ragnar hverfa næst þegar hann fer á hnjánum í smjaðursheimssókn til Kína?

Talsvert eru þjóðbelgingar og framsjallar núna hissa yfir því að í Kína hverfa pólitíkusar eða embættismenn bara si sona.  Koma allir alveg af fjöllum.  Alveg bara:  Haaa?  Eins og hálfvitar!

Samt hef eg marg, margsagt fólki að Kína er mannréttindabrotaríki!  Margsagt þeim það og stafað ofaní eftir atvikum með hástöfum.

Það er allt önnur viðhorf og línur þar en á Vesturlöndum.

Það er eins og framsjallar og þjóðbelgingar viti það ekki.  Jafnvel þó eg hafi marg, margsagt þeim það.

Það er alveg spurning hvort Alþingi ætti ekki að setja lög sem banna forsetanum að vera að þvælast til mannréttindabrotaríkja þar sem ómögulegt er að reikna út viðbrögð eða aðgerðir stjórnvalda.  

Banna honum það barasta. 


Bankar og hvernig þeir virka varðandi inn- og útlán.

Eg met það svo, að nauðsynlegt sé að skerpa á einu atriði varðandi banka og undirstrika þangað til hver maður skilur.  Og þetta er alveg burséð frá því hvaða augum menn líta banka.

Innstæður eru ekki geymdar bara í skúffum í bankanum.  Það fyrsta sem bankinn gerir er að lána þessa peninga út.  Peningarnir eru svo settir aftur inní bankann að hluta til - og þeir peningar lánaðir aftur út og svo koll af kolli en samt ekki uppfyrir ákveðinn ramma sem settur er þar um.  

Þetta tengist svo allt Seðlabankanum og ríki með einum eða öðrum hætti og ekki síst Seðlabanka sem hefur peningaútgáfuvald.  Seðlabankinn er alltaf móðir allra banka í ríkjum.

Ok. Bankinn er alltaf nánast tómur af seðlum.  Fólk skilur það?  Já.  Gott.

Þ.a.l. eru bankar teoratískt alltaf tómir að innan, í vissum skilningi.

Þetta er ekki eins og kall einn á stað einum á Íslandi í upphafi 20.aldar hélt, að bankinn geymi bara peningana í skúffu hjá sér.

Þá var það þannig að fjármálastofnun ein var að fara á höfuðið og efnið var umtalað í samfélaginu og menn ræddu mikið um.  Kall einn sérlundaður hafði lagt peninga þarna inn og hafði þá þann háttinn á að hann lét bankann hafa peninginn í lokuðum umslögum.  Í tilefni umræðna um væntanlegt fall bankans sagði kallinn:  Ja, ef þeir hafa opnað umslögin mín - þá skulu þeir eiga mér að mæta!

Ástæða þess að eg segi þessa sögu er - að það er eins og sumir íslendingar, jafnvel margir, haldi í dag og þessi misserin að bankar virki svoleiðis.  Að þeir geymi innstæður ofan í skúffu hjá sér álíka og gjaldkeraskúffunni.

Er ekki svoleiðis.  Peningarnir fara beint út.  Bankinn alltaf (nánast) tómur að innan. 

Þessvegna innstæðutryggingar.

Innstæðutryggingar eru fyrst og fremst til að fólk geti fengið peninga sína strax ef eitthvað kemur uppá.   Að öllu jöfnu ætti síðan að nást uppí innstæður með sölu eigna þrotabankans með tíð og tíma - en innstæðutryggingar eru til að tryggja neytendur fyrir biðinni.  Að neytendur fái sitt strax.  Umrætt er því risastórt neytendamál.   

Hvernig þær eru fjármagnaðar eða implementeraðar er á höndum hvers ríkis.  Flest ef ekki öll ríki koma því þannig fyrir að fjármálastofnanir borga síðan kostnaðinn við dæmið þá ríkið þurfi að hlaupa undir bagga tímabundið.

Í umræðu hér uppi er búið að snúa þessu neytendamáli alveg á haus - og rúmlega það. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband