Færsluflokkur: Bloggar
14.5.2015 | 23:05
Það er alltaf jafnmikið gott að frétta frá ESB.
Það breytist ekkert. Allt í gúddý.
Hugsa sér að svokallaðir ,,andstæðingar Evrópusambandsins" hafa í mörg, mörg, mörg, mörg ár djöflast og andskotast með það að allt væri ,,að hrynja" í ESB á morgun eða hinn.
Svoldið sérstakt költ þessir andstæðingar Evrópusambandsins á Íslandi. Og merkilegt að þeir skuli fá einhverja til að trúa sér þegar það liggur alveg fyrir að ekkert kemur frá þeim nema lygi og þvaður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.5.2015 | 23:54
Ríkisskattsjóri dregur til baka álit um þrotabú og skatta. Ekki nógu nákvæmt og olli misskilningi.
,,Bindandi álit nr. 2/2015 afturkallað.
Ríkisskattstjóri hefur í dag afturkallað bindandi álit nr. 2/2015.
Komið hefur í ljós að undirbúningi þess var áfátt þar sem í álitinu er ekki nægjanlega glöggur munur gerður á eftirgefnum skuldum rekstraraðila og ógreiddum kröfum við lok gjaldþrotaskipta. Verður því nýtt álit gefið út innan fárra daga.
Ríkisskattstjóri biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa"
https://www.rsk.is/um-rsk/frettir-og-tilkynningar/bindandi-alit-nr-2-2015-afturkallad
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2015 | 15:06
Það eru miklu meiri fordómar í íslensku samfélagi en margir ætla.
Oft er svona stemmingin á Íslandi að, við erum svo frjálslynd og hitt og þetta er ekki hér o.s.frv. o.s.frv. o.s.frv. Málið er bara að hér eru ótrúlegir fordómar og heimóttaskapur gagnvart útlendingum, öðrum kynþáttum, öðrum trúarbrögðum en kristni, samkynhneigð og so videre. Þetta er miklu sterkari tendens í samfélaginu en almennt er talað um á yfirborðinu. Maður verður trekk í trekk alveg krossbit yfir skoðunum og fordómum íslendingar gagnvart ýmsum málefnum. Oft eru fordómarnir þannig, að hitt og þetta er sko allt í lagi, - þangað til það kemur of nálægt mér! Þá er það ekki í lagi. Það er eins og fólk stundum fatti ekki sjálft eigin fordóma.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2015 | 00:28
Það getur alveg komið list frá fleiri stöðum en Reykjavík.
Sem dæmi má nefna Christoph Buchel sem er lítið þekktur í Reykjavík en talsvert þekktur á Seyðisfirði enda kemur hann þaðan og frá Sviss og var síðan sendur fyrir Íslands hönd á heimslistasýningu í Feneyjum. Goddur sagði í kvöld, eitthvað á þá leið, að íslenskir myndlistamenn hefðu ósköp lítið að segja og þessvegna hefði verið leitað til þeirra seyðfirðinga. Góður!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2015 | 16:51
Það er ótrúlegt hve sjallar eru ómerkilegir og óskammfeilnir við að seilast í fjármuni þjóðarinnar.
Að Bjarni Ben, þessi hortugi sjallagutti, skuli voga sér að láta hannes hólmstein fá margar, margar milljónir til að skrifa skýrslu útí bláinn þar sem vitað er að hann hefur hvorki hunds- né kattarvit á ómerkingurinn sá. Þetta styðja sjallar. Svona andskotans aumingjaskap og spillingu og hreinlega þjófnað. Það er svo svakalegt hvernig sjallar haga sér að það er varla hægt að nota orð um það. Þjóðin er sem lömuð af ofstopa sjalla og óheiðarleika.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2015 | 21:56
Fólk flýr SDG og Bjarna Ben. Sem vonlegt er.
,,Landflótti eykst á ný.
Fólksflótti frá Íslandi er að aukast á ný. Þetta sýna tölur Hagstofunnar. Verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun segir suma vera að flýja ástandið hér heima en uppbókað er í námskeið sem kennir fólki að flytja til Norðurlanda." ...
http://www.visir.is/landflotti-eykst-a-ny/article/2015150519818
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2015 | 14:10
Troðfullt við listasýningu íslendinga í Feneyjum. (Myndband)
Almennt eru menn á einu máli um að verkið sé afar áhugavert og flestum þykir mikið til koma. Einhverjir voru þó önugir. Td. var trúarprófessor sem neitaði að fara úr skónum og hringdi síðan á 113. Þeir íslendingar skýrðu út, að hann mætti alveg vera í skóm en mætti bara ekki labba á einhverju teppi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2015 | 12:03
Æ æ æ æ. Allt handbært fé horfið.
En þetta var viðbúið. Það liggur alveg fyrir að framsjallar kunna ekkert með fjármuni að fara. Það hefur aldrei, aldrei, gefið góða raun að setja peninga í hendurnar á framsjöllum. Og sýnir sig og sannar núna sem endranær. Allt horfið. Allt farið í botnlausa hít hinna betur stæðu í samfélagi.
![]() |
Versnaði vegna leiðréttingarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2015 | 14:43
Hvenær koma 800 milljarðarnir hans sdg?
,,Leysa þarf aflandsmál áður en útgönguskattur er settur.
Útgönguskattur kemur varla til greina sem tæki til að losa fjármagnshöftin fyrr en aflandskrónuvandinn hefur veruð leystur og útgreiðslur úr slitabúum lokið, að mati hagfræðinganna Ásgeirs Jónssonar og Hersis Sigurgeirssonar. Nú stendur yfir blaðamannafundur þar sem þeir kynna skýrslu sem þeir unnu fyrir slitastjórn Glitnis."
...
http://www.visir.is/leysa-tharf-aflandsmal-adur-en-utgonguskattur-er-settur/article/2015150509483
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.5.2015 | 16:34
Það er ekkert mál að afnema höftin.
Aðalmálið er og það sem um er deilt, er hvort Ísland græði 800 milljarða á því eða 1000 milljarða. Um það er deilt. Það er eins og allir átti sig ekki á þessu. Þetta byggist allt á einu skoti sem framsóknarmenn ætla að hleypa af úr afsagaðri gamalli haglabyssu. Það er að vísu eitthvað deilt um innan framsóknar hvort frosti eða sdg eigi að vera skotmaðurinn en það verður bara leyst innanflokks.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)