Færeyjar, Norðmenn og ESB við LÍÚ-Framsjallann: Vertu úti vinur! Fullorðna fólkið þarf að tala saman.

Þau tíðindi bárust uppí framsjallafásinnið að búið væri að semja um makrílinn.  Framsjallar komu náttúrulega af þjóðrembingsfjöllum.  Vissu ekki neitt.  Efasamt er að þeir viti hvað orðið ,,að semja" merkir.  Þessvegna gátu þeir auðvitað ekki vitað neitt.  Alltaf til stórskammar fyrir Ísland þessi elíta og sérhagsmunaklíkur.  Skipting makrílsins er þessi:

Sirka  279 000 tonn til Nojara, sirka 611 000 tonn til ESB og sirka 156 000 tonn til Færeyinga.  þá eru sett sirka 42 000 tonn ælþjóðlegum sjó sem stjórnað er af  NEAFC.

http://www.regjeringen.no/nb/dep/nfd/pressesenter/pressemeldinger/2014/Enighet-om-trepartsavtale-om-makrell.html?id=752940

Þá segja norsku sjávarútvegssamtökin að heildarkvóti sé ákveðinn  1.240.000 tonn.

http://fiskebat.no/Default.asp?page=9242&item=58228,1&lang=1

Ef það síðasttalda er rétt - þá virðist vera hugsað fyrir álíka kvóta til Íslands og Færeyja.  Og það var það sem búið var að tala um.   Spurning með Grænland.

Það sem skiptir ekki síður máli en kvótatölur eru samningar um gagnkvæmar heilmildir til veiða í sjó hvors annars.  Ekki er alveg ljóst hvernig því er háttað - en svo virðist sem færeyingar hafi samið um veiðar í norskum sjó þegar makríllinn er hvað verðmætastur. 


Á efirfarandi myndbandi má sjá bestu rokk/popp hljómsveit sem verið hefur á Íslandi ever. Tvímælalaust.

Jú jú, það má alveg segja að margir aðrir íslenskir einstaklingar eða hljómsveitir hafi samið betri og merkilegri tónlist og þá ekki síst í alþjóðlegu samhengi o.s.frv.  Það er vissulega svo.  En eg er að meina að þessi hljómsveit er langmerkilegust og besta hljómsveit í íslensku samhengi og miðað við innanlandsmarkað og íslenskan hugarheim.  Lang merkasta og besta.

Þarna ber fyrst að líta til að erlendir aðilar koma að þessu þó þeir aðilar séu vissulega með íslenskan hugarheim og rætur að hluta til.   Grúbban er alveg gríðarlega þétt,  allt rétt gert og hún fittar í heildina saman.  Bandaríkin, Raufarhöfn, Reykjavík.  Alveg merkilegt hve grúbban nær að tengja sig þéttingsfast í eina heild.

Samt er það söngvarinn sem gerir útslagið.  Sviðsframkoma mannsinns var algjör nýjung í íslensku samhengi.   Þó erlendar fyrirmyndir leyni sér ekkert - þá nær hann að gera þetta á svo íslenskan hátt,  fyrirhafnalaust og líkt og af eðlisávísun,  að merkilegt verður að teljast.  Engu líkara en hann sé að koma beint frá beitingarbalanum og hljóðneminn og snúrurnar í höndum hans líkt og beitingarlína.

Performansinn, sviðsframkoman,  er svo sterk og afgerandi - að algjört knockout er.    Hvorki fyrr né síðar hefur nokkur hljómsveit á Íslandi komið fram sem kemst nálægt ofanlýstu.  Þessvegna besta og merkast rokk/popp hljómsveit á Íslandi og eftirfarandi myndband er merk heimild um sögu Íslands.

 

 


Meirihluti vill þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Sambandinu. Stuðningur við aðild mikill.

,,72% þeirra sem tóku afstöðu í könnuninni eru hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið. 21 prósent svarenda er á móti því, og 7% eru hvorki með né á móti.

Könnunin var gerð 27. febrúar til 5. mars, eftir að þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um að draga umsókn að ESB til baka var lögð fram á þingi.

Þeir sem eru 65 ára og eldri eru andvígastir þjóðaratkvæðagreiðslu, 31% þeirra vill hana ekki. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu vilja heldur atkvæðagreiðslu en þeir sem búa á landsbyggðinni.

Netkönnunin var lögð fyrir 1400 manns og 61% svaraði.

Einnig var spurt hvernig svarendur myndu greiða atkvæði ef framhald aðildarviðræðna yrði borið undir þjóðaratkvæði í dag. 59% þeirra sem taka afstöðu myndu örugglega eða líklega kjósa að halda viðræðum áfram. 41% myndi örugglega eða líklega greiða atkvæði með því að viðræðum yrði hætt.

(...) Í könnuninni var líka spurt um afstöðu til aðildar að Evrópusambandinu. Fleiri eru hlynntir aðild nú en þegar síðast var spurt í Þjóðarpúlsi, sumarið 2010. Þá mældust 26% með aðild en 59% voru á móti. Nú segjast ríflega 37% aðspurðra vera hlynnt aðild. Nærri 47% eru andvíg og 16% eru hvorki hlynnt né andvíg." http://www.ruv.is/frett/meirihluti-vill-thjodaratkvaedagreidslu


Um 65% þjóðarinnar vilja klára Aðildarsamning við Sambandið samkvæmt skoðanakönnunum.

Þetta er alveg sláandi.  Svo standa andsinnarnir með þjóðrembingssvipuna líkt og einhverjir harðstjórar og segjast vera sjálfskipaðir talsmenn þjóðarinnar.  Það eru tvær skoðanakannanir sem sýna tvímælalaust og afdráttarlaust vilja kjósenda til að Aðildarsamningur sé kláraður.  

Bæði könnun sem fréttablaðið gerði:  http://www.visir.is/tveir-af-thremur-vilja-ljuka-esb-vidraedum/article/2014703019913  og svo könnun sem MMR gerði en sú könnun er þó sérkennilega orðuð en það er að vísu viðloðandi það fyrirtæki að orða spurningar sérkennilega:  http://www.mmr.is/frettir/birtar-nieurstoeeur/379-meirihluti-vill-halda-adhildarvidhraedhum-vidh-evropusambandidh-opnum

Hjá MMR er jafnvel enn meir afgerandi niðurstaða.   Og nei, það þýðir ekkert að segja ,,fréttablaðið bla bla" o.s.frv. því könnun Fbl. er alveg framkvæmd á hefðbundin hátt og kannanir sem það blað gerir hafa ekkert reynst verri að meðaltali en þær sem aðrir gera.

Það sem er svo mest áberandi við afstöðuna hjá MMR er þessi munur á milli höfuðborgar og landsbyggðar.  Furðulegur og umhugsunarverður munur á afstöðu manna. 


Þetta er barasta rangt hjá honum með svokallaða gengisvísitölu.

Þessi blessaða gengisvísitala er beisiklí sú sama nánast frá hruni og líka síðust 12 eða 14 mánuði eða hvað menn vilja nefna í það og það skiptið.  Mér virðist vera mikil blekking í orðum manna og kvenna sem tala núna uppá síðkastið um ,,ógurlega stykingu" svokallaðrar krónu.  Þetta er blekking til peppa upp þjóðrembing.  Enda, gjaldeyrishöft?  Einhver heyrt um það??  Það eru gjaldeyrishöft hérna og þau nokkuð stöng.  Og virðast vera að herðast ef eitthvað er.

http://www.m5.is/?gluggi=gjaldmidill&gjaldmidill=22


mbl.is „Ábyrgð þessa fólks er mikil“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fregnir af Evrópu: Fleiri en 20 sérstök fiskveiðistjórnarsvæði innan ESB. Íslensk löggjöf yrði lögð til grundvallar

,,Reyndir samningamenn sem Evrópubloggið hefur rætt við eiga erfitt með að skilja staðhæfingar lögfræðiprófessors og háskólakennara á Akureyri – sem hvorugir hafa tekið þátt í aðildarviðræðum eða alþjóðasamningum svo vitað sé – um það hvað sé hægt að semja um og hvað ekki í viðræðum við Evrópusambandið.

Þessu er enn haldið fram þrátt fyrir að Björg Thorarensen, prófessor, sem ólíkt kollegum sínum var þátttakandi í viðræðunum og varaformaður samninganefndar, hafi lýst þeim miklu möguleikum sem séu á þvi að fá sérstöðu Íslands viðurkennda í aðildarviðræðum, meðal annars á sviði sjávarútvegs- og fiskveiða."

...

http://evropublogg.is/?p=682

Heldur aukast nú vandræði andsinna. 


Maðurinn sem samdi um varanlegar undanþágur við ESB.

Harmageddon ræðir við Per Ekström fv. ráðuneytisstjóra á Álandseyjum sem samdi við ESB um varanlegar undanþágur Álandseyja.   Hann býr hérna útí bæ og talar reiprennandi íslensku.  

http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP25179

Vandræðalegt fyrir andsinna.


Í Danmörku er heilbrigðisþjónusta ókeypis og almenningur fær kaup frá samfélaginu fyrir að mennta sig.

Eg hed að sama kerfi sé í Færeyjum og Grænlandi.

Hvernig stendur á því, að hér uppi í fásinni er almenningur látinn liggja hjá garði eins og á Miðöldum ef hann veikist og afhverju þarf fólk að setja sig í skuldafjötra ef það vill mennta sig?  (ofannefnt á ekki við framsjallaelítuna sem vonlegt er enda syndir hún í gullinu og fjármunum)

Ef allt er svona genatískt frábært hér af prumpuþjóðrembingi og öfgagenum til hægri og vinstri ofan á allar ,,auðlindirnar"  - afhverju er þá þessi munur í viðhorfi til almennings í samfélaginu milli þessara landa? 


Þjóðviljinn 1962: Gangi Noregur í Efnahagsbandalagið verður öll landhelgi Noregs almenningseign fiskiflota Vestur-Þýzkalands, Frakklands, ítalíu, Belgíu og Hollands að átta árum liðnum

,,að viðbættum brezka fiskiflotanum, ef tekst að þvæla Bretlandi í Efnahagsbandalagið! Og atvinnurekendur í þessum löndum fá þá sama rétt og Norðmenn sjálfir til þess að stunda atvinnurekstur í Noregi, setja þar fyrirtæki á stofn og flytja þangað erlenda verkamenn í tugþúsunda eða hundraða þúsunda tali. (...) Hvaða úrslitakosti hafa Íslenzku ráðherrarnir og sérfræðingar þeirra fengið. varðandi það að gera einnig landhelgi Íslands að almenningsgagni tugmilljónþjóða og fiskiflota þeirra? Er Emil Jónsson kannski enn að betla um gálgafrest fyrir Ísland og íslenzku landhelgina, nokkurra ára gálgafrest? Eða eru skilyrði Efnahagsbandalagsins um þetta ef til vill eitt þeirra leyndarmála, sem ráðherrarnir hvísla að Hermanni og Eysteini, en dulið er. öllum þorra þjóðarinnar þangað til búið er að beygja og múta nógu mörgum til að berja innlimun Islands í Efnahagsbandalagið gegnum Alþingi á einum eða tveimur dögum?" (þjóðviljinn 1962)

http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=217476&pageId=2796808&lang=is&q=Efnahagsbandalagi%F0

Vitleysingar á heimsmælikvarða.  En að öðru leiti, almennt séð, - eru sláandi líkindi við ,,málflutning" andsinna í nútímanum.  Alveg sláandi.  Alveg sömu megin vitleysis línurnar og málflutningurinn og þjóðrembungssvipan á loft ásamt svikabrigslum. 


Lífið er ljúft í ESB.

Sól og sumarylur.  En hér uppi í fásinni trekkur og kolsvört ásjóna andsinna í hvívetna, myrkvuð á allan hátt.  Þetta eru auðvitað engin ný tíðindi enda lýsti Múmínpabbi þessu vel fyrir Jóni Gnarr sem ræddi við hann ESB mál í opinberri heimssókn fyrir nokkrum árum.  Múmínpabbi sagði að það væri miklu betra eftir að Múmíndalur gekk í ESB ásamt Finnlandi:  ,,Ég átti gott samtal við múmínpabba. Hann sagði mér að lífið í Múmíndal væri mun betra eftir að Finnar gengu í ESB. Hann hvatti Íslendinga til að gerast aðili að ESB."

http://www.mbl.is/folk/frettir/2010/08/04/muminpabbi_hvetur_islendinga_til_ad_gerast_adilar_a/


mbl.is Óvenjuleg hitabylgja í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband