Heiðar ekki svaraverður.

Sí algengara er að sjá þau viðbrögð við sumum sjöllum - að menn nenna barasta ekki að svara þeim.   Segja bara:  Eigi svaravert.  End of story.

Í þessu tilfelli er vissulega í bígerð að svara manninum ef hann skrifar þá formlegt bréf - en viðbrögðin eru ígildi eftirfarandi:  Þú ert ekki svaraverður.

Eg mundi hafa áhyggjur af þessu í sjalla sporum.

Æ algengara að fólk nenni ekki að eyða tíma í að svara þeim.

Sjallar verða að læra að vanda málflutning sinn miklu betur.  Þeir hafa verið svo óábyrgir undanfarin misseri og ár í málflutningi og umræðu allri,  að það er bókstaflega eyðandi og stórskemmandi fyrir landið og lýðinn - að maður minnist ekki á allan skaðakostnaðinn sem af þeim hlýst.


mbl.is Segist ekki skilja ummæli Heiðars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það virkilega rétt að forsætisráðherra hafi 7 aðstoðarmenn?

Og hva? Hvað kostar þetta þjóðina?  7 aðstoðarmenn. Getur þessi maður virkilega ekkert gert og kann hann ekkert?

Með svo miklum eindæmum óskaparframferði Elítustjórnarinnar - að orð eru tæplega til í íslensku til að lýsa því.

Síðan er bara eitt verkefni sem þessir framsjallar eru í.  Seilast í vasa almennings og færa elítunni að gjöf.


,,þessi Rannsóknarskýrsla og þetta allt saman er að þvælast eitthvað fyrir okkur tímabundið."

,,Engu má breyta, enda þarf engu að breyta þar sem allt er í stakasta lagi: Bankahrunið 2008 var einhverjum öðrum að kenna en ríkisstjórnarverkum flokksins. Óbreytt Ísland er æskilegt því breytingar eru hættulegar í eðli sínu. „Þessi rannsóknarskýrsla og þetta allt saman er að þvælast eitthvað fyrir okkur tímabundið,“ sagði Ólöf Nordal, varaformaður flokksins, í maí 2010 rétt eftir að skýrslan var komin úr prenti og landinn hafði ekki einu sinni byrjað að ná utan um inntak hennar."

http://www.dv.is/leidari/2012/10/10/forhertur-flokkur/

bjarni_olof_0


mbl.is Bjarni ánægður með niðurstöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eitthvað að frétta af ,,hruni Evrunnar" sem þjóðrembingsbullukollar þvöðruðu hér um misserum og árum saman?

Ekkert að frétta?  Voru þjóðrembingar og öfga-hægri kjóar bara að ljúga?  Allan þennan tíma og allir þessir vitleysispistlar þar sem þeir þvöðruðu útí loftið?  Bara að ljúga vísvitandi?  Og ætla mennirnir ekkert að biðja þjóðina afsökunnar að djöflast svona á henni með ofbeldis-própaganda?  Ekki skrítið að þessir menn þegi núna og skammist sín.  Ennfremur er nauðsynlegt að fjármál samtaka sem stunda svona áróðurs-misþyrmingar á þjóðinni verði gerð opinber svo hún geti séð hver borgar brúsann.


Ekkert frést af afnámi gjaldeyrishafta og 800 milljörðum framsóknarmanna?

Ekkert frést?  

Mig grunar að þetta eigi eftir að enda eins og í Ný-Fundnalandi. Elítan þar rústaði landinu ítrekað með þeim afleiðingum fyrir rest,  að innbyggjar sáu enga aðra leið færa en að fá Kanada til að bjarga sér undan ofríki elítunnar. Hitt er svo annað mál vissulega, að það er alveg merkilegt hve almenningur hér er fús til að afsala sér öllum réttindum og ganga sjálfviljugur í gapastokk elítunnar undir þeim formerkum að ,,Landið vilji svo mikið vera sjálfstætt". Þessi rök halda engu vatni. Landið sem slíkt er bara hlutlaust. Íslandi er alveg slétt sama hvaða fyrirkomulag er. Slétt sama. Enda getur enginn fært fram nein skjöl eða gögn um vilja þess. Langbest væri og óskastaða, ef bakkað yrði aftur til svo sem fyrir 1900 og haldið áfram eðlilegu sambandi við dani.


Full ástæða til að hafa áhyggjur af öfga-hægri liðinu hérna sem sumt hvert er með ívaf af ofsa-kristni í pokahorninu.

Það er alveg full ástæða til að hafa áhyggjur af öfga-hægri liðinu hérna sem sumt hvert er með ívaf af ofsa-kristni í pokahorninu. Það hvernig þetta lið er sífellt að færa sig uppá skaftið og normalísera fordóma sína hringir í raun viðvörunarbjöllum. Þegar þetta klingir svona sífellt í eyrum allstaðar, Útvarp saga, blogg, facebook etc. - þetta getur smám saman haft áhrif á suma einstaklinga með skelfilegum afleiðingum. Það ótrúlega er svo að flokkur með svo merka og langa sögu eins og framsóknarflokkurinn skuli taka þetta lið uppá sína arma. Það er enn í fersku minni hvernig Skúla Skúlasyni var boðið inní betri stofu Framsóknarmaddömunnar í síðustu Borgarstjórnarkosningum undir lófaklappi formannsinns. Alveg ótrúlegt háttalag.


mbl.is „Þú veist að landráð eru dauðasök“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað að frétta af afléttingu gjaldeyrishafta, útgönguskatti og 800 milljörðunum?

Nei.  Ekkert að frétta.  Ríkisstjórnin er alveg fokked.  Gjörsamlega.  Hvert hneykslismálið rekur annað.  Þjóðin er farin að segja:  Ekki meir, ekki meir!

Það er alveg ljóst, og þarf ekkert að fara leynt með, að fjármálaráðherra er í vondum málum.

Með ólíkindum hvernig ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn á alþingi hagar sér gagnvart þjóðinni.  Það er eins og meirihlutinn hati þjóðina.  Eða allavega þann hluta hennar sem ekki er ofur-ríkur.  Og hún talar líka þannig.  

Þetta er ekki boðlegt og nú gæti farið að draga til tíðinda.  Botninn er algjörlega dottinn úr framsjöllum.  Þeir bulla bara.

Það er þó eftirtektarvert hve vel almennir framsjallaþingmenn hlíða línunni.  Þetta eru eins og hundar í bandi elítunnar.   


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband