Gjörspilltir og siðlausir framsjallar verða dregnir frá kjötkötlunum á halanum.

Og hent á öskuhauga sögunar.  Þar eru þeir best geymdir.  Þetta er svo algjört og tótallý opinberað hvernig framsjallaflokkur virkar.  Þetta er svo mikil skömm og skaði fyrir land og lýð að það er varla hægt að lýsa því.  Samt kóa einhverjir tveir hálfvitar enn með!  Alveg með olíkindum.  Svo vogar þetta hyski sér að koma enn fram og vera með dónaskap gagnvart heiðarlegu og heiðvirðu fólki.  Það er jafnframt algjört siðleysi framsjalla sem opinberast.  Þeir skammast sín ekkert.  Þeir munu bara halda áfram að göslast hér um, stelandi og ljúgandi þar til þeim verður hent út á halanum.


Allir innbyggjar verða nú að gera sér grein fyrir hvað hefur gerst. Hræsni framsjalla og þjóðrembinga hérna hefur afhjúpast.

Það er barasta alveg hrikalegt hvernig þeir hafa svikist aftan að eigin landi og þjóð.  Það lið sem kóar hvað mest með aflandseyjaspillingu framsjalla og elítuauðmanna eru þeir hinir sömu og dirfast að ráðast að heiðarlegu fólki dag hvern og ásaka um að vera ekki nægilega miklir íslendingar eða þjóðvinir etc.  Þessir menn eru, - ekki á nærbuxunum, - heldur bókstaflega með allt gjörsamlega niðrum sig.  Og í þannig ástandi rífa þeir enn kjaft!

12919673_10209208108258394_7373039389989671546_n


Bloggfærslur 8. apríl 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband