17.4.2016 | 23:25
Fjármálaráðherra verður að víkja.
Það er alveg ljóst. Stjórnin er óstarfhæf með fjármálaráðherra sem átti aflandsfélag með gervistjórnendum. Það gengur engan vegin upp. Trúverðugleiki lands er í húfi. Það er eiginlega óskiljanlegt að barasta allir geti ekki undireins áttað sig á svo stóru atriði. Fólk má passa sig á að fara ekki að kóa með þessu útí bláinn. Stóralvarlegt mál fyrir Ísland.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2016 | 16:11
Greiningardeild er til staðar í forsætisráðuneyti framsjalla til að berja á gagnrýnendum og taka fyrir eftir þörfum.
Þetta kemur fram hjá Sigurjóni Egilssyni á Sprengisandi. Ískyggilegt og óhugnalegt, ef rétt er. Það virðist barasta endalaust vella upp óþverrinn frá Ójafnaðarstjórninni, ríkisstjórn hinna ríku. ,,Sprengisandur: Leiðari - Að svíkja lit. Sigurjón M. Egilsson ræddi athöfnina að svíkja lit í leiðara Sprengisands" http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP44851
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)