Framsóknarmenn á felgunni. Fagna glóbalt hlýnun Jarðar af mannavöldum.

Meiri rugludallarnir þessir framsóknarmenn.  Framsóknarmenn eru sennilega vitlausastir íslendinga.  Það er eins og þeir geti aldrei haft neitt rétt og það sem verra er að stundum virðist sem þeir séu vísvitandi að ljúga.

Jafnframt er ekki rétt hjá framsóknarmönnum að ef það hlýnaði hér á næstunni eða að hlýnun yrði á svipuðu róli og undanfarin ár og áratugi, - að það þýðir ekki = að hægt verði að rækta hér korn í stórum stíl eða að Ísland verði á næstunni mikið matvælaframleiðsluland.  Barnaskapur að láta slíkt frá sér.

Allt virðist á sömu ruglbókina lært hjá framsóknarmönnum.  

Að öðru leiti þá er best að slíta þessu mæðusamstarfi framsóknar og sjalla hið fyrsta áður en frekari skaði og tjón hlýst af þessu.


Spilltir sjallar.

Gjörspilltir.  Uppá hvern dag má maður þola spillingarálag sjalla og framsóknarmanna sem böðlast á landi sínu og innbyggjum með ömurlegum hætti.  Sjallar kunna ekki að skammast sín.  Fyrir þeim er náttúrulega spiling bara eðlileg og ein kjölfestan í sjallaflokki.  Hygla elítufrændgarðinum.  Almenningur borgar sjallabrúsann.

Virkilega ömurlegt framferði þeirra framsjalla.  Þeir eru hættir að reyna að fela spillingu sína.  Hún er bara opinber og öllum augljós.


Bloggfærslur 9. apríl 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband