Enn eitt sjóvið hjá framsjöllum.

Í dag hrúguðu framsóknarmenn og sjallar upp skrípasjóvi í sambandi við svonefnd slitabú föllnu bankanna og uppgjör þeirra.  Þar kom efnislega fram að allt þvaður framsóknarmanna undanfarin ár reyndist vera bara það.  Þ.e.a.s. þvaður.  Uppgjör slitabúana fara svo fram eins og alltaf var fyrirséð að myndi verða og samkvæmt skilmálum kröfuhafa.  Stöðugleikaskattur framsóknarmanna var sleginn niður.  Reyndist bara vera eiginlega lygi framsóknarmanna.  Um þetta var hrúgað upp skrípasjóvi í dag.  Meginþorri þjóðarinnar er farinn að sjá í gegnum framsjalla.  Þeir hafa hagað sér of oft of vitleysislega.  Enda er fylgið farið.  Þeir eru umboðslausir.  Kallagreyin.


Það virðast flestir orðnir sammála um það að Ísland verður að taka upp Evru í gegnum ESB.

Það vita flestir.  Hvort allir viðurkenni það er svo annað mál.  Það er einfaldlega of dýrt fyrir almenning að hafa krónu.  Almenningur verður að fá Evru eins og annað fólk.  Það er ekkert nóg að krónan sé fögur.  Það skiptir engu þegar hún er miklu dýrari fyrir almenning sem borgar framsóknarbrúsann.


Bloggfærslur 28. október 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband