Skáld yrkir ljóð - framsóknarmenn froðufella af hamslausri bræði.

Það er íslendingum í fersku minni þegar þeir framsóknarmenn trylltust yfir einhverri skopmynd sem gæji útí bæ teiknaði.    Þeir alveg svoleiðis steittu hnefana framan í þjóðina hamslausir af bræði.

Þegar reiði framsóknar er ekki enn runnin vegna skopmyndarinnar þá gerist það að annar gæji útí bæ yrkir ljóð - hvað gerist?  Jú, framsóknarmenn gjörsamlega froðufella!   Gjörsamlega froðufella.

Enginn hefur ennþá fundið út afhverju framsóknarmenn eru svona reiðir því erfitt er að skilja orðin sem þeir frussa útúr sér í bræðisköstum sínum. 


Framsóknarmaður gagnrýnir framsóknarflokkinn harðlega.

,,Það sjá allir sem eru eldri en tvævetra í pólitík að þetta snerist aldrei um lóðamál. Allar þessar setningar sem fylgdu hugmyndunum um að afturkalla lóðina eru með augljósa tengingu í þjóðernispopúlisma," segir hann og bætir við: ,,Sveinbjörg er fluggáfuð manneskja en alls ekki vitlaus. Hún sagði þetta ekki einu sinni fyrir einhverja slysni, heldur sagði hún þetta oft. Það er augljóst til hverra var verið að höfða"

http://www.dv.is/frettir/2014/6/6/thotti-kosningabarattan-osmekkleg-NRKWVC/


Bloggfærslur 6. júní 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband