Nú hneykslast menn á ómálefnalegheitum og ósmekklegum umræðum ungmenna - en við hverju býst fólk? Framsjallar hafa þetta fyrir þeim.

Svo læra börnin sem fyrir þeim er haft.  Hérna hafa framsjallar og þeirra própagandarör beitt ómálefnalegu ofbeldisprópaganda árum og áratugum saman og barið á vesalings innbyggjum linnulítið ásamt tilheyrandi einelti og vibba.  Og halda menn að þetta hafi engin áhrif?  Að sjálfsöðgu skilar þetta sér svo til ungdómsins eins og afar glöggt má sjá síðustu ár.  Ofan í kaupið hafa framsjallar plantað sínum bjálfum allstaðar sem pláss er á garðanum og rúmlega það svo nú er svo komið að tæplega er hægt að horfa á ruv fyrir framsjallabjálfum. 

Það segir sig algjörlega sjálft, að þegar meirihluti þjóðar gengur sjálfviljugur í gapastokk framsjallaelítunnar og er þar hýddur uppá hver dag -  þá er ofbeldispropagandað orðið óskaplega alvarlegt.

Framsjallar eru búnir að eyðileggja þetta land og meira og minna.     


Hinn augljósi boðskapur sem sleppt er að segja innbyggjum hérna frá.

Ísland, Argentína og Kína?  Kveikir það á einhverjum perum??

Þetta eru augljóslega lönd sem BNA leggur litla áherslu á til samskipta og sendiherravera í nefndum löndum mestanpart til málamynda.

Þetta eru allt lönd sem eru lágt skrifuð alþjóðlega og hafa hagað sér meira og minna eins og fífl undanfarið.  

Td. má nefna að á Íslandi gengu innbyggjar sjálfviljugir í gapastokk elítunnar og eru þar hýddir núna uppá hvern dag.  

Af því draga BNA menn auvitað sínar ályktanir sem vonlegt er.


mbl.is Gerði grín að verðandi sendiherra á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær ætlar Ísland að biðja Danmörku formlega afsökunnar á allri lyginni sem þjóðrembingar suðu saman á sínum tíma?

Þessa lygi þekkja allir íslendingar enda var þetta barið inní höfuð manna og kvenna hérna í gegnum skólana og própagandamiðla.  Allskyns óhróður um þá vini og frændur okkar dani.  

Meginlygin var að danir hefðu verið alveg rosa vondir og haldið aftur af Íslandi sem slíku eða íslendingum.  Td. var skálduð upp lygasaga um að danir hefðu verið svo vondir að þeir hefðu alltaf selt íslendingum maðkað mjöl.  Ennfremur að danir hefðu grætt einhver ósköp á Íslandi og jafnvel byggt upp Kaupmannahöfn!  Halló.    Jafnframt lugu íslendingar því uppá dani að danir hefðu ætlað að ráða menn af dögum í svokallaðri ,,sjálfstæðisbaráttu".  

Þessu trúa jafnvel flestir íslendingar enn í dag.  Maður sér aftur og aftur að fólk tekur þetta fyrir satt.  

Allar þessar sögur eru haugalygi en til vara mýtur sem logið er síðan útaf.    

Það var heldur aldrei nein ,,sjálfstæðisbarátta" sem slík.  Það sem gerðist var að Ísland hætti að þyggja styrk frá þeim dönum - þá voru danir náttúrulega manna fegnastir að verða lausir við þá áþján sem ísland var fyrir þá.

Það er algjört grunnskilyrði fyrir Ísland að biðja dani formlega afsökunnar á fíflagangi sínum og lygasögum í gegnum tíðina.  

Annars verður aldrei réttur siðferðilegur grunnur undir þessu ríki hérna.

Það byggir engin hús á lygi.  Það er bara þannig. 


Bloggfærslur 15. febrúar 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband