Frábær árangur hjá Degi Sigurðar á EM. Breidd þýska liðsins svakaleg.

Verð samt að segja, að eg botna ekki alveg í hvernig þetta norska lið komst svo langt.  Sennilega stemmingin sem spilar inní.  Margir mjög ákveðnir í norska liðinu.  En seiglan og trúin í þýskurum kláraði þetta á endanum.  Þýskarar voru ekkert stressaðir yfir að fá leikinn í framlengingu.  Trúin á að þeir gætu klárað þetta skein af þeim.  Og þeir virðast hafa endalausa röð leikmanna.  Koma tveir óþreyttir inn og brillera.  En þetta hlýtur að teljast þjálfarasigur hjá Degi, að komast svona óvænt í úrslit á sjálfu EM.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband