5.7.2015 | 17:01
2-5% meirihluti á nei-vagninum í Grikklandi að því er virðist samkvæmt síðustu könnunum.
Samkvæmt könnunum sem gerðar voru rétt fyrir kosningarnar virðist nei-vagninn hafa 2-3% meirihluta. Þetta eru auðvitað afar vond tíðindi fyrir Grikki í alla staði. Sýnir svo margt og sannar. Þjóðaratkvæðagreiðslur eru stundum bókstaflega skaðlegar en í besta falli hlægilegar. Í annan stað, er Tsipras stjórnin búin að koma Grikklandi í svo mikið rugl, - að vandséð er hvernig þeir ætla að klóra í bakkann með þetta. Jafnvel þó ESB sé allt af vilja gert að bjarga grikkjum, - þá er vandséð að það sé hægt með þá bakkabræður Tsipras g Varoufakis við stjórn. Það er vandséð.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.