2.7.2015 | 11:11
Vandræði Syrisa-Anel stjórnarinnar fara vaxandi.
Mikil gagnrýni er á athafnir stjórnvalda og margir hafa líkt síðustu gjörðum þeirra við farsa. Skaðakostnaðurinn sé orðinn óásættanlegur og boðuð þjóðaratkvæðagreiðsla sé út í hött. Greinilegt ósamkomulag og klofningur er kominn upp í röðum stjórnarsinna og nú síðast lýstu 3 þingmenn Anel, eða gríska sjallaflokksinns, því yfir að þeir hyggðust kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Það sem m.a. hefur runnið upp fyrir fólki, er að athafnir Syrisa stjórnar fela þá hættu í sér að einhverjir bankanna muni verða að fara í þrot og þá eru fáir möguleikar í stöðunni nema svokölluð Bail-in aðferð sem farin var á Kýpur. En sú aðferð felst m.a. í hárskurði á innstæðum eða þá öðrum peningastoðum viðkomandi banka. Svo virðist sem afleiðingarnar af óábyrgri hegðan Syrisa og stjórnarinnar hafi komið mörgum grikkjum verulega á óvart.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.