1.6.2015 | 23:38
Ríkisstjórnin hefur misst allt umboð bæði í borg og sveit.
Eftirtektarverðast í könnun sem sjá má á link er hve fylgi pírata er sterkt úti á landi. um 30% á Suðurlandi og um 20% fyrir Norð-Vestan og Austan. Þetta er mjög mikið. Og óvenjulegt á þessum slóðum að nýr flokkur hljóti slíkar undirtektir almennt. Ríkisstjórnin hefur sett heimsmet í umboðsmissi.
Píratar stærstir í 5 af 6 kjördæmum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það eina sem kemur til með að bjarga framsjöllum í norð vestur-austur kjördæmum er hið hrikalega misvægi atkvæða, sem löngu á að vera búið að afnema. Það var ekki að ástæðulausu, sem SDG flutti heimilisfang sitt á eyðibýli í norð-austur kjördæmi.
Jónas Ómar Snorrason, 2.6.2015 kl. 06:54
Það væri fróðlegt að vita hvað er eiginlega á seyði í norðvestur kjördæmi, þar sem flestir segjast ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Guðmundur Ásgeirsson, 2.6.2015 kl. 12:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.