30.4.2015 | 16:03
Hvað er eiginlega í gangi hjá ríkisstjórninni?
Hér er allt í fokk öppi eftir framferði stjórnvalda. Allt bara í ruglinu. Þjóðinni er ofboðið. Þjóðinni ofbýður sjálftaka og framferði stjórnvalda sem færir efsta lagi samfélags stórar gjafir og allt annað er bara látið reka á reiðanum eða beinlínis barið niður ss. heilbrigðis- og menntakerfið.
Ok. staðan er eins og lýst er að ofan. Margir eða eiginlega allir búast við að forsætisráðherra komi fram og segi eitthvað. Tali til þjóðarinnar. Í þau örfáu skipti sem hann hefur fengist í viðtöl, þá ræðst hann að þjóðinni með skömmum og í framhaldi talar svo furðulega að metast verður sem barasta eitthvað rakalaust bull út í loftið.
En varðandi efnisinnihald í tali forsætisráðherra, ef eitthvað er, verður að segjast að uppistaðan er hatur gagnvart Jafnaðarprinsipum og síðan samsæriskenningar sem hann styður engum rökum eða bitastæðum dæmum.
Sífellt fleiri undra sig á þessu framferði og framkomu forsætisráðherra. Þessi framkoma er óásættanleg og hæfir ekki þessari stöðu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.