1.4.2015 | 12:11
Framsóknarmenn niðurlægja Ísland, þjóðþingið, almenning og íslenska tungu. Brjóta lög og böðlast á alþýðunni.
,,Fyrir neðan virðingu Alþingis að taka við skýrslu á ensku.
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði, segir ákvörðun Frosta Sigurjónssonar, formanns efnahagsnefndar Alþingis, um að skila skýrslu sinni á ensku sæta furðu. Skýr lög gildi um stöðu íslenskrar tungu; hún sé mál Alþingis og stjórnvalda og því sé það fyrir neðan virðingu Alþingis að taka við skýrslunni.
Skýringar Frosta eru á þá leið að of dýrt og tímafrekt hafi verið að þýða skýrsluna á íslensku. Eiríkur segir þau rök út í hött.
Orðhengilsháttur og rökleysa.
Menn verða bara að gera sér grein fyrir því að það kostar eitthvað að tala íslensku í landinu. Það er um ár síðan Frosta var falið að skrifa þessa skýrslu og hefði verið lagt upp með það að skrifa skýrsluna á íslensku þá hefði ekki farið neinn auka tími í þetta. Hvað varðar kostnaðinn fékk hann fjórar milljónir til ráðstöfunar en segist bara hafa notað helminginn. Það hefði verið hægt að nota til að þýða skýrsluna, segir Eiríkur í samtali við Vísi.
Það er hans ákvörðun að skrifa skýrsluna á ensku þannig að þetta er bara orðhengilsháttur og engin rök í málinu, bætir hann við."
http://www.visir.is/fyrir-nedan-virdingu-althingis-ad-taka-vid-skyrslu-a-ensku/article/2015150339763
Athugasemdir
,,8. gr.
Íslenska er mál Alþingis, dómstóla, stjórnvalda, jafnt ríkis sem sveitarfélaga, skóla á öllum skólastigum og annarra stofnana sem hafa með höndum framkvæmdir og veita almannaþjónustu."
Ómar Bjarki Kristjánsson, 1.4.2015 kl. 12:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.