11.12.2014 | 14:08
Framsóknarmenn nenna ekki Ríkisútvarpinu og forsætisráðherra nennir ekki að vinna.
Það að forsætisráðherra svokallaður nenni ekki að vinna kemur eigi mikið á óvart. Maðurinn hefur aldrei gert neitt nema leika sér. Hann heldur bara áfram að gera það eina sem hann kann. þ.e. að leika sér.
Hitt kemur verulega á óvart að þeir framsóknarmenn skuli ekki nenna Ríkisútvarpinu. Og þeir hafa þá gengið í sjallabjörgin óhugnalegu fullkomlega í því máli.
Þeim mun athyglisverðara er nefnt nennuleysi framsóknarmanna, að það er þvert á loforð þeirra fyrir kosningar. En þarf þó kannski ekki að koma beinlínis á óvart - Þeir svíkja jú allt sem þeir lofa.
En þögn almennra þingmanna flokksinns í nánast öllum málum er æpandi. Þessir þingmenn eru mestanpart úr Landsbyggðarkjördæmum - og þeir þegja bara.
Aumt lið og lítilmannlegt.
Athugasemdir
Skil ekkert í Agli að vera ávarpa Sigrúnu Magnúsdóttur.
Kellingin er eins tóm og hugsast getur.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 11.12.2014 kl. 18:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.