Ef allt fer á versta veg og dómsstólar ákveða að gefa fólki böns of money - að halda menn þá að það hafi engin áhrif á efnahag landsins?

Nú sér maður víða að menn eru að segja að bara ekkert mál sé að verðtrygging verði endurgreidd af öllum lánum í landinu síðan ég veit ekki hvenær.  Bara ekkert mál.  Eins og að drekka vatn.

Það er alveg óskiljanlegt afhverju fólk segir svona.

Hefur auðvitað gríðarleg áhrif og landið hlyti að fara meir eða minna á hliðina.

Skrítið hvernig fólk er farið að hugsa fjármagnsmálefni - og sér í lagi ef um stórar upphæðir er að ræða.  

Ef um stórar upphæðir er að ræða - þá er bara ekkert mál að trikka og fixa hlutum fram og til baka, afskrifa þúsundir milljarða þarna og tugi þúsuna hér etc. - og það hefur barasta engin áhrif!

Með málefni verðtryggðra lána sérstaklega, að þá er eins og fáir fatti að a.m.k. helmingur slíkra lána er hjá Íbúðarlánasjóði og það tengist svo lífeyrissjóðunum.

Það er engu líkara en sumir ætli bara að leggja niður lífeyrissjóðasystemið.  Þ.e.a.s. að ef það leggst meir eða minna á hliðina - þá skipti það engu!  Og það þurfi enga peninga í staðinn o.s.frv.  Hvernig ætla menn þá að fjármagna lífeyrissjóðagreiðslur sem koma þó úr slíkum sjóðum í dag?

Fólk er ekki að hugsa hálfa hugsun.  Hugsar ekkert til enda.

Ennfremur tala margir sem Íbúðarlánasjóður fari hvort sem er á hausinn og það sé bara gott og engin ríkisábyrgð lagatæknilega - en menn horfa alveg framhjá öllum afleiddum vanda sem augljóslega hlýst af gjaldþroti Íbúðarlánasjóðs.

Það er auðvitað stóralvarlegt ef ríkið hættir að bakka upp Íbúðarlánasjóð.

Ef allt fer á versta veg fyrir dómsstólum - þá erum við mjög sennilega að horfa uppá stóraukana misskiptingu manna á millum og gjörbreytt efnahagslegt ástand til hins verra almennt séð fyrir landið og lýðinn.

Það er bara kommon sens að sjá það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband