31.5.2014 | 15:32
Ísland hefur fengið sitt Jyllands-Posten cartoons controversy.
Það eru sláandi líkindi þarna á milli - að breyttu breytanda að sjálfsögðu.
Vakna ýmsar spurningar.
Nú finnst mér persónulega þessi teikning óþarflega stuðandi - þó eg átti mig alveg á hvert teiknarinn er að fara.
En finnst framsóknarmönnum þá, sem sagt, að Jyllands-pósturinn og dönsk yfirvöld hefðu átt að biðjast afsökunnar á Jylland-Posten teikningunum á sínum tíma?
Ef pósturinn hefði gert það og dönsk stjórnvöld gripið strax inní með afgerandi hætti - þá hefði aldrei orið neitt mál úr þeim teikningum.
Eg hef hinsvegar eigi orðið var við að þeir framsóknarmenn væru á þeirri skoðun og hvort stuðningsmenn þeirra voru ekki sumir að pósta þessum teikningum á facebook bara fyrir stuttu í tilefni einhvers afmælis sem eg kann ekki skil á.
Sakar Fréttablaðið um einelti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Teikningin er góð og tímabær. Hún er hinsvegar engin árás á kellingar greyið, hana Sveinbjörgu, sem er aumkunarverð leikbrúða í höndum kosningastjórans og Framsóknarflokksins.
Markmið er að vinna eitt sæti og til þess væru öll ráð leyfileg. "The real thing".
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 31.5.2014 kl. 17:16
Já. Það er sorglegt að nánast enginn framsóknarmaður skuli mótmæla þessu kröftulega.
Skil ekki hvð er í gangi í framsóknarflokknum.
Framsóknarflokkur er að verða eyðandi afl í íslenskri pólitík.
Sorglegt.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 31.5.2014 kl. 18:23
Ekki aðeins Framsóknarflokkurinn Ómar, en einnig "öldungadeild" Íhaldsins.
Skarfarnir í henni hrópuðu hæst í stuðningi við fíflaganginn í greyinu henni Sveinbjörgu.
Einhver svona "það lafir á meðan ég lifi" hugsunarháttur.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 31.5.2014 kl. 21:24
Jú það er rétt.
Maður er mjög hugsi yfir þessari þróun.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 31.5.2014 kl. 22:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.