12.5.2014 | 12:52
Sjallar semja um Icesaveskuldina.
Það er broslegt að fylgjast með þeim sjöllum og framsóknarmönnum núna verandi að semja um icesaveskuldina.
Jafnframt er eftirtektarvert að þetta gengur bara þokkalega þegjandi og hljóðalaust fyrir sig, að því er virðist. Forseti í fríi sennilega. Forsætisráðherra líklega líka. Þeir sjást ekkert.
Ennfremur er áberandi skorturinn á upphrópunum og vitleysisbulli almennra þjóðrembinga og öfgamanna - sem vonlegt er enda fylgja þeir sér á bak við sína flokka, sjallaflokk og framsóknarmannaflokk og hlýða í einu og öllu línunni.
![]() |
Lengingin flýtir ekki afnámi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Verst hve staðan er breytt. Nú sjá Bretar og Hollendingar enga ástæðu til að gefa afslátt fyrir ríkisábyrgð. Nú erum við að semja á hnjánum. "Sigurinn" í Icesave kemur til með að kosta hátt í 2000 milljarða. Auk þess sem gjaldeyrishöftin væru ekki lengur og ekki hefði þurft niðurskurð í heilbrigðis og menntakerfinu. Krónan stæði betur og kaupmáttur væri hærri hefðum gengið að fyrri samningum. Það getur verið dýrt að hræðast útlendinga og telja alla vera að reyna að stela frá sér, heimska og þjóðrembingur kostar.
Davíð12 (IP-tala skráð) 12.5.2014 kl. 14:15
Þetta kemur Ice(L)ave ekkert við enda er því máli lokið þótt "vinstri-vitleysingar" reyni að halda öðru fram gegn betri vitund.................
Jóhann Elíasson, 12.5.2014 kl. 15:26
Já. þetta er ekki nógu gott. (vægt sagt).
Eg segi fyrir minn hatt að eg mundi ekkert vilja vera í spurum sjalla og framsóknarmanna núna.
Þarna eru þeir framsjallar á hnjánum frammi fyrir B&H, alveg eins og hálfvitar með allt niðrum sig.
En svo hættir maður alveg að vorkenna þeim þegar hugsað er útí það að þetta er þeim sjálfum alfarið að kenna.
Þeir hefðu átt að bulla aðeins minna og vera ekki svo óheiðarlegir í málflutningi undanfarin ár.
Þeir geta sjálfum sér um kennt og engum öðrum.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 12.5.2014 kl. 15:47
Ps. verst er svo hvað framferði framsóknarmanna og sjalla kostar land og lýð. Þvílíkur skaðakostnaðarskuldaklafi sem knúinn er á herðar almennings.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 12.5.2014 kl. 15:49
Icesave þjófnaður Íhaldsins á eftir að verða landi og lýð dýr. Einhver ljótasti blettur í sögu þjóðarinnar.
Græðgin og heimskan var allsráðandi.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 12.5.2014 kl. 16:49
Sjallar og framsókn koma ekkert nálægt þessu klúðri Steingríms.
Það eru stjórnendur Landsbankans sem eru í þessum samningum við þrotabú gamla bankans.
Kemur ríkinu alls ekkert við.
En það er búið að meta skaða af þessum afleik Steingríms og hann er hátt í 300 milljarðar, eða svipað og gjaldþrot Seðlabankans.
Sennilega dýrasti þingmaður lýðveldissögunnar.
Sigurður (IP-tala skráð) 12.5.2014 kl. 20:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.